Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1944, Page 136
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þati
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 krónur um árið.
Á hverju ári kemur út eitt hefti af verzlunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og flskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt íleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um itarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
III. Arbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út i einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalín. Komin eru út 16 hefti, og er í þeim allt
manntalið frá 1703, en í viðauka er birt manntal í 3 sýslum frá
árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti hans.