Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Page 22
22 Menning 24. júlí 2013 Miðvikudagur Ógnvaldurinn að austan n Pacific Rim er vísitölu sumarhasar Þ egar Obama tók við sem forseti Bandaríkjanna var hann að mörgu leyti fyrsti Kyrrahafsforsetinn, fædd- ur á Hawaii og alinn upp í Indó- nesíu. Fannst mörgum sem nýir tímar væru hafnir. Það er jú hér sem markaði framtíðarinnar er að finna, en einnig hin nýju stórveldi sem skorað geta Bandaríkin á hólm. Skrímslamyndina Pacific Rim má sjá sem lið í þessari þróun. Ógn- in gegn Bandaríkjunum beinist ekki gegn Hvíta húsinu eða stórhýs- um New York borgar, heldur geng- ur hún á land á vesturströndinni, og má þannig túlka skrímslin sem vísun í hin rísandi veldi Asíu. En myndin sýnir einnig samvinnu Kyrrahafsþjóða. Risavaxin vél- menni eru sköpuð til að berjast við sæskrímslin og er þeim stjórn- að af helstu Kyrrahafsþjóðum; Kína, Rússlandi, Japan, Ástralíu, og Bandaríkjamönnum. Evrópa kemur hér lítið við sögu, nema helst sem markaður frygðarlyfja sem fram- leidd eru úr leyfum skrímslanna. Þar fyrir utan er fátt nýtt hér að finna. Hetja okkar er, eins og alltaf, treg til að fylgja skipunum og lemur samstarfsmenn sína af minnsta til- efni. Yfirmaðurinn er gömul kempa sem neyðist til að klæðast gamla búningnum eina ferðina enn. Rússarnir og Kínverjarnir segja fátt og deyja fljótt. Tölvugaurarnir eru nördar með mikla samskiptaörð- ugleika. Og skrímslin sjálf virðast eiga erfitt með að ákveða hvort þau fjölgi sér með einræktun eða hefð- bundinni óléttu. Manni finnst næstum eins og allar geimverumyndir þessa dagana séu endurgerðir á Independence Day frá 1996, sem var hvorki frum- leg né beinlínis góð. Og þó að vissu- lega sé gaman að horfa á risavaxin skrímsli og vélmenni slást nær það ekki mjög langt þegar manni er al- veg sama um allar persónur og jafn- vel bardagaatriðin falla í skuggann af ótal öðrum sumarmyndum sem leggja einhverja stórborgina í rúst. Maður bjóst við meiru frá Guill- ermo del Toro, sem gerði hina stór- góðu ævintýramynd Pan‘s Labyr- inth og hina ágætu Hell Boy. Pacific Rim er vísitölu sumarhasar og rétt þjónar tilgangi sem slíkur, en lík- lega verð ég þegar búinn að gleyma henni þegar þetta er komið á prent. Myndin er þó vafalaust fyrst og síðast tilraun bandarískra fram- leiðanda til að koma vörum sín- um á Asíumarkað og sækir mjög í japanskar skrímslamyndahefðir. Þó er það hvíta fólkið hér, Banda- ríkjamenn og Ástralar, sem á end- anum bjarga heiminum. Spurning er hve lengi sú heimsmynd muni haldast. n Spila á sveitaballi n Láta gamlan draum rætast n Halda uppi stemningu á föstudagsböllum Hrafnistu D AS-bandið, hljómsveit Hrafn istu í Hafnar firði, verð- ur með dansleik á Gömlu Borg í Grímsnesi laugar- daginn 27. júlí. Hljómsveitin spilar reglulega á böllum á Hrafnistu en langar að láta drauminn rætast og spila á alvöru sveitaballi. ,,Þetta byrjaði nú með því að ég og félagi minn, Kristján Þorkels- son harmonikkuleikari, fórum að spila saman. Hann hafði spilað með mörgum hljómsveitum á sínum yngri árum og svo vatt þetta upp á sig. Nú erum við orðin tíu sem hitt- umst og spilum saman,“ segir Böðv- ar Magnússon einn af meðlimum DAS-bandsins. Ball á föstudögum Hljómsveitin samanstendur af píanó leikara, trommara, söngv- ara og gítarleikara en restin spilar á harmonikkur. Söngvarinn, Guð- mundur Ólafsson er 84 ára gamall heimilismaður á Hrafnistu en Böðv- ar, sem er hljómsveitarstjóri sveitar- innar, er 73 ára gamall. Aðrir hljóm- sveitarmeðlimir eru á áttræðis- og níræðisaldri. ,,Já, það er alltaf ball frá hálf tvö til hálf þrjú og þau eru vel sótt af heimilismönnum og gestum sem koma til að dansa. Það er eiginlega einkennandi fyrir þá kynslóð sem býr á elliheimilum í dag hve allir eru viljugir og færir í að dansa og syngja. Svo höfum við sem hefð á böllun- um að í sirka tíu mínútur þá eru ein- göngu þeir á gólfinu sem styðjast við göngugrindur eða sitja í hjólastól. Það er mjög vinsælt og böllin hafa gengið vel og eru skemmtileg,“ seg- ir Böðvar. Draumur að rætast ,,Undanfarin ár höfum við líka spil- að á sjómannadeginum á bryggju- balli í Hafnarfirði en í ár spiluð- um við út á Granda í Reykjavík. Svo komum við fram í Ráðhúsi Reykja- víkur og spiluðum þar. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt sumar.“ Hljómsveitin naut þess að spila fyrir æ fleiri áhorfendur og á dögun- um ákvað sveitin að láta gamlan draum rætast – að spila á sveitaballi. ,,Okkur langaði bara að toppa sumarið, ef svo má að orði komast, og fara í sveitaballabransann. Við getum alveg keppt við hin böndin enda meðlimir í DAS-bandinu vanir spilarar sem hafa komið fram í ýms- um hljómsveitum,“ segir Böðvar og hlær. Spila af ástríðu Hann segir að hljómsveitin myndi ekki slá hendinni á móti útgáfu- samningi ef útsendarar yrðu við- staddir á sveitaballinu um helgina. ,,Þetta er þó allt gert fyrir gleðina. Það er svo gaman að koma saman og spila - sérstaklega þegar gestir taka vel undir og dansa,“ segir Böðv- ar og hvetur fólk til að mæta á ball á Hrafnistu á föstudaginn þegar hljómsveitin mun hita sig upp fyrir sveitaballið á laugardaginn. n Tónleikar Símon Birgisson simonb@dv.is „Okkur langaði bara að toppa sumarið. Glatt á hjalla Innlit á æfingu DAS-bandsins. Tónleikar í sveitasælu Miðvikudaginn 24. júlí munu Tómas R. Einarsson og Gunn- ar Gunnarsson leika fyrir gesti sígild djasslög, norrænar vísur og lög eftir Tómas R. á Hótel Eddu á Laugum í Sælingsdal. Tónleikarn- ir eru hluti af tónleikaröð á hótel- inu. Þeir kollegarnir, Tómas og Gunnar, hafa spilað saman í nær tvo áratugi, bæði hér heima og er- lendis. Í tilkynningu frá hótelinu segir að Tómas R. hafi gefið mat- reiðslumeistara hótelsins upp- skrift að kúbverskum saltfiskrétti sem gestir geta gætt sér á. Einnig verða á boðstólum hinir lands- þekktu Dalaostar. Papatango verðlaunin afhent Sigurvegari Papatango leiklistar- verðlaunanna í ár heitir Luke Owen. Hann er þrítugur breti. Leikrit hans heitir Unscorched og fjallar um líf þeirra sem starfa við barnavernd á gáskafullan og óforskammaðan hátt. Verkið verður gefið út á bók og sett upp í atvinnuleikhúsi í London. Papa- tango leiklistarverðlaunin voru fyrst afhent 2009 og njóta sífellt meiri virðingar í leikhúsheimin- um. Einn af verðlaunahöfundun- um er leikskáldið Dawn King en verk hans Foxfinder, sem hlaut verðlaunin árið 2011, verður sett upp í Borgarleikhúsinu í vetur. Pacific Rim IMDb 7,8 Metacritic 48 Leikstjóri: Guillermo del Toro. Leikarar: Charlie Hunnam, Idris Elba, Rinko Kikuchi. Kvikmyndir Valur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.