Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Page 31
Verslunarskýrslur 1982
29*
átti sér stað í júlí 1979, til Vestur-Þýskalands. Síðari ofn verksmiðjunnar var
tekinn til starfrækslu í september 1980. Árleg framleiðslugeta hvors ofns er
25 000 tonn af kísiljárni (ferrosilikoni). Tvo síðustu mánuði 1980 var annar ofn
verksmiðjunnar ekki starfræktur vegna orkuskorts. Á árinu 1981 var af sömu
ástæðu aðeins annar ofninn starfrækur í janúar, hvorugur í febrúar, mars og
framan af apríl, og annar ofninn frá því í október og til ársloka. Svo hélst til
febrúarloka 1982. Síðan voru báðir ofnarnir starfræktir fram í október, en þar á
eftir einn ofn til ársloka, vegna markaðstregðu. —Frá og með 1977 er innflutn-
ingur til járnblendiverksmiðjunnar gerður upp mánaðarlega á sama hátt og það,
sem flutt er inn af Landsvirkjun, íslenska álfélaginu og Kröfluvirkjun. Innflutn-
ingur til járnblendiverksmiðjunnar 1982 nam 128,2 millj. kr., og mun hann allur
hafa verið til rekstrar. — Sömu eða svipaðar reglur gilda lögum samkvæmt um
niðurfellingu gjalda á innflutningi til íslenska járnblendifélagsins og gilda um það,
sem flutt er inn af fyrrnefndum 3 aðilum, sem hafa sérstöðu í þessu sambandi.
Hér fer á eftir skýrsla um innflutning 1982 til Landsvirkjunar, Kröfluvirkjunar
og íslenska járnblendifélagsins, og er hann greindur á vörudeildir og eftir löndum.
Fyrst er, fyrir hvern aðila um sig, tilgreind nettóþyngd innflutnings í tonnum,
síðan fob-verðmæti og loks cif-verðmæti, hvort tveggja í millj. kr. Aftan við
„önnur Iönd“ er hverju sinni tilgreind tala þeirra, fyrst fyrir Landsvirkjun, síðan
fyrir Kröfluvirkjun og loks fyrir fslenska járnblendifélagið.
Aftan við hið sameiginlega yfirlit Landsvirkjunar, Kröfluvirkjunar og íslenska
járnblendifélagsins er sundurgreining á heildarinnflutningi til íslenska álfélagsins
1982. Er sú skýrsla sett upp á sama hátt og skýrslan næst á undan, nema fjárhæðir
eru í þús. kr.