Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1959, Page 16
14*
Verzlunarskýrslur 1958
1. yfirlit. Verð innflutnings og útflutnings eftir mánuðum.
Value of imports and exports, by months.
Innflutningur importa Útflutningur exporta
1956 1957 1958 1956 1957 1958
months 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
Janúar 92 670 42 001 81 362 57 412 65 500 51 819
Febrúar 88 469 75 759 96 039 82 781 100 156 58 041
Marz 78 215 90 755 128 352 74 400 69 526 83 496
Apríl 96 341 105 924 147 575 96 614 72 718 70 787
Maí 103 936 158 992 126 692 61 679 99 607 99 172
Júní 135 324 139 493 95 763 86 399 58 560 104 229
júií 145 082 93 114 89 012 62 372 42 521 62 655
Ágúst 96 209 76 858 88 397 80 557 104 566 98 050
Septembcr 88 029 132 639 118 386 81 201 87 553 129 933
Október 126 571 104 935 115 935 113 830 73 547 105 946
Nóvember 130 015 111 304 99 398 121 608 127 157 104 107
Desember 287 680 229 931 210 681 112 659 86 191 101 962
Samtals 1 468 541 1361 705 1 397 592 1031 512 987 602 1070 197
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1956—
1958 samkvæmt verzlunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánað-
arlega skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli) eftir vörudeildum.
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV A (bls. 12—71) sýnir, hve mikið hefur verið flutt til landsins af
hverri vörutegund árið 1958. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir vöruskrá Sameinuðu
þjóðanna. Fremst í innganginum er gerð nánari grein fyrir þessari vöruskrá og
notkun hennar í verzlunarskýrslum, og vísast til þess. í töflum I og II (bls. 1—3)
er yfirlit um skiptingu vöruskrárinnar.
Þyngd hverrar einstakrar vörutegundar í töflu IV A er brúttóþyngd, og
er í því sambandi vísað til 1. kafla inngangsins, þar sem gerð er grein fyrir ástæð-
unum fyrir því, að frá og með árinu 1951 er magn innflutningsins gefið upp með
brúttóþyngd. Annar töludálkur töflu IV A sýnir hundraðshluta nettóþyngdar af
brúttóþyngd fyrir hverja vörutegund í tollskránni, samkvæmt því sem þetta
hlutfall reyndist á árinu 1950, sjá bls. 9*.
Næstsíðasti dálkur töflu IV A sýnir fob-verðmæti liverrar innfluttrar
vörutegundar. Mismunur cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar
frá útflutningsstaðnum ásamt vátryggingariðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri
útflutningshöfn til íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld
með járnbrautum eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem
vöru er síðast útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl.
Fer þetta eftir því, við livaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað