Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1940, Blaðsíða 56
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
Á hverju ári kemur út eitt hefti af verslunarskýrslum, hún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarhlað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innílutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta i sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur hráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um ítarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 1 króna og 50 aurar
um árið.
r r
III. Arbók Hagstofu Islands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út i einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töílur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni, og kemur
út eilt hefti á ári. Komin eru út 14 hefti, sem ná yfir alt landið,
nema lítinn hluta af Árnessýslu. í viðauka verður hirt manntal
í 3 sýslum frá árinu 1729.