Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 11. nóvember 2013 Mánudagur Ráðuneytið svarar ekki n Fyrirspurnum um fjármögnun pyntingasveita ekki svarað U tanríkisráðuneytið hefur ekki svarað ítrekuðum fyrirspurnum DV varðandi hvort og þá hvern- ig ráðuneytið hyggist bregðast við nýlegum fregnum þess efnis að ís- lenska ríkið hafi tekið þátt í því að fjár- magna þjálfun pyntingasveita í Írak. Eins og DV greindi frá í síðasta mánuði tók ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þátt í því að fjármagna þjálfun pyntingasveita í Írak á árunum 2005 og 2006, í gegnum sérstakt þjálf- unarverkefni Atlantshafsbandalagsins í Írak sem bar skammstöfunina NTM-I. Ísland veitti tugum milljóna í þjálf- unarverkefnið sem gekk opinberlega út á að þjálfa öryggissveitir í landinu (ISF), þar á meðal sérsveitirnar Special Police Commandos, en hlutverk þeirra var meðal annars að beita grimmileg- um pyntingum til þess að komast yfir upplýsingar. 22. október sendi DV fyrirspurn á utanríkisráðuneytið þar sem meðal annars var spurt hvernig ráðuneytið hygðist bregðast við þessum fregnum, og hvort til greina kæmi að taka mál- ið upp á vettvangi Atlantshafsbanda- lagsins. Í svari frá Urði Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa ráðuneytisins, var þessum hluta fyrir spurnarinnar ekki svarað, en málið reifað á almennum nótum. Af svörunum mátti ráða að ís- lenskum yfirvöldum hafi ekki verið fullkunnugt um hvað hefði falist í fjár- hagsaðstoð við NTM-I. Þá kom fram að þjálfunarverkefnið hafi miðað „að því að auka menntun öryggissveit- anna og efla getu þeirra til þess að tak- ast á við hryðjuverkaárásir.“ DV ítrekaði fyrirspurn sína 28. október en fékk ekkert svar. Fyrir- spurnin var því ítrekuð í þriðja sinn 6. nóvember, en þar var vísað í umfjöll- un DV um málið og beðið um svör við eftir farandi: „Hvernig hyggst ráðu- neytið bregðast við þessum upplýs- ingum? Kemur til greina að taka það upp á vettvangi NATO?“ Ekkert svar hafði borist þegar blaðið fór í prentun á sunnudagskvöld. n Vafi um lögmæti styrkja n Endurskoðandi getur ekki sannreynt hvort fjárframlög til flokksins hafi staðist lög E ndurskoðandi Sjálfstæðis- flokksins getur ekki sannreynt hvort framlög til flokksins hafi verið lögum samkvæm. Þetta kemur fram í útdrætti Ríkis- endurskoðunar úr ársreikningi Sjálf- stæðisflokksins fyrir árið 2012. Endur- skoðendur annarra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi áttu ekki í vandræðum með að sannreyna hvort framlög til þeirra flokka hefðu verið lögum samkvæm, ef marka má árs- reikninga þeirra flokka. Í sérstakri athugasemd frá endur- skoðanda Sjálfstæðisflokksins sem fylgir ársreikningi flokksins segir að stjórnendur hafi leitast við að greina þau félög, „sem eru í ríkiseigu og þeirra félaga sem eru tengd í samræmi við ákvæði laga um fjármál stjórn- málaflokka, sem flokkurinn hefur af þeim sökum ekki heimild til móttöku styrktarframlaga.“ Niðurstaða þeirra umleitana var eftirfarandi: „Erfitt reyn- ist að sannreyna hvort það hafi tekist með tæmandi hætti.“ Hvorki náðist í endurskoðanda Sjálfstæðisflokksins né Jónmund Guðmarsson, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins við vinnslu þessarar fréttar. Ríkisendurskoðun í vafa Ríkisendurskoðun hefur birt útdrætti úr ársreikningum stjórnmálasamtaka fyrir árið 2012 á vefsíðu sinni. Þar kem- ur fram að Ríkisendurskoðun hafi far- ið yfir reikninga flokkanna og athugað hvort þeir væru í samræmi við ákvæði laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Með þeim útdrætti fylgir athugsemd í líkingu við þá sem endurskoðandi Sjálfstæðisflokksins gerði: „Sú könnun hefur ekki gefið til- efni til athugasemda en tekið skal fram að vegna örðugleika við að sannreyna tengsl félaga innbyrðis ábyrgist stofn- unin ekki að könnunin sé tæmandi.“ Því má ljóst vera að hvorki endur- skoðandi Sjálfstæðisflokksins né Ríkis- endurskoðun, sem fer með löggilt eftir litshlutverk í þessum málaflokki, treysta sér til þess að segja til um hvort styrkveitingar til flokksins hafi ver- ið lögum samkvæmar. Þeir löggiltu endurskoðendur sem DV hafði sam- band við voru sammála um að það ætti ekki að vera erfitt að sannreyna hvort um tengsl sé að ræða. „Þetta á ekki að vera sérstaklega flókið, við höf- um aðgang að fyrirtækjaskrá og þar á allt slíkt að liggja fyrir,“ sagði einn endurskoðendanna í samtali við DV. Einsdæmi Sjálfstæðisflokkurinn fékk alls 155 milljónir króna í framlög frá ríki, sveitarfélögum, lögaðilum og einstaklingum í fyrra, að því er fram kemur í ársreikningi. Þá hafði hafði flokkurinn 61 milljón króna í aðrar tekjur á tímabilinu. Flokkurinn fékk rúmar sautján milljónir í styrki frá fyrirtækjum (lögaðilum) en 32 millj- ónir frá einstaklingum. Framsóknar- flokkurinn fékk rúmar sjö milljónir í styrki frá fyrirtækjum á meðan aðrir flokkar fengu mun minna. Þannig fékk Samfylkingin rúmar tvær milljónir í styrki frá fyrirtækjum á meðan Vinstri hreyfingin - grænt framboð fékk ekki nema 300 þús- und krónur. DV hefur farið yfir árs- reikninga þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Sú yfirferð leiðir í ljós að endurskoðendur þeirra flokka sáu ekki ástæðu til þess að gera sérstak- an fyrirvara um það hvort fjárfram- lög til flokkanna hefðu verið lögum samkvæm. Þá ræddi DV við nokkra endurskoðendur annarra stjórn- málaflokka sem sæti eiga á þingi en þeir sögðust hafa gengið úr skugga um lögmæti styrkveitinga til þeirra flokka. Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja Eins og greint hefur verið frá fékk Sjálfstæðisflokkurinn rúmar sautján milljónir í styrki frá fyrirtækjum á ár- inu 2012. Samkvæmt lögunum sem tóku gildi árið 2006 mega framlög lögaðila nema allt að 400 þúsundum króna á ári. Fjölmörg fyrirtæki nýttu heimildina upp í topp þegar kom að styrkveitingum til Sjálfstæðis- flokksins. Á meðal þeirra voru fjöl- mörg fyrir tæki í sjávarútvegi, þar á meðal HB Grandi, Samherji, Ísfélag Vestmannaeyja, Bergur-Huginn og Rammi hf. Skömmu fyrir alþingiskosningarn- ar 2009 var upplýst að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði þegið samtals 55 milljónir króna í styrki frá FL Group og Landsbankanum í október 2006. Skömmu áður hafði lögum um fjár- stuðning til stjórnmálaflokka ver- ið breytt þannig að þeir máttu ekki þiggja hærri styrki en 300 þúsund krónur frá lögaðilum. Þáverandi endurskoðandi Sjálfstæðisflokksins gerði sérstakar athugasemdir við styrkina en framkvæmdastjóri flokks- ins, þá Kjartan Gunnarsson, virti þær að vettugi. Möguleg lögbrot Samkvæmt 9. grein laga um fjár- mál stjórnmálasamtaka og fram- bjóðenda skulu stjórnmálasam- tök árlega skila Ríkisendurskoðun ársreikningum sínum árituðum af endurskoðendum, og skal Ríkis- endurskoðun yfirfara þá. Þá kem- ur fram í 6. grein sömu laga að óheimilt sé „að veita viðtöku fram- lögum frá fyrir tækjum að meiri hluta í eigu, eða undir stjórn, ríkis eða sveitarfélaga.“ Endurskoðandi Sjálfstæðisflokksins gat ekki sann- reynt hvort flokkurinn hafi fengið styrki frá slíkum félögum, né heldur hvort flokkurinn hafi fengið styrki frá tengdum aðilum. Samkvæmt lögunum mega stjórnmálaflokkar ekki þiggja styrki frá tengdum aðilum en í 2. grein laganna er fjallað sérstaklega um tengda aðila. Þar kemur fram að þar sé átt við lögaðila þar sem svo háttar til „að sami aðili eða sömu aðilar eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í báð- um eða öllum lögaðilunum, enda nemi eignarhlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofn- fé eða atkvæðafjölda í viðkomandi lögaðilum.“ n Vafi um lögmæti Endurskoðandi Sjálf- stæðisflokksins getur ekki sannreynt hvort styrkveitingar til flokksins hafi verið lögum samkvæmar. Hæstu styrkirnir Jónmundur Guðmarsson er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins en flokkurinn er það stjórnmálaafl sem þáði mest af styrkjum frá fyrirtækjum á síðasta ári. „Erfitt reynist að sannreyna hvort það hafi tekist með tæm- andi hætti. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. – 400.000 Þorbjörn hf. – 400.000 Vesturgarður ehf. – 400.000 Skipti hf. – 400.000 Samherji hf. – 400.000 Skeljungur hf. – 400.000 Rammi hf. – 400.000 N1 hf. – 400.000 Mannvit hf. – 400.000 Lýsi hf. – 400.000 Juris slf. – 400.000 Ísfélag Vestmannaeyja hf. – 400.000 Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. – 400.000 HB Grandi hf. – 400.000 Gjögur hf. – 400.000 Flugfélagið Atlanta ehf. – 400.000 Brim hf. – 400.000 Bergur-Huginn ehf. – 400.000 Tryggingamiðstöðin hf. –390.000 Brimrún ehf. – 350.000 1912 ehf. – 300.000 Gámaþjónustan hf. – 300.000 Gullberg ehf. – 300.000 Hafnarbakki -Flutningatækni ehf. – 300.000 MP banki hf. – 300.000 Vátryggingafélag Íslands hf. – 300.000 Helstu bakhjarlar Sjálfstæðisflokksins n Fjölmörg sjávarútvegsfyrirtæki á lista þeirra sem veittu hæstu styrkina SPC Special Police Commandos-sveitir heyrðu undir NTM-I-verkefnið. MyNd REuTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.