Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Page 22
20*
Verslunarskýrslur 1982
2. yfirlit. (frh.). Sundurgreining á cif-verði innflutnings 1982, eftir vörudeildum.
«g u O -1 l! «g U
CQ o u. C Mg - SfS B 5 Z h U, U
1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
82 Húsgögn og hlutar til þeirra 228 805 2 693 37 753 269 251
83 Ferðabúnaður, handtöskur o. þ. h 25 280 277 2 145 27 702
84 Fatnaður, annar en skófatnaður 465 718 4 963 25 624 496 305
85 Skófatnaður 120 203 1 322 10 629 132 154
87 Vísinda- og mælitaski, ót. a 132 607 1 390 5 050 139 047
88 Ljósmyndunarvörur, sjóntæki, ót. a., úr, klukkur .... 100 369 1 064 4 933 106 366
89 Ýmsar iðnaðarvörur, ót. a 367 705 4 185 46 585 418 475
9 Vörur og viðskipti ekki í öðrum vörudeildum 12 576 135 748 13 459
Samtals 10 298 963 113 205 1 232 584 11 644 752
Alls án skipa og flugvéla 9 989 922 113 205 1 232 584 11 335 711
* Heiti vörudeildar stytt, sjá fullan texta á bls. 22* í inngangi.
vínandainnflutningurinn er ekki meðtalinn, enda er sá hluti hans, sem farið hefir
til framleiðslu sterkra drykkja hjá Áfengisversluninni, talinn í sölu hennar á
brenndum drykkjum. Þó að eitthvað af vínandainnflutningi hennar kunni að hafa
farið til neyslu þar fram yfir, er ekki reiknað með því í töflunni, þar sem ógerlegt er
að áætla, hversu mikið það magn muni vera. Hins vegar má gera ráð fyrir, að það
sé mjög lítið hlutfallslega. — Innflutningur vínanda síðan 1935 er sýndur í
töflunni, en hafður í sviga, þar sem hann er ekki með í neyslunni. — Það skal tekið
fram, að áfengi (þar með áfengt öl), sem áhafnir skipa og flugvéla og farþegar frá
útlöndum taka með sér inn í landið, (síðan á hausti 1979 hafa farþegar getað haft
með sér áfengt öl inn í landið), er ekki talið í þeim tölum, sem hér eru birtar, en þar
mun vera um að ræða mikið magn. Þetta ásamt öðru, sem hér kemur til greina,
gerir það að verkum, að tölur 3. yfirlits um áfengisneysluna eru ótraustar, einkum
seinni árin. — Mannfjöldatalan, sem notuð er til þess að finna neysluna á mann
hvert ár, er meðaltal fólksfjölda í ársbyrjun og árslok. Fólkstala fyrir 1982, sem
við er miðað, er 233 900.
Kaffibœtir („brennt kaffilíki"), sem alla tíð hafði verið talið með kaffi í þessu
yfirliti, hvarf þaðan frá og með 1980. Framleiðslu þessarar vöru var hætt hér á
landi 1979, eftir að hún hafði dregist mjög saman á síðari árum (árið 1950 nam
hluti kaffibætis af kaffineyslunni 22%, en aðeins 0,2% árið 1979). Neysla kaffi-
extrakts o. þ. h. hefur hins vegar aukist mjög undanfarin ár, og er hún frá og með
árinu 1980 talin með „almennu“ kaffi í 3. yfirliti.
4. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og vörudeildum. Fyrr í
þessum kafla er gerð grein fyrir skiptingu innflutnings skipa og flugvéla á júní og
desember, en hann er eins og áður segir aðeins tekinn á skýrslu tvisvar á ári.
í 5. yfirliti er sýnd sérstök skipting innflutnings 1982 eftir notkun vara og
landaflokkum. Breytt skipan vöruflokkunar og landssvæðaskiptingar, sem tekin
var upp frá og með Verslunarskýrslum 1970, stóð óröskuð til ársloka 1976, en frá
og með 1977 hafi orðið nokkrar tilfærslur milli vöruflokka og smábreytingar á