Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1959, Síða 9
Verzlunarskýrslur 1958
7
samningu greiðslujafnaðarskýrslna o. fl. í öllum öðrum töflum er innflutningurinn
talinn á cif-verði einu, en í þeim kafla inngangsins, sem fjallar sérstaklega um
innfluttar vörur, verður vikið nánar að fob-verðmæti innflutningsins og mismun
þess og cif-verðmætisins.
Innflutningsskýrslurnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda, sem Hag-
stofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar eru til landsins,
er þó öðruvísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær Hagstofan yfirleitt ekki
frá tollyfirvöldunum, lieldur beint frá hlutaðeigandi innflytjendum. Upplýsa þeir,
hver sé byggingarkostnaður eða kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst
áætlaður heimflutningskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem reiknað er
með í verzlunarskýrslum. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið
tekinn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. a. s. með innflutningi júnímánaðar og desember-
mánaðar, og sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainnflutninginn. — í kaflanum
um innfluttar vörur síðar í innganginum er gerð nánari grein fyrir skipainnflutn-
ingnum á árinu 1958. — Útflutt skip hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárs-
lega. í kaflanum um útfluttar vörur síðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu
skipa úr landi 1958.
Sérstök athygli er vakin á því, að yfirfærslugjald samkvæmt
lögum nr. 33/1958, um útflutningssjóð o. f 1., er ekki meðtalið í
cif-verði eins og það er tekið í verzlunarskýrslur. Hins vegar er það
meðtalið í cif-verði, þegar verðtollur er reiknaður, og sömuleiðis er það ásamt tolli
meðtahð í þeim gjaldstofni, sem innflutningsgjald og söluskattur á innfluttum
vörum er reiknað af. 16% yfirfærslugjald samkvæmt lögum nr. 86/1956, um út-
flutningssjóð o. fl., var ekki talið í cif-verði við útreikning verðtolls (og söluskatts),
en það var hins vegar innifahð í þeim gjaldstofni, sem innflutningsgjald var reikn-
að af. — Uppbætur á útfluttar afurðir eru ekki taldar í fob-verði
þeirra og hggja til þess ýmsar ástæður, surnar þeirra tæknilegs eðhs. Af þeim
sökum var ekld unnt að telja yfirfærslugjaldið með í cif-verði innfluttra vara í
verzlunarskýrslum, þar sem reikna verður verðmæti innfiutnings og útflutnings
á einu og sama gengi.
Útflutningurinn er í verzlunarskjnslum talinn á söluverði afurða með
umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst fara frá. Er hér
yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureilcningi útflytjanda. Sé um að ræða
greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það lieimilað í útflutningsleyfinu, er upp-
hæð þeirra dregin frá, til þess að lireint fob-verð komi fram. — Fob-verð vöru,
sem seld er úr landi með cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verð-
mætinu flutningskostnað og tryggingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. —
Nettóverðið til útflytjandans er fob-verðið samkvæmt verzlunarskýrslum að frá-
dregnum útflutningsgjöldum. Frá og með 5. júní 1957 hefur útflutningsgjald
af öhum útfluttum sjávarafurðum verið 2%% af fob-verði, og skiptist það þannig,
að 74% renna tU Fiskveiðasjóðs, 4% til Rannsóknarstofnunar sjávarútvegsins, 4%
tU Landssambands ísl. útvegsmanna og 18% til Fiskimálasjóðs. Samkvæmt 10.
gr. laga nr. 33/1958, um útflutningssjóð o. fl., var útflutningsgjald innheimt med
65% álagi frá 1. júní s. á. Álag þetta rennur að 11/13 hlutum til Fiskveiðasjóðs,
að 1/3 hluta tU Fiskimálasjóðs og að 1/13 hluta til smíði hafrannsóknarskips. Út-
flutningsleyfisgjald er 1 °/00 af öUum vörum, og 2% tU Síldarútvegsnefndar af út-
fluttri síld.
Frá 1. júh 1949 hefur, auk ofangreinds, verið tekið %% hlutatryggingasjóðs-
gjald (sbr. lög nr. 48/1949) af öUum útfluttum sjávarafurðum, öðrum en þeim, sem