Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1967, Qupperneq 8
6*
Verzlunankýrslur 1966
skamms tíma var ekki um að ræða fullt samræmi milli Briissel-skrárinnar
og vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna, þannig að hvert vörunúmer
i annarri skránni ætti sér „mótnúmer" með nákvæmlega sama innihaldi
í hinni. Dró þetta úr notagildi skrárinnar og hagskýrslugerð á þessu sviði
torveldaðist, en þetta var lagfært, með því að bætt var áður nefndum
rúmlega 200 undirliðum við Brussel-skrána, jafnframt því sem ýmsar
breytingar voru gerðar á tölfræðilegu vöruskránni. Komust þessar tvær
skrár þar með í fullt samræmi hvor við aðra.
í Briissel-skránni eru 1319 vörunúmer að meðtöldum hinum rúmlega
200 nýtilkomnu undirliðum. í hinni endurskoðuðu tölfræðilegu skrá
(Standard International Trade Classification, Revised, sjá bókina Stati-
stical Papers, series M. No. 34, sem gefin er út af Sameinuðu þjóðunum,
New York 1961) eru 1312 vörunúmer, eða 7 færri en i Brússel-skránni.
Þessi munur stafar af því, að númer með gulli á mismunandi vinnslu-
stigum eru ekki í tölfræðilegu vöruskránni, þar sem gull er ekki talið
eiga heima í henni. I íslenzku tollskránni eru nú um 2000 vörunúmer,
eða tæplega 800 fleiri en í Brussel-skránni. Þessi viðbót stafar af skipt-
ingu á sumum númerum alþjóðlegu skrárinnar.
Hin endurskoðaða vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna er þannig
uppbyggð: 1 625 undirflokkum („subgroups“, táknaðir xxx.x) á hver vara
i milliríkjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 278 skiptir
þannig að 944 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við
625 -f- 278 númer, og verður heildartala vörunúmera þá 1312, eins og
áður segir. Hinir 625 undirflokkar skiptast á 177 vöruflokka („groups“,
táknaðir xxx), og þeir ganga upp í 56 vörudeildir („divisions“, táknaðar
xx), sem að lokum mynda vörubálka („sections", táknaðir x).
Verzlunarskýrslum fyrir árið 1966 er hagað á sömu lund og Verzl-
unarskýrslum 1965.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er i tollskrárröð, en aðaltafla út-
flutnings, tafla V, í númeraröð hinnar endurskoðuðu vöruskrár hag-
stofu Sameinuðu þjóðanna, með ýtarlegri sundurgreiningu einstakra
liða miðað við íslenzkar aðstæður. En fyrir hvert sundurliðað vöru-
númer í töflum þessum er innflutningi og útflutningi skipt á lönd. —
Töflur I—II og yfirlit nr. 2 og 4 hér í inngangi eru samdráttartöflur og
fylgja þar af leiðandi flokkun hinnar tölfræðilegu vöruskrár hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, sem er miðuð við þarfir hagskýrslugerðar.
Varðandi form og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og
útflutnings (V) vísast að öðru leyti til skýringa í upphafi hvorrar töflu.
Einkum er vísað til liða 3—5 í skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í Verzl-
unarskýrslum eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutnings-
landinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er
affermd á ákvörðunarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og
vátryggingu. Siðan í Verzlunarskýrslum 1951 hefur innflutningurinn