Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1950, Síða 5
Formáli.
.1 vant-propos.
Með löguni nr. .‘38 frá 29. april 194(3 var breyting gerð á innheimtu
búnaðarskýrslnanna. Þangað lil höfðu hreppstjórar gerl búnaðar-
skýrslur hver fyrir sinn hrepp eftir framtali búenda á manntalsþing-
um. En samkvæmt tekjuskattslögunum frá 1921 skyldu bændur einnig telja
fram til skattanefnda bústofn sinn og ýmislegt fleira viðvíkjandi bú-
skapnum. Mcð lögunum frá 1946 var nú þessum báðum framtölum
slegið saman, þannig að skattframtalið var gerl að undirstöðu búnaðar-
skýrslnanna, en hið sérstaka framtal til búnaðarskýrslna féll niður.
Skyldu fonnenn skattanefnda (eða skattstjórar, þar scm þeir eru) gera
búnaðarskýrslu til Hagstofunnar hver fyrir sinn hrepp upp úr fram-
tölum búenda, með þeim breytingum, sem skattanefndin hefur gerl á
þeim, og að viðbættri áætlun hennar á því, sem framtöl hafa ekki koinið
um. Þessi skipun kom fyrst til framkvæmda 1916, og hefur breytingin
valdið því, að skýrslurnar fyrir það ár hafa orðið miklu síðbiinari en
ella, en væntanlega vinnsl sá dráttur upp aftur á næstu skýrslum.
Breytingin hefur haft það í för með sér, að skýrslurnar um stærð túna
og ínatjurtagarða falla niður, enda voru þær orðnar harla vafasamar,
þar sem þær voru að mestu leyti byggðar á gömlum tölum með áætlaðri
viðbót samkvæmt jarðabótaskýrslum, en allar upplýsingar vantaði hin,s-
vegar uin, hve mikið tún og matjurtagarðar hefðu gengið úr sér. Aftur
á móti hafa bætzt við tvær nýjar töflur vegna breytingarinnar, uin bús-
afurðir og um kaupgreiðslur við landbúnaðarstörf. Þá verður loks sú
hreyting, að frainvegis verður tala búpenings miðuð við árslok, i stað
þess, að hingað til hefur hún verið miðuð við fardaga, og veldur það
þvi, að i skýrslunum fyrir árið 1946 eru tvær töflur um tölu búpen-
ings, önnur miðuð við fardaga, samkvæmt gamla laginu, og hin við
árslok, samkvæint nýja laginu.
Hagstofa Islands, i septcmber lí)4i).
Þorsteinn Þorsteinsson.