Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1944, Page 15
Verzlunarskýrslur 1943
13'
Á yfirlitinu sést, að árið 1943 hefur neyzlan aukizt af kaffi, sykri og
vínföngum. Hins vegar hafa tölurnar lækkað fyrir sterka drykki, öl og
tóbak, en þar er aðgætandi, að innflutningur og framleiðsla af öllurn þess-
um vörum var með langmesta móti næsta ár á undan.
Sykurneyzla (að meðtöldu þvi, sem fer til iðnaðar) liefur verið yfir
40 kg á mann síðustu árin og jafnvel rúml. 48 kg árið 1939. Er það mikið
samanborið við önnur lönd. Árið 1938 var hún minni í flestum löndum
Norðurálfunnar nema Danmörku (51 kg). Á Nýja Sjálandi var hún lika
meiri (51 kg). Árið 1943 var sykurinnflutningur hingað til lands með lang-
mesta móti, 47% kg á mann.
Neyzla af kaffi og kaffibæti liefur um mörg undanfarin ár numið
um 6% kg á mann að meðaltali. 1942 var hún þó ekki nærri svo mikil, en
árið 1943 var lnin aftur á móti miklu meiri, og er ekki ólíklegt, að þar með
séu nokkrar ónotáðar birgðir til næsta árs. Kaffiinnflutningur og innlend
framleiðsla á kaffiba'li hefur verið svo sem hér segir árin 1939—1943:
Kaffi óbrennt Kaffi brennt Kaffibætir Samtals
1939 . .. » hdr. Itg 2 471 hdr. kg 7 425 hdr. kg
1940 .. . . 4 828 - — ■)) 2164 — — 6 992 — —
1941 .... fi 232 — — » 2 933 - — 9165 — —
1942 .... 2 538 — — 2 — — 3 262 — — 5 802 — —
1943 .... .. 13 737 — — 3 — — 1 980 — — 15 720 — —
Innflutningur á kafl'ihæti er nú alveg horfinn, en innlend fram-
leiðsla komin í staðinn. Líka liefur innlend kaffibrennsla tekið fyrir inn-
flutning á brenndu kaffi.
Innflutningur á tóhaki hefur lítið vaxið á undanförnum árum, og
samanborið við mannfjölda hefur tóbaksneyzla hér um bil staðið í stað.
Innflutningur á öli er fyrir löngu alveg horfinn, en í staðinn komin
innlend framleiðsla. Var hún í nokkur ár um 3000 hl. á ári, en hækkaði
svo 1940 upp í rúml. 7800 hl. og aftur 1941 upp í 15 800 hl og 1942 upp í
17 000 hl. 1943 lækkaði hún aftur niður í 16 400 hl. I>ar af voru rúml. 1900
hl. áfengt öl, sem aðeins er bruggað fyrir hið erlenda setulið. En aukningin
á óáfenga ölinu mun einnig að miklu leyti stafa af hérveru setuliðsins.
Vínandi og vinföng eru einungis flutt inn af Áfengisverzlun ríkisins.
\Tar þessi innflutningur mjög lítill fvrst eftir að aðflutningsbannið komst
á, en síðan jókst hann töluvert. Hækkun á vinfangainnflutningnum
1922 og árin þar á eftir stafar af undanþágunni, sem veitt var frá bann-
lögunum fyrir létt vín (Spánarvín). Hinsvegar stafar hækkunin á sterku
vínunum árið 1935 frá afnámi bannlaganna frá byrjun þess árs, en inn-
flutningur léttra vína minnkar þá aftur á móti mikið. Árið 1943 var inn-
flutningur sterkra drykkja minni heldur en árið á undan, en aftur á móti
með mesta móti af léttum vínum.
Af efnivörum til landbúnaðarframleiðslu, sem falla
undir 2. flokk í 2. yfirliti (bls. 9*), eru þessar vörur helztar.