Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Side 10
10 Fermingar 2.–4. mars 2012 Helgarblað
DV ræddi við nokkur fermingarbörn og spurði þau til
að mynda út í ástæður þess að þau ætla að fermast
og hvaða væntingar þau hafi til fermingardagsins.
Hvað þýðir að fermast? „Að játa að þú
trúir á Guð og Jesú og þetta er staðfesting á
skírninni. Ég ætla að láta ferma mig því ég
trúi á Guð og vil staðfesta það.“
Ætlar þú að vera með veislu? „Já, ég á
stóra fjölskyldu og það kemur fullt af fólki.
Svo koma líka tveir eða þrír vinir.“
Ferð þú með ritningarvers í athöfn-
inni? Hvaða ritningarvers? „Já, ég veit
það ekki ennþá, ekki búinn að ákveða mig.“
Ert þú búinn að kaupa föt fyrir
ferminguna? „Já, ég ætla að vera í ís-
lenska þjóðbúningnum.“
Ætlar þú í klippingu? „Já, fer í klippingu
og ætla að vera með stutt hár.“
Ætlar þú að fara í myndatöku? „Ég
veit ekki alveg hvort ég fer í myndatöku.“
Veist þú hvað þú færð í fermingar-
gjöf? „Ég fæ úr frá mömmu og pabba og
síðan örugglega fullt af pening.“
Hvað langar þig mest í? „Mig langar
í græjur í herbergið til að geta hlustað á
eitthvað og haft gaman. Mig langar líka í
myndavél til að taka myndir, sérstaklega í
fermingunni til minningar um daginn.“
Veist þú eitthvað um fermingar for-
eldra þinna? „Nei. Eina sem ég veit er að
mamma man ennþá ritningarversið sitt.“
Hvaða væntingar hefur þú til
fermingardagsins? „Ég held ég muni
fá skrýtna tilfinningu þegar ég fermist. Ég
verð örugglega spenntur og stressaður. Ég
er það ekki núna en verð það þá, ef ég þekki
mig rétt.“
Hlakkar þú til? „Já, ég hlakka til.“
Arndís Þóra Þórisdóttir
Arndís Þóra gengur í Smáraskóla í Kópavogi. Hún hefur æft fót-
bolta síðan hún var 5 ára og körfubolta síðan hún var 9 ára. Fjöl-
skyldan eignaðist hvolp nýlega sem hún hefur gaman af að leika
við og einnig eiga þau einn hest. Tvisvar á ári fara þau saman í
skíðaferð til Akureyrar.
Arndís Þóra fermist í Digraneskirkju þann 5. apríl.
Hvað þýðir að fermast? „Að ganga
í kristna trú og vera tekinn í fullorðinna
manna tölu.“
Af hverju ætlar þú að fermast? „Af
því að ég trúi á Guð.“
Hvar fermist þú og hvenær? „Í
Grensáskirkju þann 15. apríl.“
Ætlar þú að vera með veislu? „Já, í
sal á Sléttuvegi. Það koma um það bil 60
manns og líka nokkrir vinir.“
Ferð þú með ritningarvers í athöfn-
inni? „Já, ég held það en ég veit ekki ennþá
hvaða vers.“
Ert þú búinn að kaupa föt fyrir ferm-
inguna? „Nei, en ég er að fara að kaupa
þau í kvöld. Ég ætla að vera í jakkafötum
með slaufu og axlabönd.“
Ætlar þú í hárgreiðslu? „Nei.“
Ætlar þú að fara í myndatöku? „Já, öll
fjölskyldan verður með á sumum myndum.“
Veist þú hvað þú færð í fermingar-
gjöf? „Nei.“
Hvað langar þig mest í? „Mig langar
mest í tölvu og peninga.“
Veist þú eitthvað um fermingar
foreldra þinna? „Já, það var veisla hjá
báðum. Pabbi fékk steríógræjur og fermdist
í Þýskalandi. Mamma fékk rafmagnsorgel.“
Hvaða væntingar hefur þú til
fermingardagsins? „Að þetta verði
góður dagur.“
Hlakkar þú til? „Já.“
Hvað þýðir að fermast? „Að staðfesta trú og
skírn.“
Af hverju ætlar þú að fermast?„Til þess að stað-
festa að ég er kristin.“
Ætlar þú að vera með veislu? „Ég verð með tvær
veislur. Annars vegar heima í Reykjavík fyrir þá sem búa
hér og hins vegar á Akureyri, því svo margir ættingjar
mínir búa fyrir norðan og austan. Allt í allt hugsa ég að
þetta verði um 100 manns.“
Ferð þú með ritningarvers í athöfninni? „Já,
„Það sem að þér viljið að aðrir gjöri yður, skulu þér og
þeim gjöra“.“
Ert þú búin að kaupa föt fyrir ferminguna? „Já,
ég ætla að vera í bláum rosalega flottum kjól úr Flash.“
Ætlar þú í hárgreiðslu? „Já, hún verður svona pínu
gamaldags, með hnút aftan á hnakkanum og litlum
lifandi hvítum brúðarblómum í, ofboðslega töff.“
Ætlar þú að fara í myndatöku? „Já, er búin að
fara í myndatökuna og öll fjölskyldan var þar líka nema
hálfbróðir og hálfsystir mín.“
Veist þú hvað þú færð í fermingargjöf?„Já, bara
frá pabba og mömmu, en frá þeim fæ ég pening upp í
myndavél sem mig langar svo í.“
Hvað langar þig mest í? „Canon 600d-myndavél,
því að ég hef alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun.“
Veist þú eitthvað um fermingar foreldra
þinna? „Nei, voða lítið, en þá voru látlausari veislur og
minni gjafir.“
Hvaða væntingar hefur þú til fermingar-
dagsins? „Að hann verði sem skemmtilegastur og
eftirminnilegastur.“
Hlakkar þú til? „Nei... jú, auðvitað.“
Hörður Jónsson
Hörður gengur í Árbæjarskóla, er skáti og sundmaður. Hann fermist þann
5. apríl í Árbæjarkirkju.
Hvað þýðir að fermast? „Að staðfesta skírnina.“
Af hverju ætlar þú að fermast? „Af því að ég trúi á guð.“
Ætlar þú að vera með veislu? „Já, við verðum með veislu í sal í Hafnar-
firði og bjóðum um hundrað manns. Það koma einnig vinir.“
Ferð þú með ritningarvers í athöfninni? „Já, „Nú talaði Jesús aftur til
þeirra og sagði: Ég er ljós heimsins. Sá, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri,
heldur hafa ljós lífsins.“ Jóh. 8:12.“
Ert þú búin að kaupa föt fyrir ferminguna? „Já, ég ætla að vera í
hvítum blúndukjól, hvítum sokkabuxum og í bláum hælaskóm.“
Ætlar þú í hárgreiðslu? „Já, mamma ætlar að greiða mér en ég ætla að
hafa einfaldar fastar fléttur sem koma síðan saman í tagl og í taglinu verða
krullur.“
Ætlar þú að fara í myndatöku? „Já og fjölskylda mín verður með í
henni.“
Veist þú hvað þú færð í fermingargjöf? „Nei, ég hef enga hugmynd.“
Hvað langar þig mest í? „Ef ég á að segja alveg eins og er þá hef ég ekki
hugmynd um það og ég er bara opin fyrir öllu.“
Veist þú eitthvað um fermingar foreldra þinna? „Já, mamma
fermdist í Kópavogskirkju og pabbi fermdist í Bústaðakirkju. Fermingarveislan
hennar mömmu var heima hjá langömmu og langafa og henni fannst voða
gaman í veislunni. Hún fékk græjur, basthúsgögn og skíði. Fermingarveislan
hans pabba var heima og honum fannst líka mjög gaman en hann fékk líka
hest, skrifborð, rúm, myndavél og Commodore-tölvu.“
Hvaða væntingar hefur þú til fermingardagsins? „Ég vona að það
verði mjög skemmtilegur dagur með fullt af fólki sem mér þykir vænt um.“
Hlakkar þú til? „Já, mjög svo.“
Bergþóra Björk Jónsdóttir
Bergþóra Björk er í Réttarholtsskóla og æfir handbolta með 5. flokki Víkings.
Hún er einnig að læra á harmonikku og er í skátunum. Bergþóra fermist í Bú-
staðakirkju þann 25. mars.
Sæmundur Sven
Alexandersson
Schepsky
Sæmundur er í Réttarholtsskóla og æfir fót-
bolta með Víkingi. Hann fermist þann 15.
apríl í Grensáskirkju.
Fer ingarbörn
HÁRmót
Trönuhrauni 10 Hafnarfirði
Fermingar-
greiðslur
Tilboð
Ef pantað er
fyrir 9. mars
9.900 kr.
Þórunn Sandholt
sími 698-4530
d
v
e
h
f.
2
0
12
/
d
av
íð
þ
ó
r