Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1987, Page 14
12
Verslunarskýrslur 1986
Samkvæmt viðskiptakjarauppgjöri Þjóðhagsstofnunar úr verslunarskýrslum
hækkaði cif-verð innfluttrar vöru um 15,6% frá árinu 1985 til ársins 1986.
Verðmæti vöruinnflutnings cif jókst í krónum um 22,1% og að teknu tilliti til
verðbreytinga hefur því innflutningurinn cif aukist að raungildi (þ. e. innflutn-
ingsmagnið) um 5,6% frá 1985 til 1986. Hvað útflutning varðar, jókst
heildarverðmæti hans um 33,2%, útflutningsverð er talið hafa hækkað um
20,8% og útflutningsmagnið er því talið hafa aukist um 10,3%. Sé álútflutningi
sleppt er verðbreytingin talin hafa numið 21,8% og aukning vörumagnsins
10,3%. Á mælikvarða cif-verðs innfluttrar vöru og fob-verðs útfluttrar vöru hafa
viðskiptakjörin við útlönd (þ. e. verðhlutfall útfluttrar og innfluttrar vöru)
batnað um 4,5% á árinu 1986 frá því sem var árið áður. Sé bæði útflutningi og
innflutningi á vegum álverksmiðjunnar sleppt eru viðskiptakjörin hins vegar
talin hafa batnað um 4,7%. Cif-verð innflutnings hækkaði heldur meira en fob-
verð á árinu 1986. Á mælikvarða fob-verðs fyrir bæði útflutning og innflutning
bötnuðu viðskiptakjörin því meira en að framan greinir eða sem nam 5,0% í
heild og 5,3% að viðskiptum álverksmiðjunnar slepptum.
Til frekari upplýsingar eru hér á eftir sýndar verðvísitölur og vörumagnsvísi-
tölur helstu vöruflokka útflutnings og innflutnings á árinu 1986 miðað við árið
áður (verð og magn 1985 = 100).
Innflutningur cif
Neysluvörur og neysluhrávörur...........
Fjárfestingarvörur (án skipa og flugvéla)
Eldsneyti og olíur......................
Hrávörur tilstóriðju ...................
Aðrar rekstrarvörur.....................
Innflutningur alls .....................
Alls án rekstrarvuru til álverksmiðju . . .
Útflutningur fob
Sjávarafurðir alls .....................
Þ.a. afurðir hraðfrystingar ........
Þ.a. afurðir saltfiskverkunar ......
Þ.a. mjöl oglýsi ...................
Landbúnaðarafurðir alls.................
Iðnaðarvörur alls ......................
Þ.a.ál .............................
Þ.a. kísiljárn......................
Þ.a. kísilgúr.......................
Þ.a. aðrar iðnaðarvörur ............
Aðrar vörur ............................
Útflutningur alls.......................
Útflutningur alls án áls ...............
Verð- Vörumagns-
vísitölur vísitulur
124,6 114,1
128,8 95,0
70,0 103,3
105,3 84,5
119,4 103,5
115,6 105,6
116,3 106,9
123,2 111,4
124,2 109,0
144,6 108,7
99,1 105,6
113,6 107,8
113,0 103,8
111,8 110,5
95,7 114,3
129,4 86,3
120,5 94,3
121,4 153,9
120,8 110,3
121,8 110,3
Síðan 1935 hefur þyngd alls innflutnings og útflutnings verið talin saman. Fyrir
1951 var þyngd innflutnings talin nettó, frá ársbyrjun 1951 og til aprílloka 1963
var hún talin brúttó, en síðan 1. maí 1963 aftur nettó. í töflunni hér á eftir hefur
innflutningurinn á tímabilinu 1951 til aprílloka 1963 verið umreiknaður til nettó-
þyngdar, svo að þyngdartölur allra áranna séu sambærilegar. Er sá umreikning-
ur byggður á áætlun að nokkru leyti.