Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 20088 Fréttir STJÓRNARKREPPA EFTIR HRUN Innan Samfylkingar gætir mikils óþols varðandi stjórnarsamstarfið. Flokkurinn hefur staðið einhuga að því að reka eigi bankastjórn Seðla- banka Íslands vegna stórfelldra af- glapa sem leitt hafi að miklu leyti til þeirrar stöðu sem Ísland er nú kom- ið í. Geir Haarde, formaður Sjálfstæð- isflokksins, hefur þvertekið fyrir að láta bankastjórnina fara og veitt Dav- íð Oddssyni aðalbankastjóra skjól. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað- ur Samfylkingar, hefur sagt að banka- stjórn Seðlabankans eigi sjálf að hafa frumkvæði að því að hætta. Þá hef- ur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, í tvígang snuprað Davíð opinberlega. Enginn viðmælenda DV kann skýringu á tryggð forsætisráðherrans við sinn gamla leiðtoga. Einhverjir skýra hana sem gamalkunna ákvarð- anafælni eða ótta við að flokkurinn klofni opinberlega ef til þess komi að Davíð verði niðurlægður með þeim hætti að hann verði rekinn úr starfi. Aðrir gera lítið með klofning þar sem sá hluti flokksins sem styðji Davíð að málum sé svo lítill og valdalaus í flokknum. Vandi Geirs Haarde er hins vegar sá að vörnin um Davíð er um það bil að sprengja stjórnarsamstarfið. Samfylk- ing kemst illa frá kröfunni um að víkja honum til hliðar og verður á endanum að stíga skrefið til stjórnarslita fremur en að sætta sig við óbreytt ástand. Annað mál, og í raun miklu stærra, sem skilur að flokkana er af- staða þeirra til Evrópusambandsins. Samfylking er með eindregna stefnu um að óska eftir aðild og eini flokk- urinn sem ekki er klofinn í málinu. Forysta Sjálfstæðisflokksins er al- gjörlega andvíg aðildarumsókn þótt Þorgerður Katrín, ljósmóðir stjórn- arinnar, hafi opnað á þá umræðu. Öfgarnar í Sjálfstæðisflokknum kristallast í heift Davíðs Oddssonar sem lýsti í viðtali á Stöð 2 fyrirlitn- ingu sinni á evrusinnum og vill um- fram allt halda krónunni. Það horfir til vandræða fyrir flokkinn, því kjöl- festan hans, atvinnurekendurnir, eru flestir á þeirri skoðun að þjóðin eigi að ganga í ESB. Hættan er sú að þess- ir aðilar muni missa þolinmæðina og ganga til liðs við annan flokk sem hefði það á stefnuskránni að hefja þegar í stað aðildarviðræður. Pattstaða Samfylkingar Ingibjörg Sólrún setti Evrópumálið skýrt á dagskrá með blaðagrein nýverið. Greinin var afdráttarlaus og olli titringi innan sam- starfsflokksins þótt hann brytist ekki upp á yfirborð- ið. Og Ingibjörg Sólrún er með sterkt bakland í málinu. Flokkurinn stendur ein- huga að baki henni og skoðana- kannanir undanfarið leiða í ljós að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill fara í aðild- arviðræður. Þá er sú skoðun uppi innan Sam- fylkingar að Ísland eigi möguleika á því að semja af sér að hluta skuldakla- fann með aðild. Þetta fer ágætlega í almenning sem sér nú fram á ára- langan þrældóm til að niðurgreiða bankaskuldir í útlöndum. En þrátt fyrir sterka stöðu í ESB-málinu er Samfylking í einskonar pattstöðu í ríkisstjórninni. Þannig hafa oddvit- ar flokksins lengst af ekki treyst sér til að gera kröfuna um brottvikningu Davíðs að úrslitaatriði. Þeirri afstöðu ræður helst óttinn um að lenda utan stjórnar. Bæði vinstri-grænir og Framsókn- arflokkurinn eru taldir til þess vísir að ganga til stjórnarsamstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn. Þar er þó ekki um neinar afdráttarlausar yfirlýsingar að ræða, heldur hafa forystu- menn flokkanna slegið úr og í. Innan Samfylking- ar hefur verið ræddur sá möguleiki að henda út samstarfsflokknum og að flokkurinn sitji í minnihlutastjórn og verði varinn vantrausti af stjórnarandstöðu- flokkunum tveimur. Þeir yrðu fengnir til þess gegn lof- orði um að efnt yrði til kosninga snemma á næsta ári og þjóðin fengi að gera upp hrunið. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, tekur undir að rétt sé að efna til kosninga á útmánuðum en óljósara er um afstöðu Guðna Ágústssonar, for- manns Framsóknarflokksins. Hann lýsti því í umræðum um bankahrunið á Alþingi í síðustu viku að stjórnin yrði að sitja áfram vegna ástandsins en pól- itíkina mætti gera upp síðar. Hvað þessi orð þýða er óljóst. Hann virðist þó vera á sömu skoðun og Steingrímur J. varð- andi tímasetningu kosninga í vor. Vinstrisveifla Borðleggjandi þykir að mikil vinstri- bylgja komi fram í kosningum eftir hrunið. Rökin eru þau að Sjálfstæðis- flokkurinn, sem farið hefur með efna- hagsmál í 17 ár, hafi algjörlega brugðist þjóðinni. Flokkurinn hefur jafnan lagt á það áherslu fyrir kosningar að hann einn geti stjórnað efnahagsmálum svo vel fari. Vinstristjórnir með tilheyrandi efnahagsglundroða hafa verið grýlan sem notuð hefur verið. Augljóst er að margir trúðu þeirri kenn- ingu þar sem Sjálfstæðisflokkur- inn hefur lengi verið með um og yfir 40 prósenta fylgi. Nú er komið á daginn að Ís- land er á barmi gjaldþrots undir efnahagsstjórn þess sama flokks. Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokk- urinn hefur haft á stefnuskrá sinni að hlúa að hag einstaklinga með skattalækkunum og minni ríkis- afskiptum. Nú blasir við að banka- kerfið er að mestu leyti komið í rík- iseigu og framundan eru gríðarlegar hækkanir á einstaklingssköttum. Þá er ljóst eftir langa valdatíð Sjálfstæðis- flokksins að ríkisbáknið hefur þanist út í miðri einstaklingshyggjunni. Fjöldi þeirra sem kosið hafa Sjálfstæðisflokk- inn mun leggja þessar staðreyndir til grundvallar þegar að kosningum kem- ur og beina atkvæðum sínum annað. Innan Sjálfstæðisflokksins eru til þær skoðanir að réttast væri að flokkur- inn tæki örlögum sínum, færi í stjórn- arandstöðu og skipti út forystu sinni. Menn yrðu að sætta sig við að blóma- skeiði flokksins væri lokið í bili og næstu kjörtímabil færu í að byggja upp traust við þjóðina að nýju og hefja til vegs gömul forsmáð gildi um einstakl- ingsframtak og ábyrga efnahagsstjórn. Sjálfstæðismenn hafa í gegnum tíð- ina, líkt og margir aðrir, mært útrásar- menn og talað um efnahagsundur. Nú Algjör óvissa ríkir í stjórnmálum á Íslandi eftir bankahrunið sem nú hefur sett afkomu þjóðarinnar í hreinan efnahagslegan voða. Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks heldur enn saman en kolsvartar blikur eru úti við sjóndeildarhring. Fyrir liggur að þessi ríkisstjórn sem er með svo gríðarlegan þingmeirihluta að líkja má við þjóðstjórn á nánast ekkert sameiginlegt annað en að reyna í ofboði að ausa þjóðarskútuna og gera sjó- klára að nýju. Vandinn er hins vegar sá að höggið sem lendir á þjóðarbúinu er metið á 1000 milljarða króna, hið minnsta. Það þýðir á mannamáli að hver einasti Íslendingur þarf að taka á sig byrðar sem nema rúmlega þremur milljónum króna. Þetta er það sem Íslendingar munu þurfa að gera upp í næstu kosningum. reynir trauStaSon ritstjóri skrifar: rt@dv.is umdeildur seðlabankastjóri Davíð Oddsson situr sem fastast en í óþökk Samfylkingarinnar. Forsætisráðherrar Gordon Brown beitti hryðjuverkalögum á Íslendinga eftir þjóðnýtingu Landsbankans og í framhaldi þess að Davíð Oddsson sagði að Íslendingar myndu ekki greiða skuldir óreiðumanna í útlöndum. Þar með féll Kaupþing.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.