Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Page 20
20 Lífsstíll 24. júlí 2013 Miðvikudagur Svona getur maður grennst án fyrirhafnar n Tíu kíló á ári með því að takmarka neyslu á mjólkurkaffi D rykkir geta innihaldið mikið magn af hitaeiningum. Með því að breyta drykkjarvenjum getur maður takmarkað hita­ einingainntöku dagsins og auðveld­ að manni að losna við óvelkomin auka kíló. Einn lítri af sykruðum gosdrykk getur innihaldið allt að þúsund hita­ einingum og orkudrykkir eru kaloríu­ bombur líkt og gosdrykkir. Ávaxtasafar innihalda oft svipað magn af hitaeiningum og gosdrykk­ ir og er því ekki ráðlagt að drekka þá í lítravís. Kaffi er svo sannarlega ekki laust við hitaeiningar þegar rjóma, sírópi eða nýmjólk er bætt út í það, þá geta hitaeiningar kaffibollans rokið upp í allt að 500 eða meira. Áfengi er einnig hitaeiningaríkt og geta rjóma­ bættir kokteilar innihaldið svipað magn af hitaeiningum og vel úti­ látin máltíð. Boozt­drykkir geta inni­ haldið 200–400 hitaeiningar og ættu þeir þá að koma í staðinn fyrir máltíð en ekki notast sem millimáltíð. Grænt te og vatn eru bestu kost­ irnir þegar þorstinn kallar og hafa báðir drykkirnir jákvæð áhrif á efna­ skiptahraða líkamans og eru lausir við hitaeiningar. Tökum dæmi um hvernig hægt er að léttast um 10 kíló á ári með lítilli fyrirhöfn: Einn hefðbundinn cappuccino inni heldur rúmlega 100 hitaeiningar og gefum okkur að drukknir séu tveir bollar á dag af þessum vinsæla kaffi­ drykk, en það gera samtals um 72 þúsund hitaeiningar á ári sem gera um tíu kíló af fitu. Hvert kíló af fitu inniheldur um sjö þúsund hitaein­ ingar. Í hálfum lítra af sykruðum gos­ drykk eru um 250 hitaeiningar og svo mætti halda áfram endalaust. Þetta er einfalt reikningsdæmi og hægt er að bæta heilsuna til muna bara með því að takmarka neyslu á óhollum drykkjum. n Epsom-salt getur gert kraftaverk V insældir epsom­salts hafa farið sívaxandi á síðustu tveimur árum enda þyk­ ir það eitt ódýrasta og öfl­ ugasta fegrunarlyfið á markaðnum. Saltið hefur einnig verið notað til lækninga á ýmsum smærri kvillum. Epsom­salt er í raun magnesíum súlfat og hefur verið not­ að til lækninga í nokkur hundruð ár. Margir vilja ganga svo langt að segja að slíkt salt ætti að vera til á hverju heimili þar sem notagildi þess er svo fjölbreytt, allt frá því að draga úr bjúg til þess að endurnæra garðinn. Þær Gwyenth Paltrow, Victoria Beckham og Elle Macpherson hafa lofað epsom­salt í hástert og er það ekki síst þeim að þakka hve vinsældir þess hafa aukist. Saltið fæst í flestum heilsubúðum. Hér eru nokkrar leiðir til að nota epsom­salt: Þynnkubani Eftir fjörugt kvöld á barnum er snið­ ugt að fara í heitt bað með epsom salti. Saltið á að auðvelda líkam­ anum að losa sig við eiturefnin í áfenginu og koma þannig í veg fyr­ ir hin klassísku þynnkueinkenni, höfuð verk, þreytu og ógleði. Auktu umfang hársins Blandaðu handfylli af epsom­salti saman við sjampóið þegar þú þværð hárið og skolaðu úr eins og venju­ lega. Saltið fjarlægir umfram olíu úr hárinu og kemur í veg fyrir að hárið verði feitt og klesst. Þá er einnig mælt með því að blanda saltinu saman við hárnæringu og leyfa blöndunni að liggja í hárinu í tuttugu mínútur áður en hún er skoluð úr. Eftir þessa meðferð á hárið að virka þykkara og meira um sig, en steinefnin í saltinu endurnæra klofna enda og styrkja hárið. Húðhreinsun Blandaðu hálfri teskeið af epsom­ salti saman við hreinsimjólkina þína, nuddaðu inn í húðina og hreinsaðu svo af með vatni. Þetta á að endur­ næra húðina og gefa henni fallegan og heilbrigðan ljóma. Dragðu úr bjúg og fótaþreytu Eftir erfiðan dag í vinnu og amstri dagsins er fátt betra en að fara í fóta­ bað með epsom­salti. Hálfur bolli af salti út í fótabaðið á að gera krafta­ verk fyrir þreytta og bólgna fætur. Saltið hefur ekki bara þann eigin­ leika að draga úr verkjum heldur dregur líka úr bólgum og bjúg. Tá­ fýlan hverfur líka eins og dögg fyrir sólu og fæturnir verða silkimjúkir. Læknaðu flugþreytu Líkaminn er oft aumur og eftir sig að loknum löngum flugferðum. Þá er gott að geta gripið til epsom­saltsins og setja slatta af því út í heitt bað. Saltið slakar á vöðvunum og auð­ veldar svefn í kjölfarið. Þá er einnig gott baða sig upp úr epsom­salti eft­ ir erfiðar æfingar og fyrir mikil átök. Komdu meltingunni á hreyfingu Epsom­salt hefur þann eiginleika að koma lélegu meltingarkerfi á hreyf­ ingu. Magnesíum súlfatið hefur lax­ erandi áhrif og auðveldar meltingu. Best er að taka saltið inn með vatni á morgnana, áður en þú borðar morgunmat. Gott er þó að hafa í huga að saltið getur haft aukaverk­ anir á borð við niðurgang, ógleði og uppköst svo best er að ráðfæra sig við lækni áður það er tekið inn. n Út í baðið Epsom salt þykir góður þynnkubani og dregur úr flugþreytu og bjúg. Fegrunarlyf Saltið er not- að í ýmsum tilgangi, meðal annars til að auka umfang hársins og endurnýja húðina. n Frábært og ódýrt fegrunarlyf n Læknar ýmsa kvilla Nú er það svart Það getur gert ótrúlega mik­ ið fyrir útlit heimilisins að mála einn eða fleiri veggi í svörtum lit. Við erum að tala um kolsvart og þá skiptir engu hvaða gljá­ stig er notað. Gylltir og silfraðir rammar á dökkum vegg er mjög smart og myndi það útlit flokk­ ast undir dýrari týpuna í innan­ hússhönnun. Sumir vilja meina að lítil rými þoli ekki dökka líti því það láti flötinn virðast minni en hann er í raun. Sannleikurinn er sá að svart minnkar hvorki líkamsstærð né fermetrafjölda, þetta er allt í kollinum á okkur og um að gera að lífga upp á heimil­ ið með einum svörtum vegg. Krítarveggur Krítarveggur fyrir skila- boð og listaverk fjölskyldunnar. Háglans Háglans í litlu rými er mjög smart. Tími fyrir kerti Föndur með fjölskyldu og vinum getur verið skemmtilegt og fæð­ ast oft nýjar hugmyndir á þannig stundum. Það er auðvelt að búa til falleg kerti úr því sem er að finna í eld­ hússkápunum. Prófaðu að raða negulstöngum eða þurrkuðum smá­maísstönglum utan um kerti og notaðu band eða jafnvel gras­ lauk til þess að binda með. Hér ræður hugmyndaflugið útkom­ unni og allir eru listamenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.