Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1987, Síða 10
8
Verslunarskýrslur 1986
meðaltals árs 1986. Taxtar vegna útflutnings annars en þess, sem samið er
sérstaklega um, breyttust í samræmi við áðurnefndar breytingar vegna innflutn-
ings. Taxtar vegna stórflutninga, bæði í inn- og útflutningi, héldust að mestu
leyti óbreyttir í erlendri mynt á milli áranna 1985 og 1986. Hér hefur verið getið
um helstu breytingar á farmgjöldum sem urðu hjá Eimskipafélagi íslands á árinu
1986 og stuðst við upplýsingar þess. Gera má ráð fyrir að þróunin hjá öðrum
skipafélögum í millilandasiglingum hafi verið svipuð.
Gengi krótxunnar. Eftir mikla hækkun á gengi Bandaríkjadollars árin 1981-
1984 hefur framvinda gengismála á alþjóðavettvangi einkennst af nær stöðugri
gengislækkun dollars. Gengi dollars var hæst í lok febrúar 1985, en frá þeim tíma
og til desember 1985 lækkaði vegið meðalgengi dollars gagnvart öðrum myntum
um rösklega 18%, samkvæmt útreikningum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Frá
desember 1985 til jafnlengdar 1986 lækkaði gengi dollars enn um 13% og hafði
því alls lækkað um 29% frá því sem það var hæst. Þrátt fyrir þessa lækkun var
dollargengið í árslok 1986 enn um 16% hærra en árið 1980 og raunar svipað og
árið 1972. Samfara gengislækkun dollars hækkaði vegið meðalgengi japansks
yens, þýsks marks og fransks franka á árinu 1986, en meðalgengi sterlingspunds
féll. Á árinu 1986 féll gengi dollars um 26% bæði gagnvart yeni og þýsku marki,
um 15% gagnvart franka og um 2% gagnvart sterlingspundi.
Gengi krónunnar var stöðugra á árinu 1986 en nokkurt ár frá því 1973.
Jafnframt hækkaði gengið gagnvart dollar í fyrsta skipti síðan 1973. Gengi
krónunnar var látið síga nokkuð jafnt yfir árið. Frá upphafi til loka ársins 1986
hækkaði meðalverð erlends gjaldeyris, mælt á viðskiptavog, um 5,8%, en það
svarar til 5,5% lækkunar á meðalgengi krónunnar gagnvart öllum gjaldmiðlum.
Árið 1986 var meðalverð erlends gjaldeyris, mælt á viðskiptavog, 15% hærra en
að meðaltali árið áður. Þetta svarar til þess að gengi krónunnar hafi að meðaltali
verið 13% lægra árið 1986 en árið 1985. Framangreindar tölur eru miðaðar við
meðaltal kaupgengis og sölugengis, en talsverður munur var á breytingum
þessara stærða á árinu 1986. Gengislækkun dollars og sterlingspunds hafði þau
áhrif, að frá upphafi til loka ársins hækkaði meðalverð gjaldeyris, vegið með
hlutdeild landa í vöruútflutningi (kaupgengi) um 4,1%, en meðalverð, vegið
með hlutdeild landa í vöruinnflutningi (sölugengi), hækkaði um 7,4%. Á sama
hátt var meðalverð útflutningsgjaldmiðla árið 1986 12,4% hærra en að meðaltali
1985, en meðalverð innflutningsgjaldmiðla var 17,8% hærra árið 1986 en árið
áður. Á árinu 1986 hækkaði meðalverð innflutningsgjaldmiðla því um nær 5%
meira en meðalverð útflutningsgjaldmiðla og höfðu gengisbreytingar á alþjóða-
vettvangi því óhagstæð áhrif á viðskiptakjör Islendinga. Raungengi krónunnar
hækkaði nokkuð á árinu 1986, enda lækkaði meðalgengi krónunnar mjög lítið
þrátt fyrir að verðbólga innanlands væri talsvert meiri en í helstu viðskiptaríkjum
Islendinga. Samkvæmt áætlunum Seðlabanka Islands hækkaði raungengið, mælt
á kvarða hlutfallslegra verðbreytinga (í erlendri mynt) á landsframleiðslu hér á
landi og í helstu viðskiptaríkjum íslendinga, um 2,2% að meðaltali árið 1986
miðað við árið næsta á undan. Hækkun raungengisins var mest á síðasta
fjórðungi ársins, en þá var það að meðaltali 5% hærra en ári fyrr.
Eftirfarandi tafla sýnir skráð kaupgengi Seðlabankans á erlendum gjaldeyri
eins og það var að meðaltali á árinu 1986 og í árslok 1986 í kr. á einingu auk
hlutfallslegrar hækkunar gengisins frá fyrra ári: (the following table shows
buying rates ofthe Central Bank of Iceland of several major currencies in terms of
ISK, 1986 average in col. 1, end 1986 in col. 3 and percentage changes on the
previous year in col. 2 and 4):