Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Side 16
Miðvikudagur 22. Október 200816 Ættfræði
100 ára í dag
30 ára
n Birta Karlsdóttir Hólum, Akureyri
n Thelma Dögg Valdimarsdóttir Dalseli 8,
Reykjavík
n Erla Rós Gylfadóttir Huldulandi 11, Reykjavík
n Sigrún Kristinsdóttir Rjúpnasölum 14,
Kópavogi
n Nilsina Larsen Einarsdóttir Kirkjubraut 15,
Seltjarnarnesi
n Sigurður Bergmann Gunnarsson Æsuborgum
3, Reykjavík
n Hildur Sverrisdóttir Spítalastíg 10, Reykjavík
40 ára
n Kristín Ingibjörg Hákonardóttir Þórðarsveig
24, Reykjavík
n Rósberg Halldór Óttarsson Víkurgili 13,
Akureyri
n Hákon Valsson Sunnubraut 20, Akranesi
n Kristbjörg Sigurðardóttir Boðagerði 3,
Kópaskeri
n Halldór Haraldsson Varmadal 3, Reykjavík
50 ára
n Bragi Bergmann Vilhjálmsson Hólsgerði 2,
Akureyri
n Þorsteinn I. Sigvaldason Heiðarbraut 5e,
Reykjanesbæ
n Karólína Gunnarsdóttir Akri, Selfossi
n Páll Þormar Hjaltabakka 20, Reykjavík
n Sigurður Ingi Rúnarsson Samtúni 32, Reykjavík
n Guðný Lilliendahl Geitlandi 2, Reykjavík
n Rósa Þórunn Halldórsdóttir Mýrargötu 39,
Neskaupstað
n Stella Aðalsteinsdóttir Heiðargerði 1a,
Reykjavík
n Guðni Guðbergsson Bjarnhólastíg 22, Kópavogi
n Guðjón Garðarsson Réttarheiði 3, Hveragerði
n Sigurður Ingvar Geirsson Frostafold 175,
Reykjavík
n Valgerður Jónsdóttir Ásgarði 33, Reykjavík
n Dagný Halldórsdóttir Ásbúð 27, Garðabæ
n Elísabet Árnadóttir Aratúni 25, Garðabæ
60 ára
n Gylfi Óskarsson Seljabraut 38, Reykjavík
n Birgir Viðar Halldórsson Beykihlíð 8, Reykjavík
n Ingibjörg Jónsdóttir Flyðrugranda 8, Reykjavík
n Ólafur Jón Guðmundsson Heiðargerði 15,
Vogum
n Páll Björnsson Silfurbraut 5, Höfn
n Hrafn Hauksson Skessugili 8, Akureyri
n Bryndís Kristiansen Arnartanga 85, Mosfellsbæ
n Ólöf Lóa Jónsdóttir Holtsbúð 95, Garðabæ
n Bárður Bragason Blikaási 54, Hafnarfirði
70 ára
n Jón Ásgeirsson Prestastíg 11, Reykjavík
n Kolbrún Ingólfsdóttir Stelkshólum 6, Reykjavík
n Kristbjörg Þórhallsdóttir Árskógum 6,
Reykjavík
75 ára
n Geir Helgason Borgarstíg 2, Fáskrúðsfjörður
n Þorsteinn J Þórhallsson Skipasundi 85,
Reykjavík
n Jósep Þóroddsson Hólavegi 29, Sauðárkrókur
n Sigurður Sigurðsson Bjarmalandi 13, Reykjavík
n Sigríður Jónsdóttir Mánatúni 4, Reykjavík
80 ára
n Birgir Magnússon Gullsmára 7, Kópavogi
n Elísabet Kristjánsdóttir Grenimel 29, Reykjavík
n Guðmundur Ólafsson Suðurgötu 4a,
Reykjanesbæ
n Trausti Adolf Ólason Ásholti 2a, Dalvík
n Guðný Magnea Jónsdóttir Álandi 3, Reykjavík
85 ára
n Sigurður Ragnar Guðbrandsson Aðalgötu 19,
Reykjanesbæ
n Gestur Finnsson Hraunbæ 107, Reykjavík
n Lárus Sigurgeirsson Hrafnistu við Kleppsveg,
Reykjavík
n Ólafía Jónasdóttir Vallargötu 27, Þingeyri
90 ára
n Hermann Ólafsson Hraunvangi 7, Hafnarfirði
95 ára
n Steingrímur Þorsteinsson Dalbæ, Dalvík
Eva Pétursdóttir
fyrrv. húsfreyja á eskifirði
Eva Pétursdóttir húsmóðir, áður
Strandgötu 93 Eskifirði, en dvelur nú
í Hulduhlíð, dvalarheimili aldraðra á
Eskifirði, er 100 ára í dag.
Eva fæddist að Vallanesi í Valla-
hreppi á Héraði. Hún var síðan á
ýmsum bæjum á Héraði til tíu ára
aldurs en flutti þá til Neskaupstað-
ar með foreldrum sínum og lauk þar
barnaskólanámi.
Eva byrjaði búskap á Eskifirði
1930 og hefur átt þar heima síðan.
Hún vann við fiskvinnslu og ræsting-
ar með húsmóðurstörfum auk þess
sem saumaskapur var snar þáttur í
lífi hennar.
Eva var einn af stofnendum slysa-
varnadeildarinnar Hafrúnar á Eski-
firði.
Fjölskylda
Eiginmaður Evu var Indriði Valdi-
mar Ásmundsson, f. 29.3. 1901, d.
24.5. 1970, vélstjóri á fiskiskipum.
Hann var sonur Ásmundar Finn-
bogasonar og Júlíönu Rasmusdóttur
frá Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði.
Börn Evu og Indriða Valdimars
eru Aðalsteinn, f. 24.5. 1931, búsettur
á Eskifirði, kvæntur Elínborgu Þor-
steinsdóttur og eiga þau fimm börn;
Pétur, f. 22.7. 1932, búsettur í Hafn-
arfirði, kvæntur Fjólu Gunnarsdóttur
og eiga þau sjö börn; Albert, f. 31.10.
1934, búsettur á Akureyri, kvænt-
ur Svanhildi Þórisdóttur og eiga þau
fimm börn; Auður, f. 9.2. 1936, búsett
á Eskifirði, gift Guðjóni V. Björnssyni
og eiga þau þrjú börn; Ástdís, f. 28.6.
1941, búsett á Eskifirði, gift Guðna
Helgasyni og eiga þau þrjú börn;
Hildur, f. 3.8. 1944, búsett í Noregi og
á hún einn son; Sólveig, f. 16.9. 1949,
búsett á Álftanesi, gift Bjarna Péturs-
syni og eiga þau tvo syni. Sonur Hild-
ar, Ásmundur Jónsson, var alinn upp
hjá ömmu sinni og afa.
Eva átti fjórtán systkini. Tólf þeirra
komust til fullorðinsára, níu systur og
þrír bræður. Hún á nú tvær systur á
lífi. Þær eru Guðný, f. 1917, búsett í
Neskaupstað, og María, f. 1923, bú-
sett í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Evu voru Pétur Pét-
ursson, f. 13.11. 1874, d. 19.3. 1937,
verkamaður og smiður í Vallanesi í
Vallahreppi og síðar í Neskaupstað,
og Una Stefanía Stefánsdóttir, f. 25.1.
1882, d. 17.11. 1950, húsmóðir og
verkakona.
Til
hamingju
með
afmælið!
Steinn fæddist á Eskifirði og ólst
þar upp í foreldrahúsum til tíu ára
aldurs. Við lát móður sinnar var
hann sendur í fóstur að Dölum í Fá-
skrúðsfirði til ömmu sinnar, Guð-
bjargar Marteinsdóttur, og seinni
manns hennar, Höskuldar Stef-
ánssonar, sem þar bjuggu. Þar ólst
Steinn upp við hefðbundin sveita-
störf.
Steinn stundaði nám við Alþýðu-
skólann á Laugum 1937-38, lauk
mótornámskeiði í Neskaupstað
1943 og lauk meira fiskimannaprófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 1946.
Steinn hóf sjómannsferil sinn
1941. Eftir stýrimannaprófið var
hann á ýmsum bátum og togurum í
flestum störfum og síðar skipstjóri,
m.a. á togurunum Vetti og Guð-
rúnu Þorkelsdóttur fram til 1967
er hann kom í land. Hann hóf störf
hjá Verðlagsstofnun (síðar Sam-
keppnisstofnun) 1968 og vann þar
til starfsloka.
Steinn sat tvö kjörtímabil í
hreppsnefnd Eskifjarðar og nokkur
ár í skólanefnd þar.
Fjölskylda
Steinn kvæntist 6.6. 1959 Stef-
aníu Maríu Árnadóttur, f. 9.1. 1935,
húsmóður. Hún er dóttir Árna Dan-
íelssonar, f. í Sandvíkurseli 23.3.
1901, d. 3.6. 1978, verkamanns, og
Gyðu Steindórsdóttur, f. í Nesi í
Norðfirði 26.2. 1901, d. 20.3. 1960,
húsmóður.
Börn Steins eru Guðrún Sigríð-
ur Steinsdóttir, f. 7.3. 1959, kjóla-
klæðskeri á Akureyri, gift Vilhelm
Jónssyni húsasmið og eru dæt-
ur þeirra Hulda María og Ester en
dætur Huldu Maríu er Guðrún An-
íta og Saga María; Gyða Steinsdótt-
ir, f. 27.2. 1962, þroskaþjálfi í Nor-
egi, en maður hennar er Einar Páll
Harðarson markaðsfræðingur og
eru dætur þeirra Anita Ósk og Íris
Eva; Guðbjörg Steinsdóttir, f. 4.6.
1965, nuddari í Danmörku, gift
Hans Jörgen Einarssyni húsasmið
og eru börn þeirra Steinunn, Einar
Jörgen og Anna Karen en fyrir átti
Hans dótturina Eygló og er sambýl-
ismaður hennar Bragi Bjarnason en
sonur þeirra er Bjarni Dagur; Jón
Steinsson, f. 9.9. 1969, húsasmiður í
Mosfellsbæ, en kona hans er Svand-
ís Steingrímsdóttir tanntæknir og er
sonur þeirra Steinn Jónsson.
Systkini Steins: Friðrik Baldvin
Jónsson, nú látinn, var búsettur að
Hraunkoti í Lóni, var kvæntur Krist-
ínu Stefánsdóttur sem lést 1956
og er sonur þeirra Friðrik Baldvin
Friðriksson, bóndi að Hraunkoti;
Sigríður Ágústína Rósa Jónsdótt-
ir, f. 30.6. 1921, búsett á Englandi,
var gift Louis A.F. Hindes en þau
skildu og eiga þau tvær dætur sem
búsettar eru á Englandi; Bóas Rafn
Jónsson, f. 18.10. 1926, nú látinn,
flugmaður í Bandaríkjunum, var
kvæntur Billy Halldórsson.
Hálfsystir Steins, sammæðra,
var Hulda Ingimundardóttir, f. 12.6.
1906, d. 26.2. 1996, lengst af hjúkr-
unarkona á Vífilsstöðum.
Hálfsystkin Steins, samfeðra,
börn föður hans og seinni konu,
Þóru Oddnýjar Magnúsdóttur, eru
Magnús Jónsson, f. 24. 11. 1929,
fyrrv. sjómaður í Reykjavík, var
kvæntur Sigríði Óskarsdóttur sem
er látin og eignuðust þau þrjú börn;
Ásta Guðbjörg Jónsdóttir, f. 12.6.
1931, búsett í Hafnarfirði, í sambúð
með Guðmundi Guðjónssyni og
eiga þau einn son; Helgi Jónsson, f.
15.7. 1934, fyrrv. sjómaður í Hafn-
arfirði, kvæntur Nönnu Þórðardótt-
ur og eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Steins voru Jón Steins-
son, f. í Eskifjarðarseli 22.8. 1887, d.
20.6. 1937, sjómaður á Eskifirði til
1929 og síðan í Hafnarfirði, og Guð-
rún Sigurlín Bóasdóttir, f. á Sléttu í
Reyðarfirði 14.4. 1886, d. 28.7. 1929,
húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Jóns voru Steinn Jóns-
son, f. að Hofsnesi í Öræfum, og
Guðbjörg Marteinsdóttir, f. á Karls-
stöðum í Vaðlavík.
Guðrún Sigurlína var systir Páls,
afa Kjartans Gunnarssonar, fyrrv.
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, og Harðar Einarssonar
hrl. Foreldrar Guðrúnar Sigurlín-
ar voru Bóas Pálsson, b. á Sléttu í
Reyðarfirði, og Rósa Bjarnadóttir, f.
í Seldal á Norðfirði. Foreldrar Bóas-
ar voru Páll Jónsson, b. á Sléttu í
Reyðarfirði og Sæbjörg Jónsdótt-
ir, f. í Litla-Sandfelli. Foreldrar
Rósu voru Bjarni Þorsteinsson, f.
á Kollaleiru í Reyðarfirði, b. í Seld-
al, Fannadal, Kirkjubóli og víðar,
og Ingibjörg Jónsdóttir, f. í Nausta-
hvammi.
steinn Jónsson
skipstjóri á eskifirði
„Ég verð bara í vinnunni og fer
svo út að borða með dóttur minni
um kvöldið. Ætli við fáum okk-
ur ekki eitthvað ítalskt, við erum
báðar svo hrifnar af því, og förum
vanalega á Hornið,“ segir Krist-
ín Ingibjörg Hákonardóttir sem er
fertug í dag.
Deginum ver Kristín, sem bú-
sett er í höfuðborginni, í vinnunni.
Spurð hvort hún taki daginn ekki
jafnhátíðlega og sumir og taki sér
frí kveðst Kristín vissulega taka
daginn hátíðlega, bara í vinnunni.
„Ég ætla bara að skemmta mér
með vinnufélögunum. Og ég ætla
að mæta með köku.“ Kristín hyggst
svo halda lítið hóf fyrir vinkonur
sínar áður en langt um líður til að
fagna tímamótunum. „Þetta verð-
ur algjört kvennateiti.“
Kristín segir engan einn afmæl-
isdag eftirminnilegri en annan.
„Mér finnst mjög gaman að eiga af-
mæli og held alltaf upp á það með
einhverjum hætti, þó það sé ekki
alltaf veisla.“
Hvað gjafir snertir stendur
heldur ekki nein upp úr. „Enda eru
gjafir ekki endilega það sem gleður
mig mest heldur að vera með fólki.
Þótt ég fengi ekki neina væri það
bara allt í lagi.“
90 ára í dag
Kristín Ingibjörg Hákonardóttir er fertug í dag:
Borðar ítalskt með dóttur sinni
Kristín Ingibjörg finnst meira varið í
að vera með fólki á afmælisdaginn en
að fá gjafir. hún ætlar að mæta með
köku í vinnuna fyrir starfsfélagana.