Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.10.1975, Page 33
31
í athugunum Þjóðhagsstofnunar á afkomu verzlunar á
árinu 1974 og við rekstrarskilyrði í árslok sama árs, sem
studdar eru athugunum á söluskattsframtölum kemur í ljós,
heldur lakari afkoma ef miðað er við árið 1973. Áætlanir
Þjóðhagsstofnunar ná yfir smásöluverzlunina í heild en ekki
einstakar greinar hennar og einnig nasr áætlunin til einnar
greinar heildverzlunar, atvinnugreinar 616, þ.e.a.s. heild-
verzlunar án olíu-, byggingarvöru- og bílaverzlunar. Við
framreikning rekstraryfirlits smásöluverzlunar 1973 til
rekstrarskilyrða í árslok 1974 er áætlað, að vöruvelta hafi
aukizt um allt að 81,7% á þessu tímabili, 76,4% vegna verð-
breytinga og 3% vegna magnbreytinga. Heildartekjur þ.e.
vergar sölutekjur án söluskatts að viðbættum umboðslaunum og
öörum tekjum eru taldar aukast úr tæplega 25,5 milljörðum
króna 1973 í 49 milljarða króna eða um 75% miðað við heilsárs-
rekstur við rekstrarskilyrði í árslok 1974. Vörunotkun og
velta eru hins vegar áætluö aukast jafn mikið þannig aö
brúttóhagnaðurinn vex í sama hlutfalli og meðalálagningin
helst óbreytt 24,1%. Rekstrarkostnaöur er talinn aukast
talsvert meira en tekjurnar þannig að hlutfall hreins
hagnaðar fálaga og eigendatekna einstaklinga af heildar-
tekjum lækkar úr 2,3% 1973 í 2% í árslok 1974 ef bæði er
tekiö tillit til magn- og verðbreytinga, en í 1,7% sé magn-
breytingum sleppt. Þess ber að gæta í þessu sambandi, að
þrátt fyrir lækkun á reiknuöu afkomuhlutfalli er í áætluninni
gert ráð fyrir, aö hreinn hagnaður félaga og eigendatekjur
einstaklinga fyrir skatta hækki um 288 millj.kr., úr tæplega
590 millj.kr. 1973 í 878 millj.kr. m.v. skilyrði í árslok
1974, eða um nær 50%.
í áætlun um afkomu heildverzlunargreinar 616 m.v. skil-
yrði í árslok 1974 er gert ráð fyrir rúmlega 80% veltubreytingu
frá ársmeðaltali 1973, um 75% vegna veröbreytinga og 4% vegna
magnaukningar. Heildartekjur í þessari grein eru áætlaðar
aukast álíka mikið og veltan eða úr tæplega 14,3 milljörðum
króna 1973 í um 26 milljarða króna m.v. árslokaskilyrði 1974.
Vörunotkunin er talin aukast nokkru meira en veltan, sem þýðir
að brúttóhagnaöurinn (mismunur veltu á tekjuvirði og vöru-
notkunar) eykst hlutfallslega minna en vörunotkun og velta,