Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1944, Blaðsíða 108
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan telcur til meðferðar. Skýrslurnar koma út i
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 krónur um árið.
Á hverju ári kemur út eilt hefti af verslunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eilt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innílutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem siðar koma
um itarlegri skýrslur. Áskriflargjald er 5 krónur um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yíirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930.
IV. Manntal á íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalín. Komin eru út 16 liefti, og er í þeim alt
manntalið frá 1703, en í viðauka er birt manntal í 3 sýslum frá
árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti hans.