Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2008, Qupperneq 14
föstudagur 11. júlí 200814 Helgarblað DV
Odour Ramses Paul sem betur er
þekktur undir nafninu Paul Ramses
er menntaður stjórnmálafræðingur
sem er fæddur í Keníu. Paul kom til
Íslands árið 2004 á vegum íslenska
ABC-hjálparstarfsins. Mikil mót-
mæli hafa verið síðustu vikuna fyrir
utan dómsmálaráðuneytið. Síðasta
haust starfaði Paul með stjórnmála-
flokki Odinga ODM en eftir kosning-
arnar urðu miklar óeirðir í landinu.
Paul gekk í gegnum margt slæmt á
þeim tíma en flúði svo land.
Paul er hugsjónamaður
Obonyo Atieno starfaði í örygg-
issveitum ODM með Paul í Keníu
og kynntist honum í gegnum kosn-
ingarnar á síðasta ári. Þegar hann er
spurður um Paul er hann ekki lengi
að svara: „Hann er manneskja sem
fer niður í þorpin og fátækrarhverf-
in. Hann er maðurinn sem hjálpar
fólkinu þar, af öllum þjóðarbrotum.
Hann veit hvað fólkið í Keníu er að
ganga í gegnum og leggur sig allan
fram. Hann er heiðarlegur og trúr
hugsjónamaður sem ég treysti,“ segir
Obonyo og bætir við: „Það eru menn
sem eru að leita að Paul og þeir leita
að bróður hans. Paul er maður sem
er á flótta.“ Þegar Obyono er spurð-
ur um sína stöðu segist hann þurfa
að koma sér úr landi sem fyrst en
hann bað DV um að taka ekki fram
hvert hann myndi fara. „Þetta mál
snýst um manneskju sem gæti haft
áhrif á lýðræði í landinu en ef hann
verður sendur hingað núna er líf
hans í hættu.“ segir Obonyo og held-
ur áfram. „Þetta fólk getur gert allt,
ef flokksbræður hafa nú þegar verið
drepnir gæti Paul auðveldlega verið
drepinn líka.“
Listinn
Meðal þeirra gagna sem Paul
Ramses og stuðningsmenn hans
skiluðu inn til Útlendingastofnunar
til stuðnings því að fá hæli á Íslandi
var listi með nöfnum einstaklinga
sem höfðu starfað með öryggissveit-
um ODM-flokksins í kosningabarátt-
unni. Fyrir aftan nöfnin er tekið fram
hvort viðkomandi sé dáinn, horfinn
eða í útlegð. Á listanum er nafnið á
Paul Ramses og fyrir aftan það stend-
ur „í útlegð“.
Öryggissveitin hafði áhyggjur af
ákveðnu fólki innan flokksins og út-
bjó þess vegna listann. Paul vann
mikið með öryggissveitunum á
kosningafundum og var þess vegna
einn þeirra sem voru á listanum. Í
dag er listinn í höndum Útlendinga-
stofnunar, en hann hlýtur að teljast
sönnunargagn í umsókn Pauls um
pólitískt hæli. Lögfræðingur Pauls
staðfestir að Paul hafi verið á þess-
um lista. Haukur Guðmundsson,
settur formaður Útlendingastofn-
unar, vissi ekki um listann þegar
hringt var í hann. Hann tók fram að
þar sem málið hafi ekki verið tekið
fyrir hjá stofnuninni hefði það ekk-
ert verið skoðað. „En ég er með ein-
hvern lista hérna sem ég veit ekk-
ert hvað er. Þetta er bara nafnalisti,
en ég get ekkert tjáð mig um málið.“
Tekur hann fram að málið sé nú al-
gjörlega á forræði ítalskra yfirvalda
en Útlendingastofnun sendi öll þau
gögn sem lögfræðingur Ramses á Ít-
alíu biðji um.
Á eftir litlu fiskunum
Fólk sem er kunnugt í Keníu segir
að ríkisstjórn Kibakis hafi farið á eftir
„litlu fiskunum“ í flokki Odingas. Tal-
ið er að það hafi verið besta leiðin til
þess að veikja ODM-flokkinn án þess
að vekja of mikla athygli alþjóða-
samfélagsins. Ekki er vitað hvort fólk
sé ennþá að hverfa úr grasrót flokks-
ins. Ef þetta reynist rétt er líklegt að
Paul Ramses sé einn af litlu fiskun-
um sem flokkur Kibakis vill taka úr
umferð. Þó að Ramses hafi ekki ver-
ið einn af aðalmönnunum í kring-
um kosningabaráttuna var hann
mjög virkur í starfinu og mögulegur
framtíðarstjórnmálamaður. Paul var
á gistiheimili flóttamanna þegar DV
náði tali af honum. Þegar hann var
spurður um listann sagði hann áætl-
un flokks Kibaki að veikja grunnstoð-
ir ODM. „Ef stjórnarslit verða í land-
inu þyrfti að boða til nýrra kosninga
og þá er gott að vera búinn að losa sig
við ákveðna menn. Þess vegna reyna
þeir að brjóta niður þá sem voru
sterkir í síðustu kosningum.“ segir
Paul frá Ítalíu.
ODM staðfestir ekki
sögu Ramses
Janet Ongera, framkvæmdastjóri
ODM, sagði við DV að Kenía væri
friðsamt land. „Eftir kosningarnar
var hér hræðilegt ástand og ég get
staðfest það að lögreglan fangels-
aði og myrti flokksmenn ODM. En
nú er Odinga forsætisráðherra og
Kibaki forseti þannig að ríkisstjórn-
in er sterk og leitar leiða til að halda
friði í landinu.“ Sagði Janet að eng-
in hætta væri á því að flokksmenn
ODM væru ofsóttir vegna stjórn-
málaskoðana sinna í dag en bætti
því við að slíkt gæti leynilega átt sér
stað í landinu. „Ef svo væri, er ég ekki
í stöðu til þess að segja þér frá slíku.“
Þegar blaðamaður DV spurði Ong-
era gat hún ekki staðfest það að Paul
Ramses hefði starfað fyrir flokkinn í
Keníu. „Það getur verið að hann hafi
starfað fyrir einhverja aðra deild, en
ég sé hann ekki inni í kerfinu okkar.“
Hún ætlaði að athuga þetta fyrir DV
en ekki náðist í hana áður en blaðið
fór í prentun.
Þórunn Helgadóttir hjá ABC
hjálparstarfi segir engan vafa leika á
því að Paul hafi unnið með stjórnar-
andstöðunni.
Minnispunktar Jóns Magnússon-
ar, þingmanns Frjálslynda flokks-
ins, af fundi allsherjarnefndar um
mál Ramses birtust á vef Frjálslynda
flokksins. Þar segir að Paul Ramses
hafi þurft að fara af landi brott 2006
eftir að umsókn hans um áframhald-
andi atvinnuleyfi var synjað. Á síð-
asta ári sóttu hann og kona hans svo
„Hann var bara í áfalli.
Ég hvatti hann til að
leita áfallahjálpar því
að þetta getur setið
lengi í mönnum.“
Hugsjónamaður á flótta
Mál keníska flóttamannsins Pauls Ramses hefur vakið hörð viðbrögð í íslensku þjóðfélagi. Hann óttast um
líf sitt verði hann framseldur til Keníu vegna stjórnmálaafskipta sinna þar. Framkvæmdastjóri ODM hafði
engar upplýsingar um að hann hefði starfað fyrir flokkinn en útilokaði ekki að hann hefði starfað með einni
af deildum flokksins. Þórunn Helgadóttir hjá ABC-hjálparstarfi segir engan vafa leika á starfi hans fyrir
flokkinn. Vinur hans frá Keníu segir Paul vera heiðarlegan hugsjónamann.
Jón BJaRki MagnússOn
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Rosemary og Fídel rosemary var viðstödd mótmælin í gær en þau voru þau seinustu í daglegum mótmælum gegn ákvörðun
útlendingastofnunar.
sonurinn og Paul Paul gat einungis varið rúmum mánuði með nýfæddum syni
sínum áður en hann var sendur úr landi.