Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2013, Qupperneq 12
12 Fréttir 14. ágúst 2013 Miðvikudagur
Undarlegt þakhýsi ofan á blokk
n Íbúar kvarta undan leka og sprungum í veggjum
Glæsihýsi Íbúar blokkarinnar eru
ósáttir við framkvæmdirnar. Skiljan-
lega, myndu eflaust einhverjir segja.
Skipið
verður rifið
Yfirvöld í bænum Kesennuma í
Japan hafa ákveðið að rífa fiski-
skipið Kyotoku Maru sem varð
eins konar tákn bæjarins eftir
hamfarirnar sem riðu yfir Japan
árið 2011. Skipið fór langt inn í
land þegar flóðbylgjan hreif það
með sér þann 11. mars 2011,
en yfir átján þúsund létust í
jarðskjálftanum og flóðbylgj-
unni sem reið yfir í kjölfarið.
Það voru íbúar sem ákváðu að
rífa skipið í íbúakosningu en 70
þúsund manns búa í bænum.
Fjölmargir ferðamenn hafa lagt
leið sína í bæinn á undanförn-
um misserum til að berja skipið
augun og minnast þeirra sem
létust í hamförunum.
Dæmdir til
dauða
Dómstóll í Xinjiang-héraði í
Kína hefur dæmt tvo karlmenn
til dauða fyrir að hafa valdið
dauða rúmlega tuttugu manns
í apríl síðastliðnum. Meðal
hinna látnu voru fimmtán lög-
reglumenn. Átök brutust út í
héraðinu sem er í vestast í Kína
þann 23. apríl síðastliðinn á
milli minnihlutahóps Uighur-
fólks og Han-Kínverja. Tæplega
helmingur íbúa í héraðinu er
Uighur-fólk og brutust átökin út
vegna aukinna áhrifa Han-Kín-
verja í héraðinu sem öfgasinn-
aður armur Uighur-fólks hefur
barist gegn. Mennirnir sem
dæmdir voru til dauða tilheyra
þeim armi Uighur-fólks.
Snjallsími frá
Norður-Kóreu
Norður-Kóreumenn fullyrða að
þeir hafi nú framleitt snjallsíma
fyrir norðurkóreskan markað.
Síminn sem um ræðir heitir
Arirang og samkvæmt norður-
kóreska ríkisfréttamiðlinum
fékk forsetinn, Kim Jong-un, að
sjá eintak af honum á dögun-
um. Farsímakerfi var komið
upp í Norður-Kóreu árið 2008
en afar fáir landsmenn hafa að-
gang að því. Sérfræðingar efast
um að síminn hafi í raun verið
framleiddur í Norður-Kóreu en
í fyrra tilkynntu yfirvöld að þau
hefðu framleitt spjaldtölvu. Síð-
ar kom í ljós að hún átti upp-
runa sinn að rekja til Kína.
G
rænlandsjökull er að
bráðna neðan frá jafnt sem
að ofan. Þetta staðfestir ný
alþjóðleg rannsókn á veg-
um þýsku vísindastofn-
unarinnar GFZ. Niðurstöður
rannsóknarinnar voru birtar í nýj-
ustu vefútgáfu Nature Geoscience.
Ástæða bráðnunarinnar er aukið
hitaflæði frá möndli jarðar að jarð-
skorpunni undir jöklinum.
Jarðskorpan, eða ysta lag henn-
ar svokallað lithosphere, er mis-
þykk en á nokkrum stöðum undir
jöklinum er hún sérstaklega þunn.
Vísindamennirnir á bak við rann-
sóknina segja áhrifin það mik-
il að ekki sé hægt að líta fram hjá
þeim þegar verið sé að reikna út
bráðnun Grænlandsjökuls og áhrif
hennar á vistkerfi jarðar.
Yfirborð sjávar hækkar stöðugt
Samspil milli bráðnunar íss og
vaxandi hitastigs jarðar er flókið og
stöðugt í rannsókn. Flestar niður-
stöður rannsókna benda þó til
þess að sífellt meiri bráðnun geti
og sé þegar farin að hafa alvarlegar
afleiðingar.
Grænlandsjökull er að tapa um
227 gígatonnum af ís á hverju ári
sem eru 227.000.000.000 tonn. Það
veldur um það bil 0,7 millimetra
hækkun sjávarmáls í heiminum
en heildarhækkun á ári nemur
um 3,0 millimetrum. Þessar mæl-
ingar gera hins vegar ekki ráð fyr-
ir þessari áður óþekktu bráðnun
vegna jarðhita. Það eru ekki nýj-
ar fréttir að jöklar bráðni líka neð-
an frá en bráðnun undir jöklinum
var áður metin út frá vatnsstreymi,
þrýstingi og skriði.
Þunn jarðskorpa
„Hitastigið á ísnum undir jöklin-
um og þar af leiðandi öll hreyfi-
fræðin undir jöklinum er sam-
spil milli hitaflæðis frá jörðinni
og loftslagsbreytinga í tengslum
við hringferla jökla,“ segir Irina
Rogozhina vísindamaður hjá GFZ
og frumkvöðull IceGeoHeat-ver-
kefnisins. Hún telur þetta mik-
ilvægan þátt í að meta með ná-
kvæmari hætti þá ferla sem eiga
sér stað undir jöklinum og með
hvaða hraða hann bráðnar neðan
frá. „Við fundum staði þar sem jök-
ullinn bráðnar neðan frá vegna
hita en rétt hjá voru staðir þar sem
botn jökulsins var mjög kaldur.“
Ysta jarðskorpan undir Græn-
landsjökli er á bilinu 2,8 til 1,7
milljarða ára gömul og er mjög
misþykk. Undir miðjum jöklinum,
þar sem hún er þynnst, er hún 70 til
80 kílómetrar. Ekki hefur enn verið
rannsakað hvers vegna það er.
Icelandic Jet skiptir sköpum
Þónokkuð hefur verið fjallað um
áhrif aukins ferskvatnsstreymis frá
Grænlandsjökli og áhrif þess á haf-
strauma við austurströnd Græn-
lands. Talið var að mikil aukning
ferskvatnsflæðis gæti haft alvar-
legar afleiðingar á samspil Austur-
Grænlandsstraumsins sem flytur
kaldan pólsjó niður með austur-
ströndinni og Irminger-straums-
ins sem flytur heitan Atlantshafs-
sjó upp með vesturströnd Íslands
og norður og austur fyrir land.
Fyrir nokkrum árum uppgötv-
uðu hins vegar íslenskir vísinda-
menn, þeir Steingrímur Jónsson
og Héðinn Valdimarsson, nýjan
hafstraum sem kallast Icelandic
Jet. Flytur hann kaldan sjó úr haf-
inu austan og norðan við Ísland
og niður um Grænlandssund-
ið sem fellur á botn Atlantshafs-
ins suðvestur af Íslandi. Þessi öfl-
ugi straumur gerir það að verkum
að áhrif ferskvatns á straumakerfið
verða að öllum líkindum ekki jafn
alvarleg og í fyrstu var talið. n
Bráðnar hraðar
en áður var talið
n Ný rannsókn um áhrif jarðhita á Grænlandsjökul n Íslensk uppgötvun mikilvæg
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
Grænlandsjökull Hiti
sem streymir frá miðju
jarðar í gegnum þunna
jarðskorpu undir Græn-
landsjökli hefur meiri
áhrif en áður var talið.
Icelandic Jet-straum-
urinn Er merktur með
hvítri línu á myndinni.
K
ínverskur auðjöfur, Zhang Lin,
hefur eytt síðustu sex árum ævi
sinnar í byggingu þakhýsis sem
fáir myndu slá höndinni á móti.
Einhverjir myndu þó eflaust setja
spurningarmerki við staðsetninguna
því eins og sést á meðfylgjandi mynd
er hún ofan á um tuttugu hæða blokk.
Byggingin, sem er í Peking í Kína, hef-
ur vakið talsverða athygli og eru íbúar
blokkarinnar ekki á eitt sáttir með
staðsetninguna. Þeir óttast að öryggi
þeirra sé stefnt í hættu og byggingin
sé raunar að hruni komin. Þannig
hafa íbúar á efstu hæðum blokkar-
innar tekið eftir sprungum í veggjum
í íbúðum sínum og sumar þeirra hafa
míglekið. Íbúar hafa einnig kvartað
undan hávaða við framkvæmdirnar
sem kostuðu tugi milljóna króna.
„Þegar hann flutti hingað var allt
í himnalagi. Hann reif íbúðina sína
niður og byggði þetta fjall,“ segir einn
ósáttur íbúi byggingarinnar. „Þegar
rignir þá flæðir vatn inn í íbúðirnar
okkar enda reif hann frárennslisrörin
frá húsinu.“
Svo virðist vera sem Zhang hafi
ekki fengið leyfi fyrir byggingu hússins
og gæti hann þurft að rífa hana úr-
skurði borgaryfirvöld að hætta stafi
af henni fyrir aðra íbúa. „Ef hann get-
ur ekki sannað að hún sé örugg verð-
ur að rífa hana,“ segir fulltrúi borgar-
yfirvalda.
Byggingar í Kína eru margar hverj-
ar ansi frjálslegar og þar byggja menn
stórt. Sem dæmi er stærsta bygging
heims í Chengdu í Sichuan-héraði en
hún er tuttugu sinnum stærri en hið
tignarlega óperuhús í Sydney. n
einar@dv.is
„Grænlands-
jökull er að
tapa um 227 gíga-
tonnum af ís á
hverju ári sem eru
227.000.000.000
tonn.