Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1987, Síða 29
Verslunarskýrslur 1986
21'
landbúnaðar, en útfluttar iðnaðarvörur komu ekki sérstaklega fram í eldri
flokkuninni, heldur voru þær taldar í „ýmislegu". Rétt þótti að fá fram hlutdeild
iðnaðar í útflutningi aftur í tímann, og um leið var annar útflutningur fyrir 1970
endurflokkaður til samræmis við þá flokkun, er tók gildi 1970. Pá voru og þessar
tölur látnar ná aftur til ársins 1881. Yfirlitið, þannig breytt, birtist fyrst í
Verslunarskýrslum 1974. Að öðru leyti vísast til skýringa í neðanmálsgrein við 5.
yfirlit. — Flokkun sú á útflutningi, er hér um ræðir, kemur fram í töflu III á bls.
20—27, og þar sést staður hverrar útflutningsvöru í þessari flokkun. Þó er
flokkunin í töflu III önnur að því leyti, að afurðir af hvalveiðum mynda þar ekki
sérflokk, heldur eru þær með sjávarafurðum.
Flokkun þessi á útfluttum vörum eftir uppruna, sem eins og áður segir kom til
framkvæmda frá ársbyrjun 1970, var ákveðin í samráði við landbúnaðarráðu-
neytið, sjávarútvegsráðuneytið og iðnaðarráðuneytið, og auk þess var flokkun
þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér eiga hlut
að máli. Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað með
iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 5. yfirlits um útfluttar afurðir af
fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu árin
1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
í 6. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1986 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Aðalvið-
skiptamenn Islensks markaðar eru flugfarþegar, sem eru á förum úr landi, en
auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti vörur og fái þær sendar í pósti.
Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til útlanda er tekin í útflutnings-
skýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar verið í erlendum gjaldeyri, og
hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. nkr.). 1971: 693, 1972: 722, 1973: 827,
1974: 880, 1975: 1 588, 1976: 2 268, 1977: 3 145, 1978: 6 081, 1979: 8 320, 1980:
8 947, 1981: 12 187, 1982: 25 968, 1983: 58 803, 1984: 82 067, 1985: 128 152 og
1986: 137 203.
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1984—86 fer hér á eftir, í
þús. kr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) eru tilgreint í
sviga:
Grásleppuhrogn niðurlögö (18.31) .........................
Annað lagmeti úr sjávarafurðum ...........................
Reyktur fiskur (18.15,49.29) .............................
Kindakjöt fryst (51.10) ..................................
Ostur (57.10).............................................
Aðrar landbúnaðarafurðir .................................
Reyktur lax (79.41).......................................
Vörur úr loðskinnum (80.10)...............................
Gærur fullsútaðar (81.10) ................................
Ullarteppi (83.10)........................................
Vettlingar, húfur, treflarofl., prjónað (84.10—84.35).....
Peysurprjónaðar (84.40)...................................
Ytri fatnaður, prjónaður og ofinn (84.43—84.50,88.20) ....
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58)............
Prentaðar bækur og bæklingar, póstkort (89.78,89.78.30) ....
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10)......................
Ýmsar vörur ..............................................
1984 1985 1986
1 091 1 708 2 873
612 958 1 612
143 223 375
565 886 1 490
706 1 105 1 859
119 186 313
688 1 077 1 812
2 419 6 951 6 421
761 841 644
4 210 5 880 6 473
8 152 12 280 11 444
26 784 44 446 43 346
21 757 28 600 26 672
2 611 4 214 5 663
1 937 2 993 4 247
1 102 1 641 2 106
8 410 14 163 19 853
82 067 128 152 137 203
Alls