Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1920, Page 7
Inngangur.
Introduclion.
I. Búpeningur.
Lc bétail.
Framteljendur búpenings hafa verið taldir í búnaðarskýrsl-
unurn svo sem hjer segir:
1914.... .. 11 086
1915.... .. 11 070
1916 .... .. 11 443
1917 .... .. 11 925
1918 .... .. 12 103
Hefur framteljendum samkv. þessu fjölgað töluvert siðan' 1915.
í fardögum 1918 var sauðfjenaður talinn samkvæmt búnað-
arskýrslunum 645 þúsund. Reynslan undantarið bendir til þess,
að fjártalan í búnaðarskýrslunum muni vera töluvert of lág. Þannig
reyndist sauðfjenaðurinn við fjárskoðunina veturinn 1906—07 um
109 þús. fleiri en fram var talið í búnaðarskýrslunum vorið eftir
(1907). En með því að ekki virðist ástæða til að ætla, að framtalið
muni vera mun betra eða lakara eitt árið heldur en annað, mun
Iíklega óhætt að byggja á búnaðarskýrslunum samanburð milli ára
um tiltölulega fjölgun eða fækkun.
Vorið 1917 töldu búnaðarskýrslurnar sauðfjenaðinn nál. 604
þúsund. Hefur honum því fjölgað fardagaárið 1917—18 um rúndega
41 þúsund eða 6.8 °/o. Sauðfjenaðurinn hefur aldrei áður náð svo
hárri tölu í búnaðarskýrslunum. Hann hefur áður verið talinn
mestur 635 þús. vorið 1913, en 1913—15 fækkaði sauðfje alls um
79 þúsund. Fækkunin þessi tvö ár hefur svo riflega unnist upp á
næstu þrem árum á eftir (1915—18).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig sauðfjenaðurinn skiftist vorið
1918 samanborið við árið á undan.
1917 1918 Fjölgun
Ær 429 082 447 778 4 u/o
Sauðir og hrútar 47 307 48 953 3 —
Gemlingar 127 308 148 240 16 —
Sauðfjenaður alls .. 603 697 644 971 7 °/o