Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1927, Qupperneq 13
Búnaðarskýrslur 1925
11
jarðabætur þær, sem unnar hafa verið á landinu, komi betur fram í
skýrslunum nú heldur en áður, þegar aðeins voru teknar jarðabætur
búnaðarfjelagsmanna. En auk þess hefur verið bætt við nokkrum tegund-
um jarðabófa, sem ekki voru teknar með áður, svo sem grjótnám, opnir
framræsluskurðir og heyhlöður. Skýrslurnar eru annars í svipuðu formi
eins og áður. Yfirlitsskýrslan eftir sýslum (tafla VI. bls. 19—23) er gerð
jafnnákvæm og sundurliðuð eins og skýrslur trúnaðarmanna Búnaðar-
fjelagsins, en skýrslurnar um jarðabætur innan svæðis hvers búnaðarfje-
lags (tafla VII, bls. 24—35) hafa verið dregnar nokkuð saman, svo að
þær eru ekki eins mikið sundurliðaðar.
Síðusfu árin hefur lala búnaðarfjelaga, sem styrk hafa fengið,
tala jarðabótamanna og tala dagsverka unnin af þeim við jarða-
bætur, verið sem hjer segir:
Dagsverlt
Fjelög Jarðabólamenn alls á mann
1921 .................... 111 1 779 102 000 57
1922 .................... 111 1 924 102 000 53
1923 .................... 115 1 997 101 000 50
1924 .................... 169 2 380 238 000 100
1925 .................... 176 2 797 354 000 127
Árið 1924 hækkar mikið bæði fjelagatalan, tala jarðabótamanna og
dagsverkatalan. En eins og áður er sagt stafar sú hækkun sennilega að
nokkru leyti frá því, að skýrslurnar hafa náð til fleiri jarðabóta nú heldur
en áður. Einnig hefur breyst nokkuð útreikningurinn á því, hvernig jarða-
bætur eru lagðar í dagsverk. En annars hefur líka orðið stórmikil aukn-
ing á jarðabótum árið 1925.
Matjurtagarðar, sem gerðir hafa verið síðustu 5 árin, hafa
samkvæmt jarðabótaskýrslunum verið samtals að stærð svo sem hjer
segir (talið í hektörum).
1921 .................. 7.4 ha
1922 ................. 7.9 —
1923 ................. 6.0 —
1921................... 7.8 —
1925 .................. ll.l —
Túnræktin hefur verið þannig 5 síðustu árin.
Nyrækt
TúnasljeUur Bylt óbylt Samtals
1921 . . . ... 159 5 ha 56.6 ha 12.2 ha 228.3 ha
1922 . . . . . . 175o — 80.1 — 14.3 — 269.4 —
1923 . . . . .. 2315 - 81.1 — 33.5 — 346.1 —
1924 . . . . . . 192.7 — 213.5 — 39.3 — 445 5 -
1925 . . . . . . 182.4 — 278.7 — 119.9 — 581.0 —