Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Side 4
Þriðjudagur 28. Október 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Krepputal
fyrir börn
Foreldrafélag Víðistaðaskóla
í Hafnarfirði hvetur foreldra til
þess að setjast niður og ræða við
börnin sín um kreppuna sam-
kvæmt frétt sem birtist nýega
í Fjarðarpóstinum. Þar kemur
fram að meðal víðtækra áhrifa
kreppunnar sé umfjöllun fjöl-
miðla sem getur valdið börnum
talsverðum áhyggjum. Foreldra-
félagið telur brýnt að foreldrar
setjist niður með börnum sínum
og útskýri fyrir þeim að þau séu
örugg þrátt fyrir það óvissu-
ástand sem ríkir í samfélaginu
þessa dagana.
Sex unglingar vor færðir á slysa-
deild þegar gassprenging varð í litlu
húsi í Grundargerði í Reykjavík á ní-
unda tímanum í gærkvöldi. Slökkvi-
liðið á höfuðborgarsvæðinu telur
að á bilinu 12 til 14 unglingar hafi
að auki verið fyrir utan húsið þeg-
ar sprengingin varð. Ekki var vitað
nákvæmlega hversu margir voru
fyrir utan húsið og því voru með-
limir Flugbjörgunarsveitarinnar
kallaðir út til að hefja mikla leit að
fólki sem kann að hafa verið nálægt
brunanum. Slökkviliðið veit ekki
með vissu hversu margir voru við
húsið og fannst til að mynda ungl-
ingspiltur í Skeifunni með alvarleg
brunasár. Slökkviliðið segir piltinn
hafa í skelfingu sinni hlaupið alla
leið þangað. Allir unglingarnir voru
fluttir með hraði á sjúkrahús en
ekki er vitað hversu alvarlega slas-
aðir unglingarnir eru.
Húsið þar sem sprengingin varð
er gjörónýtt og segir slökkviliðið að
heill gafl úr húsinu hafi brotnað af
húsinu í sprengingunni.
Ömurleg aðkoma
Halla Arnar, íbúi í Melgerði, var
með þeim fyrstu sem komu á vett-
vang. „Aðkoman var mjög ljót. Ég
fór strax að hlúa að tveimur stúlk-
um á meðan maðurinn minn hljóp
heim að ná í bala. Hendur og and-
lit stúlknanna voru brunnin. Ég hélt
utan um aðra þeirra og hún sagði
mér að rétt áðan hefði hún ekki
fundið fyrir höndunum en nú væri
henni svo illt að hún gæti ekki kom-
ið við þær,“ segir Halla.
Hún segir sjúkrabíl hafa verið
níu mínútur á vettvang frá því til-
kynning barst. „Mér fannst það vera
sem 20 mínútur en maður fær samt
einhvern styrk. Aðkoman var hrika-
leg. Við heyrðum hvell sem var svo
hár að það var eins og það væri stór
jarðskjálfti að ganga yfir. Þegar ég
kom út vildi ég ekki trúa því sem ég
sá,“ segir hún.
Bústaðakirkja opnuð
Að sögn slökkviliðsins gekk
greiðlega að ráða niðurlögum elds-
ins, en gríðarlega mikill viðbúnað-
ur var á staðnum. Á vettvangi voru
meðal annars sjúkrabílar, lögreglu-
bílar ásamt fjölda liðs frá Flugbjörg-
unarsveitinni. Ljóst er að slysið er
mjög alvarlegt og er talið að spreng-
ingin hafi orðið þegar kveikt var í
kveikjara inni í húsinu.
Þegar ljóst varð í gærkvöldi
hversu alvarlegt slysið var, ákvað
slökkviliðið ásamt séra Pálma
Matthíassyni að opna dyr Bústaða-
kirkju þar sem aðstandendur og
vitni að sprengingunni komu sam-
an.
„ég hélt utan um aðra
þeirra og hún sagði
mér að rétt áðan hefði
hún ekki fundið fyrir
höndunum en nú væri
henni svo illt að hún
gæti ekki komið við
þær.“
AÐKOMAN HRIKALEG
Fullt var út úr dyrum á opnum
borgarafundi í Iðnó sem fram fór í
gærkvöldi. Rithöfundurinn Einar Már
Guðmundsson flutti framsöguræðu
kvöldsins og fór mikinn í ræðu sinni.
Hann gagnrýndi harðlega hvern-
ig íslenskt samfélag væri, að enginn
þyrfti að sæta ábyrgð á þeim hörm-
ungum sem dynja nú yfir íslenskt
efnahagslíf. Hann sagði alla geta flækst
í vafasaman félagsskap og nefndi sem
dæmi íslensk stjórnvöld sem hefðu
tekið sér hlutverk kynningarfulltrúa
íslensku bankanna. Einar sagði það
speki frjálshyggjumannanna sem
hafa verið við stjórn undanfarin ár
að gera ekki neitt. Nema kannski að
stofna sérsveit ríkislögreglustjóra.
Björg Eva Erlendsdóttir blaða-
maður var næst á mælendaskrá þar
sem hún hvatti til aukinnar þátttöku
kvenna í stjórnmálum. Hún fór hörð-
um orðum um ofurlaunastefnu síð-
ustu ára og fékk mikla hylli.
Vilhjálmur Bjarnason sagðist
hingað til hafa talið sig vera kapítal-
ista, auðhyggjumann. Hann hafi vilj-
að vera öðrum óháður og að þegar
hann hafi átt afgangsfé hafi hann lagt
það fyrir. „Þessi hlutabréfamarkað-
ur hefur gjörsamlega brugðist mér.“
Vilhjálmur sagðist hafa spurt margra
spurninga til að fá upplýsingar um
stöðu og starfsemi fyrirtækja en engin
svör fengið.
valgeir@dv.is
Einn faglegan
seðlabankastjóra
Einn seðlabankastjóri sem
hefur víðtæka þekkingu á fjár-
málum og efnahagsmálum ætti
að stjórna Seðlabankanum. Þetta
er vilji þingmanna Frjálslynda
flokksins sem leggja fram frum-
varp þessa efnis á Alþingi í dag.
Samkvæmt frumvarpinu á seðla-
bankastjóri að bera ábyrgð á
ákvörðunum um afgreiðslu mála.
Frjálslyndir vilja að nýr seðla-
bankastjóri verði skipaður við
gildistöku laganna, fáist þau sam-
þykkt sem gerist þó sjaldan með
frumvörp stjórnarandstöðunnar,
og nýtt bankaráð sömuleiðis.
Fjölmenni var á opnum borgarafundi um bankakreppuna:
Enginn látinn bera ábyrgð
Eldhnöttur á
Suðurlandi
Svokallaður eldhnöttur
sást yfir vestanverðu Suður-
landsundirlendinu síðastliðið
laugardagskvöld. Hnötturinn
birtist í nokkrar sekúndur,
myndaði rák á himininn og í
kjölfarið fylgdu drunur.
Um var að ræða loftstein
utan úr geimnum sem mynd-
aði rauðan loga þegar hann
braust inn í andrúmsloftið á
ógnarhraða. Yfirleitt er talað
um „stjörnuhrap“ þegar loft-
steinn sést á himni, en þau
eiga fremur við um loftsteina
sem hafa svipað birtustig og
stjörnur á himninum, og eru
bláleitir á lit.
Þrumað yfir fundarmönnum
Margir lögðu leið sína á fundinn, svo
margir að ekki komust allir fyrir
innandyra.
mynd RóBeRt
Sex unglingar brenndust mikið þegar gassprenging varð í litlu húsi í Grundargerði i
Reykjavík á níunda tímanum í gærkvöldi. Íbúi í hverfinu segir aðkomuna hafa verið
skelfilega. Aðstandendur söfnuðust saman í Bústaðakirkju og hóf Flugbjörgunarsveit-
in mikla leit að fólki sem kann að hafa verið nálægt húsinu þegar sprengingin varð.
valGeIR ÖRn RaGnaRSSOn
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Halla arnar „Þegar ég
kom út vildi ég ekki trúa
því sem ég sá.“
Öflug sprenging
gafl tættist af húsinu
í sprengingunni.
mynd RóBeRt