Hagskýrslur um landbúnað

Útgáva

Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1916, Síða 15

Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1916, Síða 15
Búnaðarskýrslur 1915 13* A Suður- og Vesturlandi hefur töðufengur verið í meðallagi og útheyskapur í betra lagi. Á Norður- og Austurlandi hefur töðufengur aftur á móti verið töluvert minni en i meöallagi og á Norðurlandi hefur útheyskapurinn líka verið tæplega í meðallagi, en á Austur- landi liefur hann aftur á móti verið í góðu meðallagi. Uppskera af jarðeplum hefur orðið 24 þúsund tunnur árið 1915. Er það miklu meira en næsta ár á undan, en þó fyrir neðan meðaluppskeru næstu 5 ára á undan, sem var 26 þúsund tunnur. Uppskera af rófum og næpum hefur aftur á nióti verið með mesta móti, 19 þús. tunnur, þar sem meðaltal undanfarinna 5 ára var að eins 13 þús. tunnur. Mótekja hefur verið 313 þús. hestar árið 1915 og er það miklu meira en að undanförnu. Árið 1914 var mótekjan 251 þús. hestar, en árin 1910—14 að meðallali 261 þús. hestar. Hrísrif hefur líka verið meira 1915 heldur en undanfarin ár, 15 þús. hestar. Árin 1910—14 var það að meðaltali 12 þús. hestar.

x

Hagskýrslur um landbúnað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.