Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2013, Qupperneq 20
20 Lífsstíll 14. ágúst 2013 Miðvikudagur
Litríkt og umhverfisvænt á bossana
n Elísabet Ósk opnar vefverslun með taubleiur
E
lísabet Ósk Jónsdóttir ákvað áður
en hún eignaðist sitt fyrsta barn
að taubleiur yrðu fyrir valinu
í umönnun barnsins. Á með
göngunni kynnti hún sér úrvalið á tau
bleium hér á landi og saknaði þess að
geta ekki keypt eina sérstaka tegund
sem henni hugnaðist vel. Hún tók því
til sinna ráða og hefur nú stofnað vef
verslun með eigin taubleiur á vefsíð
unni regnbogarassar.is.
„Þessi gerð af taubleium hefur
ekki verið í boði á Íslandi. Hún er ekki
vatnsheld en með vatnsfráhrindandi
flísefni og andar því mjög vel. Hún er
mjög vinsæl í Bandaríkjunum og þar
er hún notuð yfir nóttina vegna þess
hve vel hún andar. Strákurinn minn
notar bleiuna yfir nóttina í allt að 12
tíma. Svo þegar börnin eldast, þá er
hægt að setja flísbuxur yfir.“
Elísabet opnar síðuna
formlega í dag, mið
vikudag. Hún hefur
lagt sérstaklega upp
úr útliti og því að
þær séu þægilegar
í notkun. „Þær eru
líflegar og litrík
ar. Það er gaman
að því að hafa þær
vel gerðar og fallegar
fyrir augað.“
Hún ætlar sér að reka
vefverslunina sem heimavinnandi
móðir. „Drengurinn minn hefur reynst
svo ljúfur svo ég hef komið miklu í
verk, það var einstaklega gaman að
nýta þennan tíma svona vel. Ég hef
alltaf haft áhuga á að skapa og búa til
eitthvað í höndunum. Nú gafst mér
það tækifæri.“ n
Svefnvana
vilja skyndibita
Þeir þreyttu og svefnvana eru
sólgnari í skyndibita en þeir út
hvíldu.
Svefnleysið færir líkamann
í eins konar viðbragðsstöðu og
hormónaframleiðsla líkamans
skipar honum að safna forða.
Lítil rannsókn, birt í heilsu
tímaritinu Nature Communi
cations, rannsakaði virkni heila
23 ungmenna þegar þau horfðu á
skyndibitafæði á borð við kleinu
hringi og pítsur annars vegar og
heilsufæði á borð við epli og gul
rætur hins vegar. Eftir því sem
ungmennin sváfu minna, því
meiri viðbrögð sýndu þau þegar
þeim var sýnt skyndibitafæðið.
Jurtirnar í skjól
n Óþarfi að henda þeim á haustin n Má þurrka, frysta og setja í olíu
N
ú er tekið að hausta og
senn líður að því að krydd
jurtaáhugafólk neyðist til
að taka ferskar kryddjurtir
úr gluggum, görðum og
af svölum. Það er algjör óþarfi að
henda ferskum kryddjurtum því
þær má meðhöndla á nokkra mis
munandi vegu og geyma í nokkra
mánuði.
Undirbúningur
Ferskar kryddjurtir má geyma á
nokkra vegu og fer það að hluta
til eftir gerð jurtanna. Byrjið á því
að klippa jurtirnar vandlega með
skærum og safna þeim saman. Næst
skulið þið skola þær vel með vatni
og þurrka svo varlega með bréfa
þurrku eða með því að hrista vatnið
af. Þá er bara að velja úr einhverja af
þeim aðferðum sem í boði eru.
Þurrkun
Hægt er að hengja
kryddjurtir til
þerris með því
að binda stilk
ana saman ná
lægt endanum.
Æskilegt er að hvert
búnt innihaldi ekki meira en 5 til
10 stilka til að vel lofti um jurtirnar.
Hengið búntið nú upp á þurrum
stað við stofuhita en æskilegt hita
stig til þurrkunar er 20°C. Látið jurt
irnar hanga í eina til þrjár vikur en
athugið ástandið á þeim reglulega
til að sjá hvernig þurrkunin gengur.
Þegar þurrkuninni er lokið eru lauf
in fjarlægð af stilkunum og þau sett
í krukku. Hægt er að mylja þau niður
í krydd eða halda þeim í heilu lagi til
að nota í te eða sem skraut á súpur
svo eitthvað sé nefnt. Kryddjurtirnar
geymast í heilt ár séu þær geymdar í
lofttæmdri krukku.
Frysting
Ekki hentar að frysta allar krydd
jurtir og því er mikilvægt að velja
réttu jurtirnar. Dæmi um kryddjurt
ir sem henta til frystingar eru jurt
ir með mjúk blöð, svo sem basilíka,
fáfnisgras (e. tarragon) og steinselja.
Bæði er hægt að frysta laufin í heilu
lagi eða saxa þau niður áður
en þau eru sett í klakabox,
poka eða annars konar
ílát. Séu jurtirnar sett
ar í klakabox þarf einnig
að setja vatn út í og búa
þannig til kryddjurtaklaka
sem lítið mál er að þýða og
setja svo út í súpur og sósur
svo eitthvað sé nefnt. Æskilegt er
að setja um það bil þriðjung af söx
uðum laufum en tvo þriðju hluta
af vatni. Jurtirnar geymast í allt að
þremur mánuðum með þessum
hætti og henta vel út í súpur og sós
ur svo eitthvað sé nefnt.
Olía
Olía hentar vel til
að geyma ferskar
kryddjurtir, hvort
sem útbúa á
kryddolíu eða ein
faldlega varðveita
bragð jurtanna í olíunni. Ólífuolía
hentar mjög vel en þó má nota nán
ast hvaða olíu sem er. Bæði er
hægt að setja jurtirnar í olíuna
í heilu lagi eða setja eingöngu
laufin eftir að þau hafa verið
tínd af stilkunum. Í kryddolíu
er betra að hafa stilkana líka þar
sem þeir gefa olíunni bæði meira
bragð og fallegra útlit. Hins vegar get
ur hentað betur að halda einungis
laufunum þegar geyma á jurtirnar
sjálfar til betri tíma. Olía af þessu tagi
geymist í allt að sex mánuðum en best
er að geyma hana á köldum stað. n
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Gott að geyma
Nokkrar leiðir eru í boði
við varðveislu ferskra
kryddjurta.
Regnbogarass
Bleiurnar anda vel
og eru skrautlegar
og litríkar.
Kertaglösin
fá nýtt líf
Kerti eru oft keypt til heimilisins
í fallegum glerglösum sem óþarfi
er að fari til spillis. Þau má nota
undir smáblóm eða við borð
haldið á ýmsan máta. Mörgum
finnst vandasamt að þrífa vaxið
úr glösunum. Einföld leið til þess
er að hella sjóðandi heitu vatni í
glösin. Vaxið leysist upp og þegar
vatnið kólnar flýtur það á yfir
borðið og auðveldara er að fjar
lægja það. Að lokum er gott að
væta svamp og hita hann í stutta
stund í örbylgjuofni og strjúka
með svampinum innan úr glas
inu. Endurtakið ef þörf er á. Eftir
þessa meðferð má þvo glasið rétt
eins og annað leirtau.
Ekki klára af
diskinum
Margir foreldrar hafa það fyrir
venju að láta barnið klára allan
þann sem því var skammtaður af
diskinum. Slíkur agi við matar
borðið er hins vegar algjör óþarfi
og getur stuðlað að vondum mat
arvenjum og offitu. Ef börnum er
leyft að borða þar til þau eru södd,
alast þau upp við heilbrigðari
matarvenjur og passlegri matar
skammta. Rannsókn í Journal of
the American Dietic Association
sýnir og sannar að börn eru fær
ari en fullorðnir til að meta eigin
hungurtilfinningu.