Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Page 8
6*
Verslunarskýrslur 1982
Samhliða aukinni vörugreiningu í hinni nýendurskoðuðu vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, var vöruflokkun hennar breytt allmikið. Miðað við flokkun
ávörudeildastigi komu vörudeildir 71—79 (sjámeðal annars töflu I ábls. 2) ístað
vörudeilda 71—73, og vörudeild 86 var lögð niður. í stað hennar komu vöru-
deildir 87 og 88. Þessi breytta flokkun vörutegunda er tekin í innflutningsskýrslur
frá ársbyrjun 1977. Allt var óbreytt í meginatriðum upp að vörudeild 71, en þar á
eftir var, eins og áður segir, um að ræða breytingar, þó ekki á vörudeildum
81—85, 89 og 9—.
Frá ársbyrjun 1980 er kísiljárn í númeri 85.10.00 í flokkunarskrá útflutnings
(var í nr. 89.58.50 árið 1979), en sement,sem áður var í 85.10.00, flystí 89.55.20.
Enginn útflutningur hefur verið á sementi síðan árið 1969.
Vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna er þannig uppbyggð eftir aðra endur-
skoðun hennar: í 786 undirfl. („subgroups", táknaðir xxx.x) á hver vara í milli-
ríkjaviðskiptum sinn stað. Af þessum undirflokkum eru 435 skiptir þannig að
1 573 númer („subsidiary headings“, táknuð xxx.xx) bætast við 786+435 númer,
og verður heildartala vörunúmera þá 1 924. Hinir 786 undirflokkar skiptast á
233 vöruflokka („groups“, táknaðir xxx), og þeir ganga upp í 63 vörudeildír
(„divisions", táknaðar xx), sem að lokum mynda 10 vörubálka („sections“,
táknaðir x).
Gjaldmiðilsbreyting o. fl. Með lögum nr. 35 29. maí 1979 voru sett lög um
breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils. Þar var ákveðið, að frá og með 1. janúar
1981 skyldi verðgildi krónunnar hundraðfaldað, þ. e. 100 garnlar krónur skyldu
verða jafngildi einnar nýrrar krónu. Reglugerð um gjaldmiðilsbreytinguna var
sett, nr. 253 13 maí 1980. Eru þar ýtarleg ákvæði um verðgildisbreytingu, gjald-
miðilsskipti o. s. frv. í desember 1980 blaði mánaðarritsins Hagtölur mánaðarins,
sem Seðlabankinn gefur út, er greinargóð frásögn um gjaldmiðilsbreytinguna eins
og hún horfði við áður en hún kom til framkvæmda. Vísast til þess, sem þar segir.
— Vegna gjaldmiðilsbreytingarinnar l.janúar 1981 eru, frá og með Verslunar-
skýrslum 1981, allar fjárhæðir í nýjum krónum, og þar sem birtar eru tölur
tilheyrandi fyrri árum (aðallega í inngangi) hefur öllum verðmætistölum verið
breytt í nýjar krónur, nema að hluta til í yfirlitum á bls. 11* og 36*.
Frá og með Verslunarskýrslum 1982 eru lönd ekki sérgreind í töflum IV og V,
nema innflutningur frá þeim eða útflutningur til þeirra nemi minnst 15 þús. kr.
Þetta mark var áður við 10 þús. kr. Aðfrá töldu þessu eru Verslunarskýrslur 1982
með alveg sömu tilhögun og Verslunarskýrslur undanfarins árs.
Aðaltafla innflutnings, tafla IV, er í tollskrárröð. Aðaltafla útflutnings, tafla V,
var frá og með Verslunarskýrslum 1970 sett í röð nýrrar vöruskrár Hagstofunnar
fyrir útflutning, sem tekin var í notkun í ársbyrjun 1970. Töflu III var breytt til
samræmis við þetta, og eru því útfluttar vörur í henni í sömu röð og í töflu V, en
saman dregnar, þannig að verðmætistölur svara til 2ja fyrstu stafa hinnar 6 stafa
tákntölu hvers vöruliðs í vöruskrá útflutnings. Hér vísast að öðru leyti til liðs 3 í
skýringum við töflu V, á bls. 240.
Varðandi form og uppsetningu á aðaltöflum innflutnings (IV) og útflutnings
(V) vísast að öðru leyti til skýringa í upphafi hvorrar töflu. Einkum er vísað til liða
3—5 í skýringum við töflu IV.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að 1951 var innflutningurinn í verslunarskýrslum
eingöngu talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu (fob-verð), að
viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er affermd á ákvörðunarstað. Er hér