Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1991, Blaðsíða 15
Verslunarskýrslur 1990
13
3. Innfluttar vörur
lmports
Megintöflur innflutnings í verslunarskýrslum eru fjórar.
Tafla I sýnir þyngd og verðmæti innflutnings eftir vöru-
deildum vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna, þ.e. tveggja
stafa SITC-flokkun.
Tafla II sýnir þyngd og verðmæti innflutnings eftir helstu
viðskiptalöndum og eftir vöruflokkum, þ.e. þriggja stafa
SITC-flokkun.
Tafla V sýnir magn og verðmæti innfluttrar vöru eftir
tollskrárnúmerum og löndum. I tengslum við þessa töflu skal
á þaðbent að í verslunarskýrslum 1990 þarf innflutningurfrá
landi að nema minnst 500 þús. kr. til þess að hann sé
ti lgreindur sérstaklega, nema þegar s vo stendur á að einungis
sé um að ræða innflutning frá einu landi. Þá skal þess getið
sem áður var rakið að textar eru ekki birtir við einstök
tollskrámúmer heldur aðeins við hvern kafla tollskrárinnar.
Notendur verslunarskýrslna þurfa því að hafa tollskrá sér við
hlið við lestur á töflu V, en jafnframt er vísað til ágrips af
atriðaorðaskrá tollskrár sem birt er í viðauka. Þar em tilgreind
öll helstu vöruheiti sem fram koma í tollskrá með tilvísunum
til viðeigandi tollskrárnúmera.
Tafla VII sýnir loks innflutning eftir hagrænum flokkum,
þ.e. notkunarflokkum, og markaðssvæðum.
I þessum kafla eru birt ýmis samandregin yfirlit um
vöruinnflutninginn á árinu 1990.1 nokkrum þessara yfirlita
kemur m.a. fram samanburður við fyrri ár. I því sambandi
skal tekið fram að nauðsynlegt hefur reynst að hækka
innflutningstölur ársins 1989. Þetta stafar af misbresti á gerð
aðflutningsskýrslna vegna innflutnings til uppsetningar
stálbræðslu. Innflutningstölur ársins 1989 hafa af þessum
sökum verið hækkaðar um 349,5 millj. kr. cif., 336,3 millj.
kr. fob. en ógerlegt er að skipta þessum íjárhæðum á einstök
tollskrárnúmer.
Fróðlegt er að athuga hvernig hlutfall fob-verðs og cif-
verðs hefur þróast undanfarin ár. Arið 1990 nam heildar-
verðmæti innflutningsins cif 96.620,9 millj. kr. en fob-
verðmæti hans 88.421,1 millj. kr. eða sem nam 91,5% af cif-
verðmætinu. Sambærilegt hlutfall var 90,7% árið 1989. Að
undanskildum skipum og flugvélum, en á þeim fer fob- og
cif-verð að mestu saman, var hlutfall fob-verðmætis af cif-
verðmæti innflutnings 90,7% árið 1990 samanborið við
89,5% árið 1989 og 89,1-89,9% árin 1984-1988.
8. yfirlit sýnir verðmæti innfluttrar vöru eftir mánuðum og
vörudeildum og er þetta hliðstæð tafla og áður hefur birst í
verslunarskýrslum.
9. yfirlit sýnir innflutning á skipum á árinu 1990. Tölur
þessarar töflu eru nokkru hærri en þær sem fram koma í 3.
yfirliti og stafar það af því að hér eru öll skip og allir bátar
meðtaldir en í 3. yfirliti eru bátar undir 10 rúmlestum ekki
meðtaldir. Með skipainnflutningi eru meðtaldar endurbætur
á fiskiskipum erlendis en tölur um þær eru teknar ársfjórð-
ungslega eftir upplýsingum Seðlabankans og byggjast þær á
gögnum um veitt lán til þessara endurbóta.
Sundurliðun á flugvélakaupum er sýnd í 10. yfirliti.
Innflutningur flugvéla var óvenjumikill á árinu 1990 vegna
endurnýjunar á flugflota Flugleiða hf.
Innflutningur varnarliðseigna Imports of surplus goods
from tlie defenceforce. Við lok heimsstyrjaldarinnar var sett
á fót nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir
setuliðanna tveggja, sem þau fluttu ekki úr landi. Nefndin sá
og um sölu slíkra eigna til innlendra aðila. Arið 1951 hófust
sams konar kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins
samkvæmt varnarsamningi Islands og Bandaríkjanna í maí
1951. Síðar hafa hér bæst við kaup á bflum o.fl. fráeinstökum
vamarliðsmönnum, svo og kaup frá íslenskum aðal verktökum
á tækjum o.fl., sem þeir hafa flutt inn tollfrjálst vegna
verkefna fyrir vamarliðið. Þessi kaup eru meðtalin í tölum
11. yfirlits. Vömr þær, sem hér um ræðir, em ekki toll-
afgreiddar eins og aðrar innfluttar vömr, og er þar af leiðandi
ógerlegt að telja þær með innflutningi í verslunarskýrslum.
Afþessumsökumerí I l.yfirlitigerðgreinfyririnnflutningi
varnarliðseigna eftir vöruflokkum árin 1988-1990.
Að lokum skal það tekið fram að innflutningur til
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, til verktakastarfsemi í
þágu þess svo og innflutningur til Fríhafnarinnar á Kefla-
víkurnugvelli telst ekki vera innflutningur til landsins og
kemur því ekki á verslunarskýrslur.