Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2013, Qupperneq 23
Ísland er Í dauðafæri
Sport 23Helgarblað 6.–8. september 2013
Ari
Freyr
Gylfi
Þór
Birkir
Már
Birkir
Hannes
Þór
Kári
Eiður
Smári
Aron
Einar
Kolbeinn
Helgi
Valur
Ragnar
X
herdan Shaqiri er einn
hættulegasti leikmaður
Sviss. Hann er saman-
rekinn orkubolti sem
skapaði sér nafn með því að
spila sig inn í byrjunarlið
Basel í heimalandinu. Í dag
er þessi örfætti leikmaður á
mála hjá Evrópu- og Þýska-
landsmeisturum Bayern
München. Hann hefur leikið
34 leiki í Evrópukeppnum og
skorað í þeim fimm mörk.
Shaqiri er þekktur fyrir hraða
sinn, með og án bolta – og er stór-
hættulegur á kantinum.
Shaqiri fæddist í Kosovo 1991,
sem tilheyrði þá gömlu Júgóslavíu
en fjölskyldan, albönsk, flúði átök-
in í landinu og fluttist til Sviss
1992. Þess má geta að það gildir
einnig um annan sterkan leik-
mann svissneska liðsins, Granit
Xhaka – sá fæddist líka í Kosovo.
Xhaka leikur á miðjunni með Bor-
ussia Mönchengladback í þýsku
Bundesligunni og er fæddur árið
1992.
Þeir Shaqiri og Xhaka eru báð-
ir lykilmenn í svissneska U-21 árs
liðinu sem lagði Ísland og
komst í úrslitaleik loka-
keppni EM 2011. Þar tap-
aði liðið fyrir Spánverjum.
Þriðji maðurinn á
myndinni, sá ljóshærði,
sem vert er að fylgjast
með er Valon Behrami,
miðvallar leikmaður Napoli
á Ítalíu. Hann er einmitt
fæddur í Kosovo, merkilegt
nokk, en hraktist úr landi
ásamt fjölskyldu sinni, eins
og hinir tveir. Behrami lék
í þrjú ár með West Ham en
hefur annars leikið á Ítalíu.
Ef ekki hefði verið fyrir stríðs-
átök í heimalandinu væri staðan
hugsanlega sú að þeir væru allir
leikmenn albanska liðsins, sem Ís-
land mætir einmitt á þriðjudag.
baldur@dv.is
Fylgstu með þessum
n Þrír lykilmenn í svissneska landsliðinu eru fæddir í Kosovo
Vissir þú …
… að 11 af 23 leikmönnum í hópi Sviss
leika með félögum sem spila í Meistara-
deild Evrópu í vetur.
… að leikur Sviss og Íslands fer fram á
Stade de Suisse í Bern. Völlurinn var
reistur á grunni Wankdorf-leikvangsins en
þar fór einmitt úrslitaleikur HM 1954 fram.
… að Stade de Suisse er
heimavöllur Young Boys
sem Grétar Rafn Steins-
son lék með og tekur 32
þúsund manns í sæti.
… að Mario Gavranovic
og Gökhan Inler eru
markahæstu leikmenn
Sviss í undankeppninni,
með tvö mörk
hvor.
… að Gylfi Þór
Sigurðsson er
markahæsti leik-
maður Íslands í undankeppn-
inni með þrjú mörk.
… að Svisslendingar hafa 9 sinnum tekið þátt
í lokakeppni HM, þar af árið 2006 og 2010.
… að Svisslendingar hafa landað einum
heimsmeistaratitli í fótbolta, það gerðist
á HM í strandfótbolta í Dúbaí árið 2009.
… að Ísland hefur skorað jafn mörg mörk
í undankeppninni og Frakkar, Spánverj-
ar, Svisslendingar og Rússar, en fleiri
mörk en Grikkland, Tyrkland, Tékkland,
Wales og Danmörk.
n Mikilvægir leikir gegn Sviss og Albaníu framundan n Ísland á enn fína möguleika á 2. sætinu í riðlinum
Líklegt byrjunarlið
Íslands gegn Sviss
É
g geri ráð fyrir mjög erfiðum
leik á móti Sviss. Það er samt
ákveðin jákvæðni í kringum
landsliðið okkar og við höfum
verið að spila ágætlega þrátt fyrir
þetta tap á móti Slóveníu í sumar,“
segir Tryggvi Guðmundsson, leik-
maður HK og markahæsti leikmaður
Íslandsmótsins frá upphafi.
Tryggvi á von á mikilli mótspyrnu
þegar Ísland mætir Sviss og á von á
að mikið muni mæða á varnarmönn-
um Íslands. Hann hefur þó litlar
áhyggjur af sóknarmönnum Íslands
enda séu frábærir leikmenn í öllum
stöðum þar. „Ég held að það sé al-
veg ljóst að Svisslendingar séu með
sterkasta liðið í riðlinum. Akkilesar-
hæll íslenska landsliðsins núna og
síðustu ár er varnarleikur liðsins.
Við erum með nóg af flottum mönn-
um fram á við sem eru að slá í gegn
víða – það vantar ekki. En varnar-
leikurinn er höfuðverkurinn og Lars
Lagerbäck hefur sagt það sjálfur að
því miður sé ekki nógu gott úrval af
varnarmönnum á Íslandi. Fótboltinn
snýst að stóru leyti um að verjast og
við gætum lent í því hlutverki gegn
Sviss á útivelli,“ segir Tryggvi. Að-
spurður um möguleika Íslands gegn
Albaníu segir Tryggvi að í ljósi síð-
ustu leikja liðsins ætti að vinnast sig-
ur gegn Albaníu, svokallaður skyldu-
sigur. „Maður veit svo sem lítið um
lið Albaníu – það er ekki svo mik-
ið af þekktum Albönum í Evrópu-
boltanum. En við unnum þá úti og
ættum þar af leiðandi að eiga góða
möguleika heima.“ Þegar Tryggvi er
spurður hvort hann sé reiðu búinn
að spá fyrir um úrslit leikjanna gegn
Sviss og Albaníu, segir hann: „Á
maður ekki bara að vera bjartsýnn
fyrir hönd þjóðarinnar og segja að
við náum í gott jafntefli í Sviss, 1–1,
og svo tökum við Albaníu á heima-
velli, 2–1.“ einar@dv.is
Leikir sem eru eftir
n 6. sept Noregur – Kýpur
n 6. sept Sviss – Ísland
n 6. sept Slóvenía – Albanía
n 10. sept Ísland – Albanía
n 10. sept Noregur – Sviss
n 10. sept Kýpur – Slóvenía
n 11. okt Slóvenía – Noregur
n 11. okt Albanía – Sviss
n 11. okt Ísland – Kýpur
n 15. okt Noregur – Ísland
n 15. okt Sviss – Slóvenía
n 15. okt Kýpur – Albanía
Jafntefli og sigur
n Tryggvi Guðmundsson á von á stífri pressu
Skellti Aroni
á bekkinn
Fantasy
É
g byrjaði á þessu eiginlega
löngu áður en þetta fór að
verða vinsælt á Íslandi,“ seg-
ir Stefán Þór Pálsson, stuðn-
ingsmaður Liverpool og
sigur vegari í Fantasy-deild DV fyrir
ágústmánuð. Stefán mætti á skrif-
stofur DV á miðvikudag og tók á
móti verðlaunum fyrir sigurinn.
Hann fékk glæsilegan Mitre-fót-
bolta frá versluninni Jóa útherja
og 20 þúsunda króna gjafabréf frá
Tapas-barnum.
Númer 318 í heiminum
Í leiknum velja þátttakendur sitt
draumalið í ensku úrvalsdeildinni
á vefnum Fantasy.premierleague.
com. Þátttakendur hafa yfir tak-
mörkuðum fjármunum að ráða
og því er ómögulegt að raða öll-
um bestu leikmönnum deildar-
innar í sama liðið. Því þarf að sýna
ákveðna útsjónarsemi til að ná
góðum árangri. Stefán gerði það
og gott betur. Hann fékk 232 stig í
ágúst, níu stigum meira en næsti
maður og var ótvíræður sigur vegari
mánaðarins. Til marks um gott
gengi Stefáns má nefna að hann
er í sæti númer 318 í heiminum en
rúmlega 2,8 milljónir manna eru
skráðar í leikinn á heimsvísu. 1.535
eru skráðir í Fantasy-deild DV.
Missir ekki af Liverpool-leik
Þó að Stefán hafi tekið þátt lengi
hefur hann yfirleitt aðeins gert
það til gamans. Í viðtali við DV
segir hann að eftir góða byrjun
sé keppnis skapið komið og hann
muni án efa fylgjast meira með
gangi mála í enska boltanum en
undanfarin ár. Hann hefur þó
fylgst vel með sínum mönnum í
Liverpool og varla misst af Liver-
pool-leik undanfarin fimmtán ár
eða svo. Önnur lið hafa þó setið á
hakanum en í ljósi velgengninnar
í Fantasy segir Stefán að nú þurfi
hann að fylgjast betur með öðrum
liðum.
Stefán er hógvær þegar hann er
spurður hver lykillinn sé að góð-
um árangri í þessum vinsæla leik.
„Þetta er smá grís. Ég var mjög
heppinn og hitti vel á framherjana
í hverri umferð; Benteke í fyrstu
umferð, Soldado í annarri umferð.
Svo valdi ég Yaya Toure sem fyrir-
liða í 3. umferðinni og hann skilaði
inn fjölda stiga.“
Stefán klikkaði þó illa í 2. um-
ferðinni þegar hann setti Aron
Einar Gunnarsson, leikmann Car-
diff, á bekkinn, en Aron átti sann-
kallaðan stórleik gegn Manchester
City og skoraði mark og fékk 9 stig.
Vegleg verðlaun
DV mun veita sigurvegurum
hvers mánaðar í Fantasy-deild
DV verðlaun allt til loka tímabils-
ins í maí. Stóru verðlaunin, 42
tomma Panasonic FHD LED-
sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöð-
inni, verða svo veitt sigurvegara
vetrarins, þeim sem fær flest stig
á tímabilinu. Um sérlega glæsi-
legt sjónvarp er að ræða en verð-
mæti þess er 209.990 krónur. n
einar@dv.is
Stefán Þór er sigurvegari ágústmánaðar í Fantasy-leik DV
Sigurvegari
Stefán tók stoltur
við vinningnum
– Mitre-fótbolta
frá Jóa útherja
og gjafabréfi frá
Tapas-barnum.
MyNd SIGTRyGGuR ARI