Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2013, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2013, Side 13
Ég er lélegur dansari Lífsnauðsynleg aðgerð Ég vil bara frið Þorbjörg Helga Dýrfjörð finnst gaman að „head-banga“. – DVUgla Stefanía Jónsdóttir um kynleiðréttingu. – DVAldís Schram kærir föður sinn. – DV Þjóðlegt íhald og áræðni í atvinnumálum Spurningin „Já, við ættum að gera það.“ Aron Freyr Kristjánsson 16 ára nemi „Það fer eftir ástandinu sem þeir eru í. Það þyrfti að vega og meta það eftir því hvaðan þeir koma.“ Þór Blöndal Arngrímsson 16 ára nemi „Já, við erum með nóg af plássi fyrir þá.“ Lilja Karen Kjartansdóttir 16 ára nemi „Já, það á að taka fleira fólk inn. Það vantar starfsfólk.“ Friðbjörg Sigurgeirsdóttir 16 ára nemi „Nei, það eru oft vandamál sem fylgja þeim.“ Arnar Haraldsson 38 ára smiður Ætti Ísland að taka við fleiri flóttamönnum? 1 „Varaði mig við því að til stæði að sprengja flugvélina sem ég átti að fara með“ Aldís Schram sagði frá viðburðaríku lífshlaupi sínu í helgarblaði DV. 2 Handtóku mann í tengslum við hvarf Madeleine Breskir rannsóknarlögreglumenn leita enn að Madeleine McCann, stúlkunni sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007. 3 „Þú hringir á lækni þegar einhver er veikur, en þegar hann er andsetinn heldur þú særingarathöfn“ Frönsk tánings- stúlka sem ættingjar og vinir töldu að væri andsetin var nær dauða en lífi þegar henni var bjargað úr særingarathöfn. 4 Sá ekkert svindl Brynhildur Pétursdóttir þingmaður fylgdist með á vettvangi þegar forsetakosningar fóru fram í Aserbaídsjan. 5 Fékk í tána, eins og for-sætisráðherra Gissur Sigurðsson útvarpsmaður hefur verið í þriggja mánaða leyfi vegna sýkingar. 6 Ferðamaður tekinn tvisvar sama daginn í ofsaakstri Er- lendur ökumaður var tvívegis tekinn fyrir hraðakstur á Suðurlandi á laugardag, fyrst á 134 kílómetra hraða, svo á 143. Mest lesið á DV.is É g er þeirrar skoðunar að atvinnu­ lífið vanti súrefni. Mín upplifun er að þróttur þess dvíni þessa dagana þegar það ætti að vera á uppleið. Vissulega eru margir hlut­ ir að gerast, atvinnuleysi minnkar en heilt yfir er doði á mörgum sviðum. Iðfyrirtæki í framleiðslu og þjónustu merkja minni eftirspurn á lands­ byggðinni og eina lífið í byggingar­ iðnaðinum virðist vera í 101 Reykja­ vík. Þar er aftur byrjað að blása í blöðrur þegar við ættum að skapa útflutningsverðmæti fyrir hagvöxt og uppbyggingu heilbrigðisþjónustunn­ ar í landinu. Ég velti því fyrir mér hvort rík­ isstjórnin og við sem stöndum að meirihlutanum í þinginu séum að standa okkur. Ég held að þrátt fyrir mörg góð áratök sé hollt að viður­ kenna að við getum gert betur og að það liggur á að gera betur! Ég vakna á hverjum morgni og velti fyrir mér hvað ég geti gert til að ástandið lagist. Fundahöld og spjall er ágætt en þar gerist ekkert. Við verðum að láta verk­ in tala. Erum við að gera það sem þarf til að koma stóru verkefnunum í gang. Í stað þess að fara í hefðbundna vörn eigum við að viðurkenna að það þurfi að sækja fastar. Við höfum rætt um að draga lausa enda í höfn svo m.a. álver í Helguvík komist í gang. Afar lítið hefur breyst Og á annað þúsund vel launuð störf. Fólk spyr: Hvað er raunverulega að gerast í því? Ég hef unnið að því verk­ efni frá árinu 2009 og þar hefur afar lítið breyst. Við sögðum í kosninga­ baráttunni að framkvæmdir við virkj­ anir í neðri hluta Þjórsár færu á stað svo fljótt sem verða mætti. Þar er ekkert að gerast og Landsvirkjun hef­ ur ekki selt svo mikið sem 1 MW svo lengi sem elstu menn muna. Sú stofn­ un hefur mestan áhuga að senda raf­ magnið til að Englendingar geti aukið virðisauka með með því að nýta ork­ una þar í framleiðslu, ekki hér. Við ættum að tengja þá stofnun frekar við samfélagið og sjá hvort ekki kvikn­ aði á einhverjum perum við það. Hvernig væri að þetta fyrirtæki okk­ ar landsmanna setti á sína stefnuskrá að skapa í landinu fjölbreytt og vel launuð störf? Það er mikilvægara en láta aðrar þjóðir njóta virðisaukans af einni verðmætustu auðlind þjóðar­ innar, grænu orkunni. Tækifæri í skipasmíðum En tækifærin bíða okkar mun víðar. Fiskiskipastóllinn er orðinn gamall og þar liggja tækifæri til að hefja aft­ ur skipasmíðar innanlands. Smíði fiskiskipa er aftur að færast frá Aust­ ur­Asíu til Vesturlanda og má segja að bylgjan sé nú komin að Tyrklandi. Hefjum aftur til virðingar skipasmíði hjá íslenskum fyrirtækjum sem búa yfir þekkingu og vel menntuðum starfsmönnum sem geta tekist á við endurnýjun fiskiskipaflotans. Til þess þarf þrek og áræði. Veita greininni ívilnanir sem aðrar þjóðir hika ekki við og treysta þekkinguna og verð­ mætasköpunina í landinu. Íslensk fyrirtæki geta smíðað fiskiskip allt að 45 metrum. Hágæða smíði eins og best gerist í heiminum er raun­ verulegur kostur á Íslandi. Með því að tryggja samkeppnishæfni, öryggi í afhendingu, gæðum og kostnaði má byggja aftur upp sterka grein í skipa­ smíðum í landinu. Ég varpa því fram að ívilnanir gætu í formi viðbótarúthlutunar í kvóta til þeirra útgerða sem létu byggja skip sín í landinu. Þar mætti hugsa sér 100 þorskígildistonn til þeirra út­ gerða sem færu „Íslensku leiðina“. Á móti kemur gjaldeyrissparnaður þar sem aðeins hluti nýsmíði er greidd­ ur með gjaldeyri en hinn hlutinn með íslenskum skattskyldum krónum og minna atvinnuleysi. Hugsum út fyr­ ir rammann og verum óhrædd við að styrkja okkar fyrirtæki eins og all­ ar aðrar þjóðir gera. Hér liggja ónýtt tækifæri. Hér er engu að tapa Önnur mikilvæg leið tengist fjár­ festingaleið Seðlabankans. Allir sýna íslenskum knattspyrnumönnum í út­ löndum áhuga. Íslenskir knattspyrnu­ menn í útlöndum fá 20% meira fyrir gjaldeyri sem þeir nota til fjárfestinga í húsnæði og íbúðum í landinu en innlend fyrirtæki sem stunda millj­ arða samkeppnisiðnað á erlendum mörkuðum og þeim stendur fjár­ festingaleið Seðlabankans ekki opin. Fjárfestingaleið til gjaldeyrissköpunar er önnur útfærsla á tækifærum meðan atvinnulífið er bundið í höftum. Hún byggir á því að nýta fjárfestingaleið Seðlabankans til að auka gjaldeyris­ tekjur þjóðarinnar með því að heim­ ila framleiðendum í tækjabúnaði að skipta gjaldeyri yfir í krónur á mark­ aðsvirði. Hundruð milljarðar króna í eigu erlendra aðila – „Snjóhengjan“ er föst í höftum í landinu. Fengju erlend­ ir aðilar að selja innlendum framleið­ endum krónur á markaðsvirði flyst krónueign frá aðila sem lítinn áhuga hefur á eignum á Íslandi til framleið­ anda í iðnaði sem myndu nota aukn­ ar tekjur til fjárfestinga í þekkingu og iðnaði í landinu og þannig byggja enn frekar undir útflutning og gjaldeyr­ issköpun. Höftin og undantekningar eru vandmeðfarnar en á meðan við erum föst í þeim verðum við að huga að þeim framleiðendum í landinu sem halda tryggð við að reka fyrirtæk­ is sín hér heima. Fjárfestingaleiðin er fyrir fyrir­ tæki sem eru skráð erlendis og flytja gjaldeyri til landsins en fyrir­ tækin í landinu sitja ekki við sama borð. Þannig má færa fyrir því rök að 10.000.000 velta í evrum hjá innlendu fyrirtæki sé kaupverðið 1,6 milljarður króna en með fjár­ festingaleið Seðlabankans þá fær íslenskt fyrirtæki skráð erlendis 2,1 milljarð króna í gegnum fjár­ festingaleið Seðlabankans. Þannig er tryggum heimafyrirtækjum hegnt fyrir þjóðlega íhaldssemi sína með því að bera 500 m.kr. minna úr být­ um en íslensk fyrirtæki skráð í út­ löndum sem flytja hagnað sinn heim en greiða ekki skatta eða annað af þeim hagnaði. Það að leyfa íslensk­ um framleiðslufyrirtækjum að skipta nettó útflutningstekjum sínum með þessum hætti stórbætir samkeppnis­ hæfni þeirra gagnvart erlendum keppinautum og getur ekki annað en aukið gjaldeyristekjur þjóðarbúsins. Hér er því engu að tapa. Meðan við spilum í höftum verðum við að gefa rétt fyrir þá sem vilja efla byggðirnar og fjárfestingu í landinu. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis flokksins. n Andlitsmálning Það var rífandi stemning á Laugardalsvelli á föstudag, þegar Ísland lagði Kýpur. Þessi myndarlegi piltur lét ekki sitt eftir liggja og studdi liðið til sigurs, ásamt 10 þúsund samlöndum. Mynd SigTryggur AriMyndin Umræða 13Mánudagur 14. október 2013 „Ég velti því fyrir mér hvort ríkisstjórnin og við sem stöndum að meirihlutanum í þinginu séum að standa okkur. Kjallari Ásmundur Friðriksson Alþingismaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.