Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.10.1975, Blaðsíða 23
21
Hjá sælgætis- og tóbaksverzlun fer afkoman batnandi
1972-1973 og hækkar hagnaður félaga/eigendatekjur einstaklinga
um rúmlega 17 m.kr. eða sem nemur tæplega 48%, meðan heildar-
tekjur aukast um rúmlega 24%. Þetta veldur því, að reiknað
afkomuhlutfall hækkar úr 3,9% 1972 í 4,6% 1973, sem er lægra
hlutfall en árið 1971, en þá var hagnaður fálaga /eigenda-
tekjur einstaklinga 5,7% af heildartekjum.
f sumum greinum smásöluverzlunar hefur hagnaður félaga
og eigendatekjur einstaklingsfyrirtækja lækkað 1973, sem
þýöir lækkandi afkomuhlutfall 1972-1973. í greinum eins og
fata- og vefnaðarvöruverzlun, skóverzlun og bókaverzlun hefur
hagnaður félaga/eigendatekjur einstaklinga fyrir skatta lækkaö
um 2,6% - 8,7%, enda lækkar hlutfall hagnaðar félaga/eigenda-
tekna einstaklinga fyrir skatta af heildartekjum í öllum þessum
greinum og er alls staðar lægra en það var árið 1971 nema hjá
skóverzluninni, sem hefur svipað afkomuhlutfall árið 1973 og
árið 1971.
Nokkra athygli vekur slök afkoma 1973 hjá þeim, er verzla
með búsáhöld, heimilistæki, húsgögn og annan heimilisbúnað,
ef miðað er við áriö á undan. Lækkun hreins hagnaðar félaga
og eigendatekna einstaklinga fyrir skatta nemur alls rúmlega
25% 1972-1973 eöa úr 118 m.kr. 1971 í 88 m.kr. 1973. A sama
tíma hækka heildartekjur um 604 m.kr., eða um 33%, þannig að
afkomuhlutfallið veröur 3,6% 1973 x stað 6,4% 1972. Lækkun
hreins hagnaðar félaga/eigendatekna einstaklinga fyrir skatta
liggur í minni hagnaöi félagsrekinna fyrirtækja í þessari
grein á árinu 1973 og var hreinn hagnaður félaga 66,6 m.kr.
1972 en ekki nema 20 m.kr. 1973. Þessi hagnaðarlækkun á m.a.
rót sína að rekja til óvenju mikillar hækkunar á launum og
launatengdum gjöldum hjá félagsreknum fyrirtækjum í Reykjavxk
á árinu 1973, en þá nær tvöfaldaðist þessi kostnaðarliöur,
enda hefur orðið 22% fjölgun mannára í þessari grein í Reykja-
vík árið 1973.
Afkoma atvinnugreinar nr. 627, smásölu snyrti- og
hreinlætisvöru, batnaöi á árinu 1973 og hækkaði hlutfall
hreins hagnaöar félaga/eigendatekna einstaklinga fyrir skatta
af heildartekjum úr 2% 1972 í 4% 1973, enda hækkaði hagnaðurinn
úr 2,7 m.kr. 1972 í 8,5 m.kr. 1973.