Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.10.1975, Blaðsíða 20
18
Hækkun afskriftakostnaðar er m.a. vegna hækkunar á
verðstuðulsfyrningum en á árinu 1973 var veitt heimild til
notkunar á hærri verðhækkunarstuðli en árið áður.
Á sama tíma og laun og launatengd gjöld hafa hækkað um
rúm 33% hefur þessi kostnaöarliður sem hlutfall af vergum
sölutekjum^ hækkað úr 10,3% 1972 í 10,9% 1973 en var 9,6%
1971.
Aörir gjaldaliðir sem hlutfall af vergum sölutekjum
hækka lítið eitt eöa úr 8,2% 1972 í 8,3% 1973, en af þessum
gjaldaliðum breytist hlutfall aöfanga - annarra en vörunotkunar
af vergum sölutekjum óverulega eða úr tæpum 5% 1972 í um 5%
1973.
Hlutfall fjármagnskostnaðar, þ.e.a.s. afskrifta, leigu
og vaxta, af vergum sölutekjum hefur haldizt óbreytt 3,2% í
heild 1973 en breytist lítið eitt eftir einstökum kostnaöar-
liöum. Þannig hefur afskriftakostnaðurinn lækkað úr 1,1%
1972 í 1,0% 1973 á meðan vaxtakostnaður í hlutfalli við vergar
sölutekjur hefur hækkað úr 1,2% 1972 í 1,4% 1973.
Hagnaðarhugtök félaga og einstaklinga eru ekki sambæri-
leg, þar sem hagnaður í einstaklingsfyrirtækjum nær til launa
eigenda auk hreins hagnaðar eins og hann kemur fram hjá
félögum. Til þess að gera rekstrarformin sambærileg og fá
fram rekstraryfirlit verzlunar alls þarf að áætla þessa
skiptingu hagnaðar í einstaklingafyrirtækjum í laun annars
vegar og hagnað hins vegar. Þessi áætlun er byggð á upplýs-
ingum um eigintryggðar vinnuvikur, og laun eigenda £ hverri
verzlunargrein áætluð þau sömu og meðallaun starfsmanna í
greininni. Sá hagnaður eða tap, sem þannig fæst hjá einstak-
lingum í verzlunargreininni, eftir að laun eigenda hafa
verið áætluð, er síöan lagöur við hagnað félaga til að fá
reiknaöan (hreinan) hagnaö í verzlunargreininni alls. Vergur
hagnaður er fundinn þannig að afskriftum er bætt við reiknaða
(hreina) hagnaðinn.
í töflu 6.2. eru birt rekstraryfirlit smásöluverzlunar-
greina fyrir árið 1973 sundurliðað eftir atvinnugreinum, þar
sem áætluð hafa verið laun eigenda einstaklingsfyrirtækja og
í framhaldi af því reiknaður hreinn hagnaður og vergur hagnaður
í hverri atvinnugrein.
1) Hér er alls staðar átt við vergar sölutekjur á tekjuvirði
nema annað sé tekið fram.