Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Side 6
Miðvikudagur 8. Október 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Blaðamenn
reknir á dyr
Öllum blaðamönnum sem
ætluðu sér að vera viðstaddir
starfsmannafund Landsbankans
með forsætisráðherra, viðskipta-
ráðherra og fjármálaráðherra í
gær var vísað úr bankunum. Tölu-
verður fjöldi blaðamanna og ljós-
myndara var kominn inn í bank-
ann en þeim var umsvifalaust
vísað út. Fundurinn með starfs-
mönnum átti að hefjast klukk-
an tólf en hann hófst ekki fyrr en
allir blaðamenn og ljósmyndarar
höfðu yfirgefið bankann.
Lýst eftir
íslenskri konu
í Færeyjum
Lögreglan í Færeyjum lýsti
í gær eftir íslenskri konu, Val-
gerði Brand, sem ekkert hef-
ur spurst til síðan á laugar-
dag. Valgerður, sem er 61 árs,
átti að fara aftur til Íslands
með flugi á mánudagskvöld
en skilaði sér ekki í flugið. Í
kjölfarið var farið að grenslast
eftir henni en hún hugðist
ferðast akandi um eyjarnar.
Hún gisti á hóteli í Þórshöfn
en síðast sást til hennar þegar
hún leigði bifreiðina á laug-
ardaginn. Valgerður er sögð
ljóshærð og lágvaxin.
„Þið fjölmiðlamenn eigið að vera
krítískir, en samúð ykkar virðist vera
með stóru hluthöfunum – mín sam-
úð er með þeim auðvitað en meira
með almenningi,“ sagði Davíð Odds-
son seðlabankastjóri í Kastljósi RÚV í
gærkvöld þar sem hann sat fyrir svör-
um um embættisverk sín. Hann sagði
að sem betur fer væru menn að fara
þá leið í bankakreppunni að láta hana
ekki bitna á almenningi. Um leið og
menn áttuðu sig á því að ekki væri ætl-
unin að láta almenning blæða mundi
staðan batna og gengið styrkjast.
Hann kvaðst hafa varað stjórn-
völd við og hafa gengið á fund for-
ráðamanna ríkisstjórnarinnar og lýst
gríðarlegum áhyggjum. Raunar hefði
hann lýst ástandinu sem nú er upp
komið við bankastjóra fyrir 12 til 14
mánuðum. Menn hefðu líklega talið
sig of svartsýnan.
Aðspurður kvaðst hann geta hætt
strax sem seðlabankastjóri ef það
leysti einhvern vanda. Hann heyrði
það einkum frá þokkalega vel reknu
félagi sem hamast hefði á sér í þrjú
til fjögur ár. Hann hefði aldrei svar-
að gagnrýni. Davíð kvaðst ekki víkj-
ast undan ábyrgð; hann hefði opnað
þjóðfélagið en gæti ekki borið ábyrgð
á því að einhverjir misnotuðu frelsið.
Davíð sagði að þegar banki – eins
og Glitnir – væri að fara í þrot væri
orðsporsáhættan mikil. Framlag rík-
isins til lausnar málsins hefði verið
rosalega vanþakkað og hann hefði
aldrei vitað meira vanþakklæti. Rík-
inu bæri engin skylda til þess að
leggja fram fé og lán til þrautavara
væru aldrei veitt nema með hörðum
skilyrðum til dæmis um að skipta út
stjórnarmönnum. Ef illa færi mundi
Seðlabankinn tapa miklu.
Davíð gagnrýndi útrásina. „Ég hef
aldrei verið að bera lof á þessa útrás.
Mér hefur alltaf þótt hún vera mikið
furðuverk... Ég söng aldrei þennan
útrásarsöng.“
Davíð Oddssyni hefur alltaf þótt útrásin mikið furðuverk:
Vanþakklátir Glitnismenn
Davíð Oddsson Seðlabanka-
stjóri svaraði fyrir embættis-
verk sín í kastljósi.
Ríkið tekur Glitni
Hópur fólks frá fjármálaeft-
irlitinu fór inn í höfuðstöðvar
Glitnis um klukkan 21 í gær-
kvöld og neitaði að tjá sig um
hvaða erindi það ætti í bank-
ann. Samkvæmt heimildum DV
tengdist heimsóknin yfirtöku
ríkisins á Glitni og að ríkisvæða
ætti bankann með sama hætti
og Landsbankann aðfaranótt
þriðjudags. Glitnir var kominn
í nær vonlausa lausafjárstöðu í
gær. Hluthafafundur hafði verið
boðaður á laugardag. Sam-
kvæmt þessu er samningurinn
við ríkið út af borðinu og ríkið
þarf ekki að leggja fram 84 millj-
arða króna. Hluthafar í Glitni
missa samkvæmt þessu allt sitt.
Sérþjálfaðir lífverðir úr sérsveit
ríkislögreglustjóra fylgdu Geir
H. Haarde í gær en þeir vöktuðu
meðal annars Stjórnarráð Íslands
þar sem forsætisráðherrann varði
drjúgum hluta af degi sínum.
Ekki hefur áður þótt ástæða til
að vernda forsætisráðherra Íslands
eða aðra ráðherra ríkisstjórnarinn-
ar á götum úti en vegna ástandsins
í fjármálaheiminum þykir mönn-
um nú nauðsynlegt að vernda Geir.
Samkvæmt heimildum DV var
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra líka með lífverði en af-
þakkaði þá eftir tvo daga.
Blaðamaður yfirheyrður
Um leið og fregnir bárust af líf-
vörðum Geirs hélt blaðamaður DV
ásamt ljósmyndara niður í Stjórn-
arráð Íslands þar sem forsætisráð-
herrann var staddur á fundi ásamt
Ingimundi Friðrikssyni seðla-
bankastjóra, Tryggva Þór Her-
bertssyni, sérlegum efnahagsráð-
gjafa Geirs, og fleiri sérfræðingum.
Lífverðir Geirs fylgdust náið með
mannaferðum í kringum Stjórnar-
ráðið út um glugga þess á meðan á
fundinum stóð.
Eftir nokkra bið fyrir utan
Stjórnarráðið mættu tveir sérsveit-
armenn á merktri lögreglubifreið
og staðnæmdust hjá blaðamanni.
Sérsveitarmennirnir kröfðu blaða-
mann og ljósmyndara um skil-
ríki og sönnun þess að þeir ynnu
á fjölmiðli. Eftir að hafa sett ofan í
við blaðamenn vegna þess hvern-
ig bíl þeirra var lagt sáu sérsveitar-
mennirnir ekki tilefni til frekari yf-
irheyrslna og keyrðu á brott.
Á ómerktri Toyotu
Um klukkan hálf níu í gær-
kvöldi yfirgaf Geir síðan Stjórn-
arráðið og settist upp í BMW-
bifreið sína ásamt bílstjóra og
vildi ekkert tjá sig um þessa nýt-
ilkomnu vernd. Jakkafataklæddu
lífverðirnir fylgdu honum út og
stigu upp í ómerkta Toyota Cor-
olla-bifreið. Lífverðirnir fylgdu
síðan forsætisráðherra heim til
sín í Granaskjól og lokuðu göt-
unni á meðan Geir steig út úr bíl
sínum og gekk inn.
Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra og æðsti yfirmaður sér-
sveitarinnar, vildi ekkert segja til
um það af hverju lífverðir gættu
Geirs eða hver hefði tekið þá
ákvörðun að vernda hann.
„Samkvæmt öryggisreglum
skýrir embætti ríkislögreglu-
stjóra ekki frá því hvernig staðið
er að öryggisgæslu, hvort heldur
einstaklingar eða stofnanir eiga í
hlut,“ sagði Björn þegar hann var
inntur eftir svari.
Lífverðir vöktu athygli
Lífverðirnir sem fylgja Geir
eru oftast nær klæddir í nýpress-
uð svört jakkaföt, með talstöð í
eyranu og tilbúnir í hvað sem er.
Slíka harðjaxla sér hinn almenni
borgari aðeins í Hollywood-kvik-
myndum og því hafa lífverðir
Geirs vakið mikla athygli með-
al annars á Alþingi en þar fylgdu
þeir honum eftir hvert fótmál.
Þingmanni sem blaðamaður DV
ræddi við í gær þótti það ekk-
ert skrítið að forsætisráðherra
væri kominn með lífverði í ljósi
þess sem nú er í gangi á Íslandi.
Óánægjan með störf hans væri
svo mikil að best væri að hafa all-
an varann á.
LÍFVERÐIR
GÆTA GEIRS
Líf Geirs H. Haarde er í hættu ef marka má öryggisgæsluna sem nú er í kringum for-
sætisráðherrann. Sérþjálfaðir lífverðir frá sérsveit ríkislögreglustjóra fylgja Geir
hvert sem hann fer og keyra um á ómerktum bifreiðum til að vekja ekki athygli.
Fylgst er með öllum mannaferðum í kringum Stjórnarráð Íslands og sérsveitin köll-
uð út ef einhverjir þykja grunsamlegir.
Geir í hættu? Lífverðir fylgja nú forsætis-
ráðherra Íslands hvert sem hann fer.
MYND SIGTRYGGUR
ATLI MÁR GYLfASON
blaðamaður skrifar: atli@dv.is