Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Side 12
Miðvikudagur 8. Október 200812 Fréttir
xxxxx
xxxxx
FjármálakerFi
á sandi reist
20 % afmælisafsláttur
af öllum hefðbundnum
myndatökum og stækkunum
í október.
Nú er um að gera að panta stax
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Þriggja ára gyðja
Þriggja ára stúlka, Matina Shakya, í
Nepal hefur verið titluð lifandi gyðja,
því forveri hennar, Preeti Shakya, var
orðin of öldruð og þurfti að setjast í
helgan stein, ellefu ára að aldri.
Gyðjan Kamari, sem þýðir jómfrú,
er í hávegum höfð í Nepal. Að sögn
fréttastofunnar ANI er kominn tími
til að skipta hinni ellefu ára Preeti
út fyrir yngri gyðju, enda ekki með
góðu móti hægt að treysta á skírlífi
hennar, þegar hún er komin á þenn-
an aldur.
Heilsuviðvörun
á homma
Breski presturinn Peter Mullen vill
grípa til örþrifaráða í baráttunni við
samkynhneigð. Á bloggsíðu sinni
lagði Mullen til að heilsuviðvör-
un yrðið húðflúruð á bak samkyn-
hneigðra manna: „Sódómska er afar
hættuleg heilsunni.“
Fljótlega eftir að færslan birtist
á bloggsíðu Mullens fékk hann,
að sögn breska blaðsins Evening
Standard, fyrirmæli um að fjarlægja
færsluna, frá yfirboðurum sínum.
Síðan sagði hann að ummælin
hefðu verið misskilin, þau hefðu
verið meint sem grín. „Ég hef ekkert
á móti samkynhneigðum og á sjálf-
ur samkynhneigða vini,“ sagði Peter
Mullen.
Þróun mannsins
lokið
„Þróun mannsins er lokið,“ seg-
ir Steve Jones erfðafræðingur við
Lundúnaháskóla. Hann telur að
stöðvun þróunarinnar megi rekja til
fækkunar fullorðinna feðra á Vest-
urlöndum. Að hans sögn eru feður
yfir þrjátíu og fimm ára aldri líklegri
til að framkalla stökkbreytingar.
„Samfélagsbreytingar hjá mönnum
framkalla oft breytingar á erfða-
fræðilegri framtíð mannsins,“ segir
Jones prófessor. Hann segir að þó
kemísk efni og geislavirk mengun
geti breytt erfðum sé helsta hvatann
að stökkbreytingu að finna hjá full-
orðnum karlmönnum. Benedikt sextándi páfi fer ekki í
grafgötur með skoðanir sínar á
ástæðu efnahagskreppunnar sem
sligar fjármálakerfi þjóða víða um
heim nú um stundir. Að sögn páfa
sýnir kreppan að fjármálakerfi
heims eru „byggð á sandi“ og að
einungis verk Guðs eru „gegnheill
raunveruleiki“.
Við upphaf biskupastefnu í
Vatíkaninu vísaði Benedikt páfi
til kafla í Matteusarguðspjalli sem
fjallar um falsspámenn og sagði:
„Sá sem aðeins byggir á sjáanleg-
um og áþreifanlegum hlutum eins
og árangri, frama og fjármunum
byggir hús sitt á sandi.“
Heimskir menn og hyggnir
Benedikt bætti við að það sem
við blasti nú um stundir; gjaldþrota
bankar og fjármunir sem verða að
engu, væru hjóm eitt. „Allir þessir
hlutir sem virðast vera raunveru-
legir eru í raun aukaatriði. Aðeins
verk Guðs eru gegnheill raunveru-
leiki,“ sagði páfi. Með þeim orðum
skírskotaði Benedikt páfi til orða
Jesú í sjöunda kafla Matteusar-
guðspjalls: „Varist falsspámenn.
Þeir koma til yðar í sauðaklæðum,
en innra eru þeir gráðugir vargar.“
Jesús bætir síðan við eftirfarandi:
„Hver sem heyrir þessi orð mín
og breytir eftir þeim, sá er líkur
hyggnum manni, er byggði hús sitt
á bjargi. En hver sem heyrir þessi
orð mín og breytir ekki eftir þeim,
sá er líkur heimskum manni, er
byggði hús sitt á sandi.“
Debet og kredit
Benedikt páfi sextándi notaði
tækifærið við opnun ráðstefn-
unnar á sunnudaginn til að ráðast
að nútímamenningu og sagði að
„...þjóðir sem eitt sinn státuðu af
mikilli trú og köllun væru að glata
sjálfsmynd sinni vegna skaðlegra
og niðurrífandi áhrifa ákveðinnar
nútímamenningar.“
En páfinn er ekki eini trúar-
leiðtoginn sem hefur tjáð sig um
efnahagsástandið. Fyrir tæpum
þremur vikum gerði Gunnar Þor-
steinsson í Krossinum kreppuna
að umræðuefni á heimasíðu
Krossins. Þar segir Gunnar með-
al annars: „Það er panikástand
á fjármálamörkuðum. Sveiflurn-
ar eru ótrúlegar og manni kemur
í hug hvort við séum að nálgast
stóra uppgjörið þegar Guð mun
leiða í ljós hvað er debet og hvað
er kredit.“
Gunnar og Benedikt
Efnahagsástandið hefur verið
Gunnari ofarlega í huga undan-
farið, en ekki líklegt að orð hans
hafi jafnmikið vægi og Benedikts
páfa í Vatíkaninu. Það kemur eðli
málsins samkvæmt ekki í veg fyrir
að Gunnar tjái sig um kreppuna og
tengi hana trú eða hnignun þar á.
Á síðu Krossins er að finna færslu
frá fimmta þessa mánaðar og þar
dembir Gunnar andkristi inn í
þann ólgusjó sem nú skekur must-
eri Mammons og í beinu fram-
haldi ógnar fjárhagslegri afkomu
almennings víða um lönd. Gunnar
segir: „Við erum að sjá fyrir augum
okkar örðugar tíðir um veröld alla.
Minn skilningur á Ritningunni er
sá að áður en þrengingarnar skella
á með fullum þunga og andkrist-
urinn kemur fram á sjónarsvið-
ið munu þeir sem lifa sigrandi lífi
með Kristi hverfa héðan af jörðu.“
Hér skírskotar Gunnar til kafla úr
Þessaloníkubréfi.
Efnið og andinn
Óhætt er að segja að Gunnar
kafar með ummælum sínum ör-
lítið dýpra undir brotsjói banka-
kreppunnar. Benedikt páfi hélt
andkristi utan við ummæli sín
um fjármálaþrengingar heims og
orsakir þeirra, eða í það minnsta
nefndi hann ekki beint. Vissulega
má segja að páfi skírskoti til hnign-
unar trúar á Guðs ríki og ofurtrú-
ar á efnisleg gæði, en hann kveður
ekki svo sterkt að orði að fullyrða
að þeir sem lifað hafa í anda kristi-
legra gilda verði hrifnir úr jarð-
heimi. Benedikt páfi hins vegar
beinir þeim orðum til fólks að end-
urmeta gildismat sitt og ofmeta
ekki efnisleg gæði sem eru hverf-
ul og horfa til verka og orða Guðs
sem standist tímans tönn.
Eflaust eru margir sem fórna
höndum á þessum síðustu og
verstu tímum og geta hvergi leit-
að hjálpar nema í trúnni sem hef-
ur, þrátt fyrir stefnur og strauma,
sem koma og fara, fengið að hald-
ast tiltölulega óbreytt með tilliti til
gilda og lögmála. Ef að líkum lætur
verða það ekki eingöngu almenn-
ir borgarar, sem berjast í bökkum
vegna þeirra skakkafalla sem nú
dynja yfir, sem horfa til himins í
von um hjálp á ögurstundu. Vænt-
anlega verður einnig um að ræða
menn sem horfa á rústir og sviðna
jörð, líta um öxl á eigin afrek og
biðja Guð sinn um sáluhjálp.
KolBEinn þorstEinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Benedikt páfi sextándi notaði tækifær-
ið við opnun ráðstefnunnar á sunnu-
daginn til að ráðast að nútímamenn-
ingu og sagði að „...þjóðir sem
eitt sinn státuðu af mikilli trú
og köllun væru að glata
sjálfsmynd sinni vegna
skaðlegra og niðurríf-
andi áhrifa ákveð-
innar nútíma-
menningar.“
Benedikt páfi sextándi notaði tækifærið við upphaf biskupastefnu í Vatíkaninu til
að bregða ljósi á orsakir fjármálakreppunnar sem skekur heimsbyggðina. Páfi gagn-
rýndi meðal annars ríki heims fyrir að varpa trú og köllun fyrir róða og ítrekaði að
aðeins orð Guðs stæðust tímans tönn.
Benedikt páfi sextándi
varaði við falsspámönnum
í ummælum sínum um
fjármálakreppuna. mynD AFP
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is