Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1945, Blaðsíða 17
BúnaSarsliýrslur 1943—44
13'
Þar sem tölur um garðastærðina vantar í skýrslur hreppstjóranna,
eða þær hafa þótt grunsamlegar, hefur verið hyggt á eldri tölum, að við-
hættu % af nýjum matjurtagörðum samkv. jarðabótaskýrslum. Eru töl-
urnar þá merktar með stjörnumerki (*).
III. Jarðargróði.
Procluit des récoltes.
í búnaðarskýrslunum er bæði hey, mór og hrís gefið upp í hestum.
En hesturinn af hverju þessu er misþungur, og einnig er töðuhesturinn,
útheyshesturinn o. s. frv. misþungur á ýmsum stöðum. Fer það nokkuð
eftir landshlutum, en þó getur munað töluverðu á nágrannahreppum og
jafnvel á bæjum í sama hreppi. A búnaðarskýrslueyðublöðunum hefur
því þess verið óskað, að tilgreind væri venjuleg þyngd í hreppnum á
hestinum af hverri tegund. Þetta hefur verið gert allviða, en þó hvergi
nærri allsstaðar. Samkvæmt þessum upplýsingum hefur því síðan 1930
hestum af öllum tegundum allsstaðar verið breytt í 100 kg hesta, en þar
sein upplýsingar hefur vantað um hestþyngdina, hefur verið í'arið eftir
upplýsingum fyrir nágrannahreppana eða þá, sem næstir voru með slíkar
upplýsingar. Samkvæmt þessu reyndist meðalþyngd á hesti í búnaðar-
skýrslunum 1930 jiessi:
Taða ............................... 86 kg
Othey af áveitu- og fiæðiengi .... 93 —
Annað úthey ................■...... 76 —
Úthey yfirleitt..................... 80 —
Svörður og mór ..................... 83 —
Hrís og skógarviður ................ 86 —
Eru þessi jiyngdarhlutföll notuð, þar sem hestum frá fyrri árum er
breytt í 100 kg hesta.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undanförnu
verið þannig (allsstaðar breytt i 100 kg hesta):
1901—05 meðaltal . . . . . 524 þús. hestar 1 002 þús. hestar
1906—10 — 536 — — 1 059 — —
1911 — 15 — 574 — 1 138 — —
1916—20 — 513 — 1 176 — —
1921—25 — 647 — — 1 039 - —
1926—30 — 798 1 032 — —
1931—35 — . . 1001 1 019 — —
1936—40 — . . 1 158 — — 1 089 — —
1939—43 — . . 1 291 — 1 026 -
1942 . . 1 343 — — 872
1943 .. 1 193 — — 871 —
1944 .. 1 338 — 860 — —