Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Blaðsíða 6
Miðvikudagur 22. Október 20086 Fréttir 20 % afmælisafsláttur af öllum hefðbundnum myndatökum og stækkunum í október. Nú er um að gera að panta stax Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is Ofbeldisfaðir enn til rannsóknar Ríkissaksóknari hefur enn til meðferðar mál manns á fertugs- aldri sem er grunaður um að hafa beitt þrjú börn sín hrotta- legu ofbeldi. Meðal annars er hann talinn hafa notað elsta barn sitt sem kastskífu og kastað hnífum að því þannig að á sá. Vonir standa til að málsmeðferð ljúki í þessum mánuði. Málið þykir sérlega alvarlegt og einstakt í sögu barnaverndar á Íslandi ef rétt reyndist. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Laun nefndarmanna í skilanefndum bankanna gefin upp en ekki bankastjóranna: Skilanefnd fær kvartmilljón í laun Nefndarmenn í skilanefndum ríkisbankanna þriggja; Kaupþings, Glitnis og Landsbankans, fá rétt lið- lega 250 þúsund krónur á mánuði. Í svari sem DV barst í gær frá Fjár- málaeftirlitinu segir meðal annars: „Nefndarmenn í skilanefndum eru starfsmenn Fjármálaeftirlitsins sam- kvæmt tímabundnum ráðningar- samningum sem gerðir hafa verið við þá og miðast starfskjör þeirra við 15. launaflokk - 8. þrep kjarasamnings stéttarfélags viðkomandi.“ Nefnd- armenn fá helming fullra launa, en samkvæmt kjarasamningum lög- fræðinga, viðskipta- og hagfræðinga eru full laun, miðað við ofangreind- an launaflokk, rétt liðlega 500 þús- und krónur á mánuði. Í svari FME segir einnig: „Jafn- framt eru gerðir verksamningar við vinnuveitendur skilanefndarmanna, t.d. endurskoðunarfyrirtæki, sem gera stofnuninni reikninga vegna annarrar vinnu eða álags skilanefnd- armanna eða starfsmanna þeirra. Við uppgjör þeirra samninga verð- ur tekið tillit til þess að skilanefnd- armönnum eru greidd laun vegna starfa sinna í þágu Fjármálaeftirlits- ins.“ Í fyrirspurn DV til Fjármálaeft- irlitsins þann 14. október var einn- ig óskað eftir upplýsingum um laun nýrra bankastjóra ríkisbankanna. Við því fékkst ekki svar. „Fjármálaeftirlitið hefur ekki upplýsingar um starfskjör bankastjóra nýju bankanna. Beina verður slíkum fyrirspurnum til stjórn- ar viðkomandi banka.“ baldur@dv.is Ríkisbanki Þeir sem sitja í skilanefndum bankanna fá 250 þúsund krónur á mánuði. Sveinn Magnússon hjá Geðhjálp segir það hneyksli að verð á þunglyndislyfinu Amilín sem nú heitir Amitriptyline hafi skyndilega hækkað um 350 prósent. Hann kallar heilbrigðisyfirvöld til ábyrgðar og segir þau hafa brugðist hlutverki sínu. Hjördís Árnadóttir, hjá Actavis sem framleiðir lyfið, segir gengisþróun hafa áhrif á verðlagið en bendir á að verð á lyfinu hafi ekki hækkað í tæpan áratug. „Mér finnst þetta skandall. Ég verð bara að segja alveg eins og er. Við vit- um auðvitað að öll aðföng eru orðin dýrari en ella vegna stöðu gengisins. Ríkinu ber að koma inn og niður- greiða þetta enn frekar,“ segir Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, um ríflega þrefalda verðhækkun á þunglyndislyfi. Actavis tók lyfið Amil- ín af markaði í júlímán- uði og setti í staðinn á markað lyfið Amitript- yline. Lyfin hafa sama virka inni- haldsefnið, amitriptyline. Amilín er gamalreynt lyf sem notað hef- ur verið við þunglyndi og svefn- truflunum, aðallega af öldruðum, gigtarsjúklingum og geðsjúkum, en einnig við næturþvaglátum hjá börnum. Ekkert samheitalyf er á markaðnum. Mega ekki misnota stöðu sína Áður en Amilín var tekið af markaði kostuðu hundrað 10 milli- gramma töflur 516 krónur. Af Ami- triptyline er hins vegar aðeins hægt að fá 28 töflur saman í pakka og kostar slík pakkning af 10 milligramma töflum 497 krónur. Samkvæmt upp- lýsingum sem DV hefur frá starf- andi lækni er algengast að ávísað sé 10 milligramma styrkleika lyfsins. Fyr- ir hverja töflu af Am- ilíni i stærstu pakkningun- um þurfti því að greiða 5,16 krónur en hver tafla í stærstu pakkningun- um af Ami- triptyline kost- ar 17,75 krónur. Hver tafla af nýja lyfinu kostar því 344 prósentum meira. Ábyrgð heilbrigðisyfirvalda er mikil að mati Sveins og þurfa þau að sinna eftirlitsskyldu sinni með þeim hætti að gríðarlegar hækk- anir sem þessar geti ekki átt sér stað. „Actavis ber einnig samfélags- leg skylda til að hafa þessa hluti í lagi. Það má segja að fyrirtækið sé í ákveðinni einokunarstöðu og þeir mega ekki misnota hana,“ segir Sveinn en ekkert samheitalyf Amit- ryptyline er á markaðnum. „Heil- brigðisyfirvöldum ber skylda til að passa upp á svona lagað, ég tala nú ekki um þegar um er að ræða ríflega þrefalda hækkun. Ríkisvaldið hvet- ur borgarana til að sýna forsjálni en gengur sjálft ekki fram með frum- kvæði í þeim efnum,“ segir Sveinn. Óbreytt verð í áratug Hjördís Árnadóttir, sviðsstjóri ytri samskipta hjá Actavis, seg- ir enga eina skýringu á verðhækk- uninni. Hún bendir á að fyrirtækið hafi þurft að flytja framleiðsluna til útlanda en Actavis framleiði sam- bærilegt lyf í Bretlandi. Hjördís seg- ir að þegar lyfjaframleiðsla er færð á milli landa þurfi að sækja um öll leyfi upp á nýtt. Til að koma fyrstu sendingunni til landsins þurfti því hafa hraðar hendur. „Til að koma lyfinu nógu fljótt til landsins var það sent hingað í enskum um- búðum. Við þurftum þá að fá undanþágu og sérmerkja það með íslenskum fylgiseðli og límmiðum,“ segir Hjördís. Gengisþróun hefur einnig haft sitt að segja eins og með aðrar vörur sem fluttar eru til landsins. Hún bendir ennfremur á að verð á Amilíni hafi verið óbreytt í tæpan áratug. „Í raun var gamla verðið því orðið óeðli- lega lágt.“ Hjördís tekur einn- ig fram að þegar verðið á Amilíni hafi verið borið saman við meðal- verð á Norðurlöndunum kom í ljós að 10 milligramma töflurnar voru þriðjungi dýrari hér á landi. Þeg- ar 25 milligramma skammtur var skoðaður voru lyfin hins vegar 39 prósentum ódýrari hér. Næsta pöntun af lyfinu er vænt- anleg til landsins, þá í íslenskum umbúðum, og verður metið hvort ástæða er til að endurskoða verðið. ERla HlynSdÓttiR blaðamaður skrifar: erla@dv.is HNEYKSLANLEG VERÐHÆKKUN Ótrúlegt verð Sveinn Magnússon segir ótrúlegt að verð á einu lyfi geti skyndilega hækkað þrefalt. Mynd StEfÁn KaRlSSon Margir leita réttar síns Talsvert er um að félagsmenn leiti á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness með fyrirspurnir um réttarstöðu þeirra gagnvart at- vinnurekanda. Til að bregðast við auknum önnum hefur upp- lýsingaefni tengdu efnahags- og atvinnuástandinu verið safnað saman á heimasíðu félagsins. Kýldi dótturina og ók ölvaður Héraðsdómur Suður- lands hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að kýla dóttur sína, hrinda henni og aka undir áhrifum áfengis. Þá var honum gert að greiða 160 þúsund krónur í sekt og sæta ökuleyfissviptinu í 18 mán- uði. Maðurinn var ákærð- ur fyrir að kýla dóttur sína hnefahöggi í andlitið í mars á þessu ári á heimili sínu í Vestmannaeyjum. Í kjölfar- ið hrinti hann henni svo hún datt aftur fyrir sig og skall með hnakkann í gólfið. Stúlk- an fékk meðal annars skurð á hnakka, glóðarauga og marð- ist víða á líkamanum. Þá var hann ákærður fyrir ölvun við akstur en lögregla hafði af- skipti af honum daginn áður en hann réðist á dóttur sína þar sem hann hafði misst stjórn á ökutæki sínu. Gengisbreytingar Hjördís Árnadóttir hjá actavis segir fyrirtækið hafa þurft að flytja framleiðsluna til útlanda og erfið staða gengisins færist inn í verðlagið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.