Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1950, Page 29
Búnaðarskýrslur 1946
27'
héfur verið á, að í hlunnindaskýrslur síðustu ára inuni vanta allt að
helmingi laxveiðinnar og þriðjungi silungsveiðinnár.
Skýrsla uin laxveiði i hverri sýslu 1946 er í töflu XIV (bls. 54).
B. Hrognkelsaveiði.
La péche du lompe.
Hrognkelsaveiðar hafa verið taldar 6 siðustu árin svo seni hér segir:
1941 ........ 212 þús. 1944 134 þús.
1942 ........ 111 — 1945 100 —
1943 ........ 104 — 1946 43 —
Hrognkelsaveiðar hafa farið þverrandi samkvæmt hlunnindaskýrsl-
uiium, en samt má búast við, að skýrslugerðin hafi beðið nokkurn
hnekki við breytinguna og muni lækkunin 1946 vart eins eins mikil og
tölurnar benda til.
Sundurliðuð skýrsla um hrognkelsaaflann er i töflu XIV (bls. 55).
C. Selveiði.
La chasse anx phoques.
Selveiði hefur verið talin undanfarin ár svo sem hér segir:
Selir Kópar Selir Kópar
tals tnis tals tnls
1921—1925 meðaltal 554 4 543 1942 ............. 249 2 731
1926—1930 — 438 4 710 1943 135 2 753
1931 — 1935 — 311 3 760 1944 88 2 365
1936—1940 — 288 3 761 1945 103 2 196
1941—1945 — 155 2 656 1946 134 2 183
Skýrsla um selveiði í hverri sýslu er i töflu XIV (bls. 55).
D. Fuglatekja.
La chasse aux oiseaux.
Fuglatekja hefur farið mjög minnkandi samkvæmt hlunninda-
skýrslum undanfarinna ára, svo að 1941 —45 var hún ekki nema x/±
af því sem hún var 20 árum áður. Fýlungaveiði var bönnuð samkvæmt
lagaheimild vorið 1940 til varnar því, að menn sýktust af fýlasótt.
Svartfuglaveiði er orðin smáræði í samanburði við það sem áður var,
og rituveiði hefur gengið mjög til þurrðar. Af sjófuglum þeim, sem
áður voru taldir í hlunnindaskýrslum, hefur aðeins I u n d i n n komið
fram að nokkru ráði í skattskýrslum 1946. í töflu XIV er lundaveiði
1946 talin rúml. 57 þúsund. Er það tekið eftir skattskýrslum og í Vest-
mannaeyjum eftir áætlun. A undanförnum árum hefur lundaveiðin
verið talin: