Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2013, Blaðsíða 11
Fréttir 11Mánudagur 11. nóvember 2013
Þetta er Rob Ford
n Fæddist með silfurskeið í munni n Dreymdi um að verða ruðningshetja
B
orgarstjórinn í Toronto í
Kanada hefur ekki átt sjö dag-
ana sæla. Frá því í maí hefur
Rob Ford verið verið í slæm-
um málum vegna mynd-
bands sem sýnir hann neyta eiturlyfs-
ins krakks. Málið hefur undið upp á sig
í haust og svo fór á dögunum, að hann
neyddist til að viðurkenna tilvist þess
og biðjast afsökunar. Síðan hefur ann-
að myndband komið upp á yfirborðið.
Það sýnir þennan skrautlega borg-
arstjóra, sem kjörinn var árið 2010, í
miklu reiðikasti. Hann eys úr skálum
reiði sinnar yfir ónefndan mann og
hótar að myrða hann. Myndbandið
virðist hafa verið tekið upp á síma
án þess að borgarstjórinn yrði þess
var. Mikill pressa er á Ford að segja
af sér en hann hefur, hingað til í það
minnsta, ekki tekið það í mál. En hver
er þessi skrautlegi borgarstjóri?
Eins og áður segir tók Ford við
stjórnartaumum í borginni árið 2010,
í desember nánar tiltekið. Hann
hafði fram að því, frá árinu 2000, ver-
ið borgarfulltrúi í Etobicoke, sem er
hverfi innan borgarinnar. Bróðir hans
á sæti í borgarráði auk þess sem fað-
ir hans var stjórnmálamaður. Fjöl-
skyldan er eigandi Deco Labels, um-
búðaframleiðslufyrirtækis sem skilar
þeim miklum tekjum. Rob Ford ólst
upp við allsnægtir og stefndi á að
verða atvinnumaður í amerískum fót-
bolta. Af því varð ekki því hann komst
ekki einu sinni í háskólalið. Hann
hrökklaðist úr háskólanámi, úr stjórn-
málafræði, og fór að vinna hjá fjöl-
skyldufyrirtækinu – sem hann í dag
stýrir ásamt öðrum fjölskyldumeðlim-
um.
Ford reyndi fyrir sér sem þjálfari
skólaliðs í amerískum fótbolta en var
látinn fara eftir að hafa lent í útistöð-
um við leikmann. Hann stýrði Don
Bosco Catholic Secondary School í 12
ár, frá 2001 til 2013, eða þar til hann
var látinn fara vegna myndbands-
ins margumrædda. Ford hefur látið
gott af sér leiða í heimi íþróttanna því
hann hefur látið fé af hendi rakna til
skóla sem hafa átt í erfiðleikum með
að halda úti fótboltaliðum.
Ford, sem er í yfirvigt, hefur ekki
verið við góða heilsu undanfarin ár.
Hann þjáist af astma og hefur í tvígang
þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna
nýrnasteina. Einu sinni var hann lagð-
ur inn vegna ertingar í hálsi. Hér fyrir
neðan má lesa hvernig málinu, sem
hann sætir nú gagnrýni fyrir, hefur
undið fram. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Bindið stal
senunni
Þegar Rob Ford baðst
afsökunar á því að
hafa reykt krakk vakti
klæðaburður hans
athygli. Hann var í hefð-
bundnum jakkafötum
og hvítri skyrtu, eins
og svo sem flestir, en
með litskrúðugt bindi.
Fjölmargar greinar
hafa verið skrifað um
bindið sem skorar ekki mörg stig hjá
tískulöggum. Á bindinu eru lógó liða
í NFL-deildinni. Sams konar bindi er
nú til sölu á eBay.
3. maí Robyn
Doolittle og Kevin
Donovan, blaðamenn
Toronto Star, hitta
Mohamed Siad,
meðlim Dixon Bloods-
glæpaklíkunnar í
Toronto, í aftursæti
bifreiðar í Toronto.
Siad sýnir þeim
myndband af borgar-
stjóranum á farsíma og
segist ætla að reyna að
selja myndbandið fyrir
háa fjárhæð.
22. maí Doug Ford, bróðir borgar-
stjórans, kemur honum til varnar
á blaðamannafundi. „Aldrei, aldrei
hefur kanadískur stjórnmálamaður eða
fjölskylda hans fengið svona meðhöndlun
hjá fjölmiðlum.“
23. maí Gawker tilkynnir að 165
þúsund dalir hafi safnast, 20 milljón-
ir, en forsvarsmenn vefjarins séu ekki
lengur í sambandi við seljandann.
1. júní Nokkur
hundruð manns
mótmæla í
miðborg Toronto
og kalla eftir
afsögn borgar-
stjórans. Í skoð-
anakönnun kemur
fram að fleiri en færri
telji að myndbandið sé til.
12. júní Rob Ford tilkynnir að hann
muni ekki gefa kost á sér aftur fyrir
borgarstjórnarkosningarnar 2014.
18. júlí Forsvarsmenn Gawker
tilkynna að peningarnir sem söfnuðust
vegna myndbandsins verði gefnir til
fjögurra góðgerðasamtaka, samtals
rúmlega 25 milljónir króna.
17. ágúst Lögreglan í Toronto
yfirheyrir fimm fyrrverandi starfsmenn
borgarstjórans vegna gruns um að
bílstjóri hans, Alessandro Lisi, hafi reynt
að kaupa umrætt myndband.
9. september Siðanefnd blaða-
manna í Toronto fjallar um meint brot
Toronto Star á siðareglum í tengslum við
umfjöllun um málefni borgarstjórans.
Ford borgarstjóri mætir ekki þó hann sé
boðaður.
31. október (kvöld) Ford tjáir
sig opinberlega og getur ekki annað en
játað tilvist myndbandsins. Hann segist
þó ekki ætla að segja af sér embætti.
„Það er engin ástæða fyrir mig að segja
af mér. Ég ætla að halda áfram að gera
það sem ég var kjörinn til að gera.“
7. nóvember Annað myndband kem-
ur fram í dagsljósið þar sem Ford talar um
að myrða manneskju. „Annaðhvort deyr
hann eða ég,“ sagði hann og baðst síðar
afsökunar á myndbandinu. Afsakaði hann
sig með því að segjast hafa verið mjög
ölvaður þegar myndbandið var tekið.
30.–31. október Hæstiréttur Ontario
í Kanada úrskurðar að rannsóknargögn
lögreglu vegna bílstjóra Fords borgarstjóra
skuli gerð opinber. Þau eru gerð opinber
daginn eftir og þar kemur ýmislegt fram
sem rennir stoðum undir það að Ford hafi
reykt krakk. Í gögnunum kemur fram að lög-
regla hafi fylgst með ferðum Lisi og Fords
í nokkra mánuði, eða frá mars og fram í
október. Í kjölfarið stígur fyrrverandi sam-
starfsmaður Fords fram og segir að Lisi
hafi útvegað Ford fíkniefni, meðal annars
marijúana og kókaín. Yfirmaður lögreglu
kemur fram á blaðamannafundi þann 31.
október og segir að lögregla hafi lagt hald
á myndbandið. Efni þess sé í samræmi við
umfjöllun fjölmiðla undanfarna mánuði. Lisi
er ákærður og yfirmaður lögreglunnar segir
að myndbandið, sem sýnir borgarstjórann
reykja krakk, muni koma fyrir sjónir almenn-
ings í dómsmáli gegn Lisi.
17. maí Ford tjáir sig í fyrsta skipti um
myndbandið þegar hann yfirgefur heim-
ili sitt árla morguns. „Þetta er ekki satt,
alveg fáránlegt.“ Gawker stofnar sjóð
sem hefur það að markmiði að safna
200.000 dölum, 25 milljónum króna, til
að kaupa myndbandið.
Hneykslismál
borgarstjórans
16. maí Vefmiðillinn Gawker greinir
frá tilvist myndbands sem á að sýna
borgarstjórann reykja krakk. Greint er
frá því að myndbandið hafi verið tekið
upp síðla árs 2012. Á sama tíma greina
Kevin Donovan og Robyn Doolittle
frá því opinberlega að þau hafi séð
myndbandið. Toronto Star birtir mynd
af Ford með þremur klíkumeðlimum, þar
af tveimur sem voru skotnir í mars 2013
með þeim afleiðingum að annar lést.
24. maí Rob Ford tjáir sig aftur
opinberlega um ásakanirnar. „Ég nota
ekki krakk og er ekki fíkill. Ég get ekki
tjáð mig um myndband sem ég hef ekki
séð og er ekki til.“
15. ágúst Pistlahöfundur Toronto
Sun greinir frá því að myndbandið hafi
komið fyrir augu fjölmargra lögmanna
í Toronto. Ástæðan sé sú að lögregla
hafi frakvæmt húsleit víða í hverfinu
þar sem myndbandið var meðal
annars haldlagt.
7. október Lögreglu-
skýrslum er lekið til
fjölmiðla en þar kemur
fram að bílstjóri Fords,
Alessandro Lisi, hafi
verið handtekinn þann
1. september eftir að
hafa reynt að láta töluvert
magn af marijúana í skiptum
fyrir farsíma sem hann sagði að hefði
verið „stolið af samstarfsmanni“. Menn
átta sig fljótlega á því að síminn sem um
ræðir geymir væntanlega umrætt mynd-
band af krakkreykingum borgarstjórans.