Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1956, Blaðsíða 13
Verzlunarskýrslur 1954
11*
breytingar verðsins og vörumagnsins síðan 1935 (verð- og vörumagn
1935 = 100). Eru allar vörur, sem taldar eru í verzlunarskýrslunum, einnig reikn-
aðar með verðinu fyrir árið á undan, og þau hlutföll, sem fást með því, notuð til
þess að tengja árið við vísitölu undangengins árs. Nánari vitneskja fæst um vísi-
tölur þessar með því að fletta upp í Verzlunarskýrslum 1924, bls. 7*, og Verzlunar-
skýrslum 1936, bls. 6 . Verðvísitölur Vörumagnavísitölur
indices of prices indices of auantum
Innílutt Útfiutt Innfiutt Útflutt
imp. exp. imp. exp.
1935 100 100 100 100
1936 102 97 93 107
1937 113 110 103 112
1938 109 103 102 119
1939 126 133 112 111
1940 185 219 88 127
1941 209 310 138 127
1942 258 329 211 127
1943 297 282 186 177
1944 291 289 187 188
1945 269 294 261 194
1946 273 332 357 187
1947 308 362 370 172
1948 346 370 291 228
1949 345 345 271 180
1950 574 511 208 173
1951 741 628 274 246
1952 758 645 264 209
1953 697 638 350 237
1954 670 637 371 284
Tveir aftari dálkarnir sýna breytingar á inn- og útflutningsmagni.
Árið 1953 nam innflutningurinn 1 110 436 þús. kr. og útflutningurinn 700 692 þús.
kr., þegar dregnar liafa verið frá 5 722 þús. kr., sem haldið er utan við umreikn-
inginn. Með sama meðalverði 1954 og var 1953 hefðu tölurnar fyrir 1954 orðið sem
hér segir: Innflutningur 1 176 379 þús. kr. og útflutningur 838 492 þús. kr., að við-
bættum 9 121 þús. kr. á útflutninginn, sem ekki er hægt að umreikna með verðinu
árið áður og þar af leiðandi haldið utan við. Verðmunurinn stafar af breyttu vöru-
magni og hefir innflutningsvörumagnið samkvæmt þessu aukizt um 5,9% frá 1953
til 1954, og útflutningsvörumagnið hefur á sama tíma aukizt um 19,7%.
Tveir fremri dálkar yfirlitsins hér að ofan sýna verðbreytingar. Reiknað
með verðinu 1953 hefði innflutningurinn 1954, eins og áður segir, numið 1 176 379
þús. kr., en útflutningurinn 838 492 þús. kr., með frádrættinum. En tilsvarandi
raunverulegar tölur eru: Innflutningur 1 130 488 þús. kr. og útflutningur 836 791
þús. kr., og hefur þá útflutningurinn verið lækkaður um 9 121 þús. kr. af ástæðu,
sem fyrr greinir. Frá 1953 til 1954 hefir því, ef hvort árið um sig er tekið sem heild,
orðið 3,9% verðlækkun á innflutningsvörum og 0,2% verðlækkun á útflutnings-
vörum. Samkvæmt þessu hefur verðhlutfall útfluttrar og innfluttrar vöru batnað
um 3,9%, miðað við árið áður, 1953.
Síðan 1935 liefur þyngd alls innflutnings og útflutnings verið talin
saman. Árin 1935—1950 er þyngd innflutnings í verzlunarskýrslum nettóþyngd,
en frá og með árinu 1951 er liún brúttóþyngd, eins og gerð er grein fyrir í 1. kafla
inngangsins. í töflunni hér á eftir liefur því innflutningurinn 1951—1954 verið
umreiknaður til nettóþyngdar, til þess að samanburður fáist við fyrri ár. Er hér
um að ræða áætlaða tölu. — í skýrslum innflytjenda eru ýmsar vörur ekki gefnar