Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1950, Blaðsíða 21
Búnaðarskýrslur 1946
19’
ráðið yfir suniarmánuðina, heldur líka vorið eða haustið eða nokk-
urn liluta þess. Einstaka skattanefndir hafa gefizt alveg upp við að
greina sumarfólkið frá og tilgreint aðeins ársfólk og annað fólk.
Krónutalan í yfirlitinu á við kaup greitt í peningum og' auk þess
það, sem greitt hefur verið í fóðrun búpenings, fatnaði eða öðrum
fríðindum en l'æði, húsnæði og þjónustu. Ef ekki var tilgreindur
ráðningartími eða annað það, sem máli skipti, þá var kaupgreiðslan
talin ósundurliðuð í einu lagi. Var það rúml. 1 millj. kr. eða 5% af
öllum tilgreindum kaupgreiðslum án fæðis, en þær námu alls rúml.
21 millj. kr.
Kaupgreiðslur í fæði koma hins vegar fram i dagatölunni í X. töflu,
því að hún táknar ekki vinnudaga svarandi til kaupgreiðslnanna, sem
tilfærðar eru, heldur fæðisdaga verkafólksins og þá einnig þeirra, sem
ekki fengu annað kaup en fæði (voru matvinnungar). Skattanefndun-
um eru árlcga gefin fyrirmæli um, með hvaða krónutölu þær skuli reikna
fæðisdaga verkafólks, annars vegar bændunum til frádráttar og hins
vegar verkafólkinu til tekna. Árið 1946 var þannig liver fæðisdagui’
karla reiknaður kr. 6.75, en kvenna kr. 5.00 til frádráttar fvrir bændur,
en til tekna fyrir verkafólkið reiknaðist fæðisdagur karla kr. 8.00 og
kvenna kr. 6.00.
Eftirfarandi yfirlit sýnir bæði hve mikið útborgað kaup var sam-
kvæint skýrslunum, og enn fremur verðnnvti fæðisins, reiknað eftir tölu
fæðisdaga með því verði, sem það reiknast fólkinu lil tekna af skatta-
nefndum. Liðléttingum er ekki skipt eftir kynferði, en fa'ði þeirra er
hér reiknað eins og fæði kvenna.
Kaup greitt í peningum og friðu, Ársfólk Smnarfólk Annað Samfals
öðru cn fícði: i,lis. kr. þós. kr. þús. kr. þús. kr.
Karlar............................ 6 204 3 227 2 664 12 095
Konur............................. 3 128 2 580 1 249 6 957
I.iðléttingar .................... 72 627 ' 243 942
Samtals 9 404 6 434 4 156 19 994
Úsundurliðað .................... - - - 1 047
Kaup greitt í fæði:
Karlar........................... 5 388 841 1 300 7 529
Iíonur........................... 3 734 850 743 5 327
I.iðléttingar ................... 217 588 382 1 187
Samtals 9 339 2 279 2 425 14 043
Með því að deila fæðisdagatölunni í X. töflu með 7 fæst vikutalan,
sem það fólk hefur verið ráðið, er skýrslan nær til, og kemur þá fram
yfirlit það, sem hér fer á eftir.
Arsfolk Sumarfólk Anmið Samtals
Vikur Vikur Vikur Vikur
Karlar.......................... 96 208 15 010 23 219 134 437
Konur .......................... 88 917 20 245 17 684 126 846
I.iðléttingar .................. 5 160 14 000 9 087 28 247
Samtals 190 285 49 255 49 990 289 530