Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2013, Side 16
16 Lífsstíll 14. október 2013 Mánudagur
J
óhann Freyr Jónsson, betur
þekktur sem „Jói Rækja“,
er einn þeirra fjölmörgu
einstaklinga sem þrífast hvað
best utan hins hefðbundna
ramma sem margir halda sig inn-
an. Á ökutækjum hans má klárlega
sjá að þar fer enginn vísitölumað-
ur. Hann finnur sig best á tækj-
um sem hann hefur annaðhvort
smíðað sjálfur eða breytt að sín-
um smekk.
Mótorhjóladellan hefur loðað við
Jóa frá því að hann man eftir sér og
fljótlega eftir að hann fór að keyra
um á mótorhjólum fóru að sjást í
umferð breytingar og nýsmíði sem
ekki hafði sést áður hér á landi.
Dísilþríhjól
Mesta athyglina hefur sjálfsagt vak-
ið dísilþríhjólið sem Jói smíðaði fyrir
nokkrum árum en um er að ræða
fyrsta dísilhjólið sem notað hefur
verið hér á landi. Í grunninn not-
aði hann Mercedes Benz 300 dísil-
bíl sem búinn var að þjóna tilgangi
sínum vel með ríflega 600 þúsund
kílómetra notkun á íslenskum veg-
um. Bílinn skar hann niður og breytti
í þríhjól eftir sínu höfði og nýtti það
sem honum þótti flottast frá öðrum
framleiðendum. Hann lá örlítið, sem
fyrr, á eBay og lokaði sig af í nokkrar
vikur, eða þar til hjólið var klárt.
Rat Rod-æðið
Eftir veru sína í Svíþjóð í vor, og
heimsóknir á sýningar og bílasöfn
þar, hófst í alvöru vinna við núver-
andi verkefni Jóa sem er smíði á
svokölluðum Rat Rod, eða Rottubíl.
„Hugmyndin er búin að vera lengi
að gerjast eftir að hafa séð slík fara-
tæki í blöðum og á netinu í ýmsum
útgáfum en það má segja að ég hafi
ákveðið að láta vaða eftir þessa ferð,“
sagði Jói í samtali DV fyrir helgi.
„Ég festi mér nokkuð óvenjulegan
bíl í þetta verkefni en það er Opel
Olympia Rekord árgerð 1959. Flest-
ir bílar sem ég hef skoðað í þessari
uppskrift eru mun eldri en ég verð að
gera þetta fyrir mig og hafa þetta að-
eins eftir mínu höfði.“
Stórar felgur og kraftmikil vél
„Bíllinn hjá mér verður kíttaður í
götuna, settur á 22 tommu felgur og
fær einnig V8-mótor – svo sándið í
honum verði í lagi. Annars mun ég
svo leitast eftir því að hafa hann hrá-
an í útliti og var því ánægður þegar
ég datt niður á þennan bíl þar sem
hann er mjög veðraður en alls ekk-
ert ryðgaður. Það er lykilatriði í rottu-
bransanum að það má alls ekki mála
bílinn né gera hann félegan í út-
liti á boddíi. Kram og felgur eru þó
undantekning því þar má „blinga“
og gera vel við sig. Þá verður að sjálf-
sögðu farið vel yfir stýri, bremsur og
allan annan öryggisbúnað sem ekki
sést því það eru hlutir sem maður vill
alltaf hafa í lagi. Lykillinn að þessu er
að bíllinn sé eins og hann hafi verið
dreginn af túni eftir 50 ára útiveru,
sé lagaður til brúks en sé samt bæði
flottur og ljótur, hvernig sem sú út-
skýring kemst svo til skila.“
Skemmtileg vinna
„Ég stefni á að hafa bílinn kláran
sumarið 2014 og verð þá vonandi
fyrstur með þessa uppskrift á götun-
ar hér heima en ég veit að margir
eru í skúrum landsins að græja eitt-
hvað og þetta á ábyggilega eftir að
verða bóla á næstunni. Það er þó
ekki kappsmál að verða með fyrstu
íslensku rottuna, aðalatriðið er að
smíða eitthvað fyrir sjálfan sig og
hafa gaman af sköpuninni. Það er
svo ferlega þreytt að keyra bara á
Yaris eða einhverju álíka og því vil
ég gera mér mitt eigið tæki og það
er alveg ljóst að ég mæti ekki öðr-
um svona á næstu umferðarljósum.
Þetta snýst um að njóta lífsins að-
eins öðruvísi en hinir og hafa gaman
af því að vera ég.“ n
Rokkurinn mundaður Hér er
Jói að hefjast handa við nýjustu
smíði sína og það er byrjað á því
að skera í burtu það sem ekki á
að nota úr efniviðnum. MynDiR BÓ
Björgvin Ólafsson
blaðamaður skrifar bilar@dv.is
Smíðar ökutæki
í frístundunum
n Jóhann finnur sig best á tækjum sem hann býr til sjálfur
Dísilþríhjól Jói hefur smíðað sér ófá mótorhjólin í gegnum tíðina en þetta er sennilega það
frumlegasta.
Hjólið í smíðum Hér er þríhjólið í smíðum en það er meðal annars sett saman úr gömlum Benz leigubíl.
Rat Rod-upphafið Úr þessum bíl ætlar Jói nú að smíða svokallaðan Rat Rod-bíl en í
grunninn notar hann hér 1959 árgerðina af Opel Olympia Rekord.
Bjargvætturinn
á afmæli
Ford-verkjsmiðjurnar eru um
þessar mundir að undirbúa 40
ára afmæli Mustang II-bílsins.
Þessi litli og merkilegi bíll tók við
af vöðvabílum eldri Mustang-bif-
reiða þegar olíukreppan skall á
og seldist betur en nokkur ann-
ar Mustang hefur gert. Þó margir
hafi á sínum tíma átt erfitt með
að sætta sig við Mustang-nafnið
á þessum bíl þá hafa menn gert
sér grein fyrir því í dag að nafnið
sjálft ætti sér ekki 50 ára sam-
fleytta framleiðslusögu í dag
hefði Mustang II ekki litið dags-
ins ljós. Svarti sauðurinn er því
loks að fá uppreisn æru og verður
vel minnst á afmælisárinu 2014,
þegar 50 ár eru liðin frá því að
Mustang kom fyrst á sjónarsviðið
og 40 ár síðan Mustang II kom
fyrst í sölu.
Nýr Mini
Ný kynslóð Mini-bílanna er
handan við hornið en 2014-ár-
gerðin mun verða nýr liður í
þeirri seríu. Þá liggur einnig fyr-
ir að fljótlega verði kynntur nýr
Cooper S-bíll og hafa nú náðst
myndir af þeim bíl sem svo
sannarlega lofa góðu. Bíllinn
mun auk breytinga á skrokknum
bera töluvert stærri felgur en
forveri hans og því fylgja einnig
mun stærri bremsur og betri
fjöðrurnarbúnaður. Ein stærsta
breytingin er þó í húddinu en frá
og með næsta ári verður Mini út-
búinn þriggja sýlindra-mótor í
grunnútgáfu þó enn verði hægt
að fá hann fjögurra sýlindra fyrst
um sinn.
Nýtt
hraðamet
Ford Racing mun á næsta ári tefla
fram nýjum Daytona Prototype-
bíl með EcoBoost V6-mótor. Bíll-
inn mun keppa í TUDOR-sport-
bílameistaramótinu sem mun
leiða saman sportbílakappakstur
og hinn ameríska Le-Mans og
Grand-Am í eitt risastórt meist-
aramót. Ford Racing hóf prufu-
akstur fyrir komandi tímabil á
Daytona í vikunni og setti þar
nýtt hraðamet á bíl sínum með
tímanum 40,364 sek. á 222,97
mílum. Gamla metið á braut-
inni er búið að standa frá árinu
1987 en það met átti Bill Elliot
á NASCAR-bíl. Hraði hans var
210,36 mílur. Ford Racing kem-
ur því vel undirbúið til leiks fyrir
komandi tímabil.