Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Qupperneq 12
10*
Verslunarskýrslur 1982
í árslok 1982 var skráð gengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri sem hér segir
(í kr. á einingu):
Bandaríkjadollar ...........
Sterlingspund ..............
Kanadadollar ...............
Dönsk króna ................
Norsk króna ................
Sænsk króna ................
Finnskt mark ...............
Franskur franki ............
Belgískur franki ...........
Svissneskur franki .........
Gyllini ....................
Vestur-þýskt mark ..........
Líra .......................
Austurrískur schilling .....
Escudo .....................
Peseti .....................
Yen ........................
írskt pund .................
SDR (sérstök dráttarréttindi)
Kaup Sala
16,600 16,650
26,751 26,831
13,469 13,509
1,9791 1,9851
2,3483 2,3554
2,2685 2,2754
3,1374 3,1469
2,4620 2,4694
0,3547 0,3557
8,3104 8,3354
6,3214 6,3404
6,9836 7,0046
0,01212 0,01215
0,9925 0,9955
0,1844 0,1850
0,1322 0,1326
0,07059 0,07081
23,153 23,223
18,3116 18,3667
Dollargengið var eins og áður segir 103,4% hærra í árslok 1982 en í árslok
1981, en gengi eftirtalinna gjaldmiðla hærra sem hér segir: Sterlingspunds 71,4%,
danskrar krónu 77,4%, norskrar krónu 67,1%, sænskrar krónu 54,0%, sviss-
nesks franka 83,0% og vestur-þýsks marks 92,3%. Hér kemur fram, að gengi
dollars hækkaði á árinu 1982 gagnvart öllum þessum gjaldmiðlum. Hátt og
hækkandi gengi dollars 1982 bætti afkomu útflutningsframleiðslu fyrir Banda-
ríkjamarkað og stöðu þjóðarbúsins út á við, en leiddi jafnframt til versnandi
samkeppnisaðstöðu á evrópskum mörkuðum vegna lækkandi gengis á viðkom-
andi gjaldmiðlum.
Vegna látlausra breytinga á skráðu gengi hefur sá háttur verið hafður á síðan í
ársbyrjun 1979 (sjá auglýsingu um tollafgreiðslugengi, nr. 427 8/12 1978), að
sölugengi það, sem skráð er við opnun banka þann 28. hvers mánaðar gildir við
ákvörðun tollverðs innfluttrar vöru næsta almanaksmánuð þar á eftir. Þegar
veruleg breyting verður á gengi íslenskrar krónu gagnvart erlendri mynt, skal þó
við tollafgreiðslu strax á eftir miða við nýja gengið. — Útflutningstölur verslun-
arskýrslna eru sem áður miðaðar við kaupgengi á brottfarardegi skips eða flugvél-
ar. Ef útflutningsskýrsla er afhent viðkomandi embætti fyrir brottfarardag út-
flutningsfars, er það þó kaupgengi dagsetningar útflutningsskýrslu, sem hér gildir.