Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Blaðsíða 44
42*
Verslunarskýrslur 1982
5. Viðskipti við einstök lönd.
External trade by countries.
í töflum II og IV er innflutningurinn sundurgreindur á lönd, í fyrr nefndu
töflunni eftir rúmlega 230 vöruflokkum núgildandi vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna, en í síðar nefndu töflunni eftir hverju einstöku tollskrárnúmeri.
í töflum III og V er útflutningurinn sundurgreindur á lönd, í fyrrnefndu töflunni
nokkuð samandreginn, en í síðar nefndu töflunni eftir dýpstu sundurgreiningu
útfluttra vara.
í 8. yfirliti í inngangi er sýnt, hvernig verðmæti innfluttra og útfluttra vara hefur
skipst síðustu þrjú árin eftir löndum. Aftari dálkar yfirlitsins sýna þátt hvers lands
hlutfallslega í utanríkisverslun íslands samkvæmt verslunarskýrslum.
Það er framleiðsluland, ekki innkaupsland, sem tekið er í innflutningsskýrslur.
Oftast fer þetta saman. Á aðflutningsskýrslu skal tilgreina bæði framleiðsluland
og innkaupsland. Vanti hið fyrr nefnda, er innkaupslandið tekið sem fram-
leiðsluland, nema ástæða sé til að ætla, að varan sé ekki framleidd í innkaups-
landinu. Svo er oft um t. d. ávexti, og þungavöru, svo sem olíu, bensín, salt o. fl. Er
þá reynt að afla upplýsinga um framleiðsluland, ef ekki er þegar vitað um það.
Hins vegar kveður óhjákvæmilega eitthvað að því, að á skýrslu sé tekið inn-
kaupsland í stað framleiðslulands. — Á hliðstæðan hátt er það notkunarland
útfluttrar vöru, en ekki söluland, sem tekið er í útflutningsskýrslur. Eitthvað er um
það, að notkunarland vöru sé annað en landið, þar sem kaupandi er. Komi
notkunarland ekki fram á útflutningsskýrslu, er sölulandið tekið á skýrslu, nema
ástæða sé til að ætla, að endanlegt móttökuland sé annað en sölulandið. Er þá
reynt að bæta úr þessu. Fyrir kemur — eins og við er að búast — að á skýrslu sé
tekið söluland í stað notkunarlands, enda er útflytjanda sjálfum stundum ókunn-
ugt um notkunarland, og auk þess kemur hér sitt hvað annað til.
6. Viðskipti við útiönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External trade by places of customs clearance.
Töflu VII á bls. 256 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru eftir
tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þessarar töflu eru
að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er að bæta úr. T. d.
kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vörusendingar séu tollafgreiddar —
og þar með taldar fluttar inn — í öðru tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er
búsettur. Eins og vænta má, er það aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru
vörur, sem fluttar eru inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um skiptingu
útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið á reiki, hvaðan
útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því, að sölusambönd, sem
hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning á sumum helstu útflutnings-
vörunum, þannig að útflutningsvörur utan af landi eru afgreiddar í Reykjavík og
oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eiginn afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðallega ísuð síld
og annar ísvarinn fiskur) var áður fyrr í töflu VII allur talinn fluttur út frá