Hagskýrslur um landbúnað

Issue

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1950, Page 5

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1950, Page 5
Formáli. .1 vant-propos. Með löguni nr. .‘38 frá 29. april 194(3 var breyting gerð á innheimtu búnaðarskýrslnanna. Þangað lil höfðu hreppstjórar gerl búnaðar- skýrslur hver fyrir sinn hrepp eftir framtali búenda á manntalsþing- um. En samkvæmt tekjuskattslögunum frá 1921 skyldu bændur einnig telja fram til skattanefnda bústofn sinn og ýmislegt fleira viðvíkjandi bú- skapnum. Mcð lögunum frá 1946 var nú þessum báðum framtölum slegið saman, þannig að skattframtalið var gerl að undirstöðu búnaðar- skýrslnanna, en hið sérstaka framtal til búnaðarskýrslna féll niður. Skyldu fonnenn skattanefnda (eða skattstjórar, þar scm þeir eru) gera búnaðarskýrslu til Hagstofunnar hver fyrir sinn hrepp upp úr fram- tölum búenda, með þeim breytingum, sem skattanefndin hefur gerl á þeim, og að viðbættri áætlun hennar á því, sem framtöl hafa ekki koinið um. Þessi skipun kom fyrst til framkvæmda 1916, og hefur breytingin valdið því, að skýrslurnar fyrir það ár hafa orðið miklu síðbiinari en ella, en væntanlega vinnsl sá dráttur upp aftur á næstu skýrslum. Breytingin hefur haft það í för með sér, að skýrslurnar um stærð túna og ínatjurtagarða falla niður, enda voru þær orðnar harla vafasamar, þar sem þær voru að mestu leyti byggðar á gömlum tölum með áætlaðri viðbót samkvæmt jarðabótaskýrslum, en allar upplýsingar vantaði hin,s- vegar uin, hve mikið tún og matjurtagarðar hefðu gengið úr sér. Aftur á móti hafa bætzt við tvær nýjar töflur vegna breytingarinnar, uin bús- afurðir og um kaupgreiðslur við landbúnaðarstörf. Þá verður loks sú hreyting, að frainvegis verður tala búpenings miðuð við árslok, i stað þess, að hingað til hefur hún verið miðuð við fardaga, og veldur það þvi, að i skýrslunum fyrir árið 1946 eru tvær töflur um tölu búpen- ings, önnur miðuð við fardaga, samkvæmt gamla laginu, og hin við árslok, samkvæint nýja laginu. Hagstofa Islands, i septcmber lí)4i). Þorsteinn Þorsteinsson.

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.