Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 8. Október 20082 Fréttir
erfitt að bjarga öllum
„Húseignir fólks eru oftar en ekki
kjölfestan í fjárhag og félagsleg-
um stöðugleika einstaklinga. Þess
vegna sláum við skjaldborg um
húsnæðislánin og verjum innlend-
ar innistæður bankareikninga og
séreignasparnað fólks í umrótinu,“
segir Jóhanna Sigurðardóttir, fé-
lags- og tryggingamálaráðherra,
um aðgerðir ríkisstjórnarinnar til
varnar fjárhag heimilanna í banka-
kreppunni. Bílalán og fjárfestingar
í hlutabréfum falli til dæmis ekki
undir lögin eða vernd ríkisstjórn-
arinnar og segir Jóhanna ljóst að
auðvitað sé ekki mögulegt að ríkið
ábyrgist allar skuldbindingar fólks.
Jóhanna segir öruggt húsnæði
eina af grunnstoðum velferðar-
samfélagsins og því mikilvægt að
ríkisvaldið geri sitt besta til að fólk
haldi húseignum sínum í því fjár-
málaumróti sem nú gengur yfir.
Kaupa lánin með afslætti
Neyðarlögin sem Alþingi sam-
þykkti í fyrrinótt gefa Íbúðalána-
sjóði takmarkalausa heimild til
að yfirtaka öll veðlán sem tengj-
ast húsnæðiskaupum, sé slíkt tal-
ið nauðsynlegt til að vernda hags-
muni lántakenda. Jóhanna segir
að síðan lögin voru samþykkt hafi
stöðugt verið unnið að því að finna
bestu leiðirnar til að fara, komi til
þessarar yfirfærslu lána. „Við erum
að greina hvaða úrlausnarefni við
þurfum að leysa áður en lán yrðu
flutt yfir. Það er ljóst að við þurfum
að skoða á hvaða verði við kaupum
lánin hjá bönkunum. Við hljótum
að kaupa þau með einhverjum af-
slætti sem gefur okkur þá svigrúm
til viðbótaraðgerða til að koma til
móts við þá sem hafa lent í greiðslu-
erfiðleikum,“ segir hún.
Til skoðunar er einnig hvernig
hægt er að víkka út heimildir Íbúða-
lánasjóðs, svo sem lengingar lána
eða frystingu afborgana, og bend-
ir Jóhanna á að þetta þurfi að gera
innan þess ramma sem áhættustýr-
ing Íbúðalánasjóðs leyfi.
Betra skjól hjá Íbúðalánasjóði
„Þetta er flókið og vandasamt
verkefni en við reynum að klára
þetta sem allra fyrst. Ég bið fólk
um að vera alveg rólegt. Húsnæð-
islánin verða í öruggum höndum,
annaðhvort hjá núverandi lána-
stofnunum eða hjá Íbúðalánasjóði
verði eftir því leitað. Þegar og ef við
tökum þau yfir reynum við að gera
það besta fyrir hvern og einn, þó
auðvitað sé ekki hægt að fullyrða
að hægt verði að bjarga öllum fjár-
hagsvanda vegna húsnæðislána.
En við reynum að finna úrræði fyrir
alla. Við gerum allt sem við getum
en í þessum áföllum sem dynja yfir
mun auðvitað eitthvað láta undan.
Við gerum allt sem mögulegt er,“
segir Jóhanna og leggur áherslu á
að vernda þurfi heimilin í landinu.
„Lykilatriðið er að fólk sem er
með lánin sín hjá lánastofnunum
sem mögulega lenda í erfiðleikum
kemst í betra skjól hjá Íbúðalána-
sjóði. Þar gerum við allt sem við
getum til að leysa úr vanda hvers
og eins,“ segir hún.
Var rétt af stjórnVöldum að taka yfir landsbankann?
„Ég hef ekki nægar forsendur til að meta
hvort þetta var skynsamlegt skref af
ríkinu. Ég held að allir hafi áhyggjur af
ástandinu og veit að allir eru að gera það
sem þeir geta til að bjarga því sem
bjargað verður. Ég verð því bara að treysta
þeim sem völdin hafa. en núna er ég á
leiðinni í bankann til að athuga hver staða
mín er, og auðvitað borga reikningana.“
Guðrún Ólafía Jónsdóttir
„Þetta hlýtur að vera góð hugmynd fyrst
þetta var gert. Ég hef ekki nógu mikla
þekkingu á efnahagsmálum til að meta
þetta sjálfur. Mér var brugðið þegar ég
heyrði af þessu í fréttunum í morgun.
engu að síður átti ég allt eins von á
frekari aðgerðum ríkisstjórnarinnar. en
ég á ekkert sparifé í Landsbankanum
heldur var ég bara aðeins að útrétta.
Þórður Karlsson
„Ég þori ekki að meta hvort þetta er það
rétta í stöðunni. Það hafa vissulega
margar rangar ákvarðanir verið teknar
síðustu árin en ég veit ekki með þessa.
Sjokkið var þegar komið eftir kaupin á
glitni þannig að mér brá ekki mikið við
þetta. annars skulda ég engum neitt og
er bara að velta fyrir mér hvort ég eigi
að kaupa evrur eða dollara.“
Stefán Þorgrímsson
„Mér brá ekki við þessar fréttir. breyting-
arnar í efnahagsástandinu gerast svo
hratt að maður veit varla hvað gerist eftir
klukkutíma. Fólk er því orðið öllu vant. Ég
get ekki metið hvort þetta var rétt
ákvörðun en þegar efnahagsástandið er
jafn bágborið og raun ber vitni þarf
auðvitað að grípa til ráðstafana sem
annars væru óhugsandi. Nú virðist sem
rússarnir séu að kaupa Ísland. en þetta
snertir mig ekki því glitnir er minn
viðskiptabanki.“
Séra Jakob Rolland
„Ég held að það sé gott mál að
þjóðnýta bankana.
Landsbankinn stóð illa eftir
glæfralegar fjárfestingar.
Það er samt auðvitað
ekkert mitt að dæma.
en ég er frá Lettlandi
og þetta snertir
mig lítið.“
Jan Sacs
„Ég er mjög sáttur við þessa ákvörðun.
geir sýnir þarna mikla djörfung. Ég á
innistæðu í Landsbankanum og er mjög
ánægður. Ég held að nú sé ég tryggari
með mína innistæðu. Ákvörðunin kom
mér á óvart, en á ánægjulegan hátt. Ég
bjóst ekki við því að geir væri svona
frumlegur.“
Ríkarður Bergstað Ríkarðsson
„Ég velti fyrir mér hvort nokkuð annað
hafi verið í stöðunni. Ég á innistæðu í
Landsbankanum og held að hún sé trygg.
raunar kom ákvörðunin mér ekki á óvart.
Ég held að það hafi verið kominn tími á
Landsbankann. eins og ég met stöðuna
núna held ég að þetta hafi verið hárrétt
ákvörðun.“
Jónína Lárusdóttir
„Ég var að athuga stöðuna mína í
bankanum og það er bara allt lokað. Ég
get ekki hreyft sparnaðinn minn. Ég er því
mjög áhyggjufullur. Hins vegar held ég að
ríkið hafi ekki farið þessa leið nema af illri
nauðsyn. Líklega kom ekkert annað til
greina. Ég hef þó áhyggjur af ungu fólki
sem jafnvel missir aleiguna sína við þetta.
Stjórnvöld þurfa að hugleiða það.“
Albert Ríkharðsson
„Þetta eru bara viðskipti. Hér starfar
frábært fólk sem hefur gert sitt allra
besta. Ég hef engar áhyggjur af minni
stöðu. Þetta er auðvitað banki eins og
aðrir hér í landi sem versla með fé. Þessi
þrenging á alheimsmarkaði leiðir til þess
að það þarf að borga upp lánin án þess
að til séu peningar fyrir því. Þessi lending
var ágæt.“
Arnar Hannes Gestsson
„Þetta er hræðilegt. Ég reyndi að koma
hingað í gær og skipta peningabréfum yfir
á verndaða reikninga en það var ekki hægt.
Þetta eru peningabréf fjölskyldunnar og
hluti af ævistarfi okkar. Í dag fæ ég heldur
engin svör og það er hreinlega lokað á
mann. björgólfsfeðgar sem ég treysti hafa
misst sínar fjármálalegu buxur niður um sig.
Þeim hefur tekist að stórskemma líf fjölda
fólks. vonandi bjargast eitthvað en þetta er
mikill taugatitringur og erfiðir tímar.“
Egill Egilsson
dv Leitaði Svara HjÁ ÞeiM SeM Lögðu Leið SÍNa Í útibú LaNdSbaNkaNS Stuttu eFtir OpNuN Í gærMOrguN:
Jóhanna Sigurðardóttir segir mótunarvinnu í fullum gangi
um kaup Íbúðalánasjóðs á húsnæðislánum Landsbankans. Ekki
stendur til að taka yfir bílalán sem þó hafa einnig hækkað.
Greiðsluaðlögun fyrir þá sem sjá fram á gjaldþrot er meðal að-
gerða ríkisstjórnarinnar til bjargar efnahag þjóðarinnar.
ERLA HLynSdÓttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Löngu
tímabært
Meðal ann-
arra aðgerða rík-
isstjórnarinnar til
að koma til móts
við fólk í greiðslu-
erfiðleikum er
frumvarp um
greiðsluaðlögun
sem unnið hefur
verið í viðskipta-
og dómsmála-
ráðuneytunum.
Þegar frum-
varpið verður að
lögum geta heim-
ili sem komin
eru í greiðsluþrot
af óviðráðanleg-
um ástæðum, svo
sem þeim gengissveiflum sem nú
koma illa við marga, fengið met-
ið hversu stóran hluta höfuðstóls
lána það getur ráðið við. Ef niður-
staðan yrði sú að heimili gætu að-
eins greitt um 60 prósent yrðu all-
ar skuldir þess lækkaðar sem því
nemur, svo dæmi sé tekið.
Fyrirmynd að slíkum lögum er
sótt til hinna Norðurlandanna þar
sem gjaldþrotum fækkaði gífur-
lega í kjölfar lagasetningarinnar.
Jóhanna vonast til að frum-
varpið verði lagt sem allra fyrst fyr-
ir þingið. „Þetta gerir okkur kleift
að hjálpa fólki sem ekkert ann-
að blasir við en gjaldþrot,“ segir
hún og tekur fram að henni finnist
frumvarpið löngu tímabært.
Starfsmenn uggandi
Yfirtaka Íbúðalánasjóðs á hús-
næðislánum er þó aðeins eitt at-
riði neyðarlaganna. Þar er einn-
ig tekið fram að þegar ríkið hefur
tekið yfir fjármálastofnun sé það
ekki bundið af ákvæðum laga
um réttarstöðu starfsmanna
við aðilaskipti. Nokkurn
ugg setti því að starfs-
fólki Landsbankans í
gærmorgun þegar
ljóst var að bank-
inn hafið ver-
ið tekinn yfir
en samkvæmt
lögunum er
ríkið ekki
skuldbund-
ið til að veita
starfsmönn-
um banka
sömu réttindi
og þeir höfðu
fyrir yfirtökuna.
Björgvin G.
Björgvinsson við-
skiptaráðherra hug-
hreysti starfsfólkið á
starfsmannafundi
sem hald-
inn var í
matsal
„Við hljótum að kaupa
þau með ei�h�erjum
afslætti sem gefur
okkur þá s�igrúm til
�iðbótaraðgerða.“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ár
sinsþriðjud
agur 7. október 2008 dagblaðið vísir
185. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
Dagurinn í Dag verður erfiður:
fólk
Vill Davíð
í endurhæfingu
Hollur
matur
Hækkar mest
fréttir
fréttir
Gréta Morthens söng með föður sínum
„Þjóðin horfist nú í augu við skelfilegar aflei
ðingar“
Hrikalegar
verðHækkanir yfirvofandi
Bubbi stoltur
af dótturinni
neytendur
Hannes
var rétt að byrja
fréttir
eining evrópu
brostin
Skuldurum
verður
bjargað
„sláum skjaldborg um hag almennings,“
segir björgvin g. sigurðsson
erlendu lánin verða yfirtekin og lækkuð
verðtryggð lán snarhækka eftir gærdaginn í gær
Lánin örugg jóhanna Sigurðar-
dóttir hvetur fólk til að halda ró
sinni og bendir á að íbúðalánin séu
mun öruggari hjá Íbúðalánasjóði.