Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.10.1975, Blaðsíða 29
27
Athygli vekur versnandi afkoma x bílaverzluninni á árinu
1973, er hagnaður fálaga og einstaklingstekjur eru aðeins 3%
af heildartekjum í stað 4,9% árið 1972. Veltan í þessari
grein jókst um rúmlega 28% á árinu 1973 og vörunotkunin jókst
heldur minna eða um 25% þannig að brúttóhagnaðurinn jókst
hlutfallslega meira en veltan og vörunotkunin (31%). Meðal-
álagningin hækkaði því úr 15,9% 1972 í 16,6% 1973, sem er 4,4%
aukning. Heildartekjur í þessari grein jukust um tæplega 900
m.kr. á árinu 1973 eða rúmlega 27% (tafla 20.2.) en vegna þess,
hve kostnaðurinn jókst mikið (61%), einkum launakostnaður,
lækkaði hreinn hagnaður fálaga og tekjur eigenda einstaklings-
fyrirtækja úr 160 m.kr. 1972 í tæplega 127 m.kr. 1973. Þessi
lækkun hagnaðar kemur einkum fram hjá fálagsreknum fyrirtækjum
í Reykjavík, og lækkaði hreinn hagnaður fálaga fyrir skatta í
Reykjavík um tæplega 30 m.kr. á árinu 1973.
Samkvæmt tölum í töflu 20.2. um afkomu heildverzlunar-
greinar 616, sem er hin almenna heildverzlun, er afkoman
töluvert betri á árinu 1973 en árin tvö á undan. Veltuaukning
í þessari grein nam tæplega 40% á árinu 1973 (tafla 7.2.) og
vörunotkunin jókst um tæplega 36% 1972-1973. Vergar tekjur
á tekjuviröi, þ.e. útsöluverð að frádregnum söluskatti,
hækkuðu heldur minna en veltan vegna söluskattshækkunar eða
um 39%, en töluvert meira en vörunotkunin þannig að brúttó-
hagnaðurinn jókst verulega. Heildartekjur, þ.e.a.s. vergar
tekjur á tekjuvirði að viðbættum umboöslaunum og aukatekjum,
jukust um nær 40% á árinu 1973 úr tæplega 10,2 milljörðum
króna 1972 í 14,2 milljarða króna 1973 (tafla 20.2.) og
rekstrarkostnaðarhækkunin (án vörunotkunar) nam tæplega 50%,
einkum vegna launa- og vaxtahækkana. Meðalálagningin
breyttist hins vegar úr 17,3% 1972 í 19,9% vegna hækkunar
vergra tekna á tekjuvirði umfram hækkun vörunotkunar, þannig
að hagnaður fálaga og tekjur eigenda einstaklingsfyrirtækja
jókst mjög mikið (92%). Afkomuhlutfalliö hækkaði því úr
3,3% 1972 í 4,5% 1973, en það haföi verið 3,7% 1971.