Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Síða 8
Þriðjudagur 28. Október 20088 Fréttir
RIFRILDI SEM FÓRU
ÚR BÖNDUNUM
Davíð Smári Helenarson, betur þekktur sem Dabbi Grensás, er krafinn um ríflega 9,1 milljón króna í
skaðabætur í þremur líkamsárásarmálum sem tekin voru til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Verjandi hans segir Davíð hafa tekið sig á og
lifa í dag þjóðfélagsvænu lífi.
Davíð Smári Helenarson, oft kall-
aður Dabbi Grensás, mætti fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þar
sem fram fór aðalmeðferð í þrem-
ur líkamsárásarmálum gegn hon-
um. Davíð Smári var snyrtilega
klæddur í gráum jakkafötum og vel
til hafður þegar mál hans var tekið
fyrir. Honum er gefið að sök að hafa
á tímabilinu frá lokum ágúst til loka
desember í fyrra ráðist á þrjá menn
sem allir hlutu talsverða áverka.
Verjandi Davíðs, Jón Egilsson, seg-
ir aðdraganda hafa verið að öllum
málunum og að Davíð hafi tekið
sig rækilega á síðan. Hann lifi í dag
mjög þjóðfélagsvænu lífi.
Dómarinn lá í valnum
Í fyrsta lið er Davíð ákærður fyr-
ir að hafa veist að Val Steingríms-
syni knattspyrnudómara eftir leik
í utandeildinni 28. ágúst í fyrra
með þeim afleiðingum að Valur
rifbeinsbrotnaði. Verjandi Davíðs
Smára, Jón Egilsson, segir Davíð
iðrast þess mjög að hafa látið skap-
ið hlaupa með sig í gönur. „Hann
hefur lært af því. Davíð vill meina
að dómarinn hafi sagt að hann
myndi sjá til þess að hann fengi
ekki að keppa framar í fótbolta.
Og þá hafi hann misst sig.“ Knatt-
spyrnudómarinn krefst miskabóta
að upphæð 800 þúsund krónur.
Réðst á landsliðsmann
Davíð Smári er ákærður í öðrum
lið fyrir að hafa aðfaranótt laugar-
dagsins 22. desember í fyrra ráð-
ist á knattspyrnumanninn Hann-
es Þ. Sigurðsson á Hverfisbarnum.
Samkvæmt ákæru á Davíð að hafa
kýlt Hannes í andlitið með þeim
afleiðingum að hann féll í sófa
á skemmtistaðnum. Þar á Davíð
að hafa látið höggin dynja áfram
á honum. Hannes hlaut meðal
annars heilahristing, brot í kinn-
beinsboga og sprungu í ennisbeini
hægra megin. Hannes var lengi
frá vinnu sinni sem knattspyrnu-
maður eftir árásina. Hannes krefst
skaðabóta að upphæð ríflega 4,5
milljónir króna. Verjandi Davíðs
bendir á að talsverður aðdragandi
hafi verið að þeim átökum. Sjálfur
hafi Davíð verið allsgáður þegar at-
vikið átti sér stað.
Missteig sig kannski
Þriðja ákæran snýr að atviki sem
átti sér stað á gamlárskvöld árið
2007 á skemmtistaðnum Apótek-
inu í Austurstræti. Í ákærunni seg-
ir að Davíð Smári hafi þar kýlt Dav-
íð Arnórsson þannig að hann féll í
gólfið, og þá hoppað á vinstri fæti
hans þar sem hann lá á gólfinu. Af-
leiðingar þess voru þær að Davíð
Arnórsson ökklabrotnaði og hlaut
rof á liðböndum. Hann fer fram á
skaðabætur að upphæð ríflega 3,8
milljónir króna.
„Kærandinn viðurkenndi að
þeir hefðu verið að rífast yfir göml-
um erjum sem endaði með átökum
fleiri en þeirra tveggja. Og hann gat
ekki skýrt endilega þennan hluta
eins og ákæran er. Ég myndi sjá
það sjálfur hugsanlega þannig að
hann hafi misstigið sig,“ segir Jón
Egilsson um áverka og tildrög þess
atviks.
9 milljóna króna barsmíðar
Alls er Davíð Smári krafinn um
ríflega 9,1 milljón króna í skaða-
bætur fyrir brotin þrjú. Hann hef-
ur þegar hlotið skilorðsbundinn
dóm vegna hótana í garð lögreglu-
manna og verði hann fundinn sek-
ur í öllum ákæruliðum getur hann
átt yfir höfði sér allt að þriggja ára
fangelsi. Að sögn verjanda hans er
hann ekki með ljótan feril. Hótan-
irnar hafi komið í kjölfar þess að
hópur lögreglumanna hafði hann í
tökum. Jón segist eiga von á því að
ef Davíð verði dæmdur nú verði sú
refsing skilorðsbundin. „Þegar öll
þessi mál eru skoðuð eru þetta rifr-
ildi sem fóru úr böndunum,“ segir
Jón.
Davíð hefur tekið sig á
„Það er ekki þannig að hann
sé stoltur af þessu. Síður en svo,
heldur hefur hann sýnt iðrun.
Þetta eru hlutir sem menn sitja
uppi með. Ég tel þetta ekki eins
einhliða alvarleg brot og frásagn-
ir benda til. Davíð hefur tekið sig
á, hann er í fastri vinnu, orðinn
faðir og lifir mjög þjóðfélagsvænu
lífi. Hann er hættur að fara út á líf-
ið enda skilst mér að hann fái
ekki frið ef hann fer niður í
bæ,“ segir Jón Egilsson. Að-
almeðferð málsins klárað-
ist ekki í gær og var frestað
til 6. nóvember þar sem
mörg vitni vantaði. Dóms-
úrskurðar er að vænta um
mánuði eftir að aðalmeðferð
lýkur.
SiguRðuR Mikael jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
„Davíð hefur tekið sig á, hann er í fastri vinnu,
orðinn faðir og lifir mjög þjóðfélagsvænu lífi.“
Vill 4,5 milljónir Hannes Þ. Sigurðsson,
atvinnumaður í knattspyrnu, kærði davíð Smára
fyrir fólskulega líkamsárás sem átti sér stað á
Hverfisbarnum í desember í fyrra.
MynD: kaRl PeteRSSon
Stútfullur sportpakki Í DV eru heilar átta síður af
íþróttaumfjöllun. Í enska boltanum ber hæst að Fulham datt út og
Manchester náði bara jafntefli. DV byrjar að kynda upp fyrir íslenska
fótboltann í sumar og rætt er við Sigrúnu Brá sundkonu. Bls. 16–23
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 7. TBL. – 96. ÁRG. – [MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006 ] VERÐ KR. 220
Þröstur Þórhallsson
Afsalar sér stórmeistara-
launum fyrir Henrik Bls. 4
Davíð úr Fazmo kýldi Sveppa niður í gærmorgun
LÉK KALLA Á ÞAKINU SÁRÞJÁÐUR
„Hann var með stjörnustæla,“ segir Davíð Smári Helenarson um ástæðu þess að hann réðst á Sverri Þór Sverrisson, Sveppa, fyrir utan Hverfisbarinn snemma ígærmorgun. Nokkrum klukkutímum síðar steig Sveppi á svið í Borgarleikhúsinu og lék Kalla á þakinu sárþjáður. Förðunarfræðingar leikhússins reyndu allt semþeir gátu til að fela glóðaraugað en glöggir gestir sýningarinnar komu auga á að ekki var allt með felldu. Bls. 6
Alblóðugur
fyrir utan
Hverfisbarinn
DAVÍÐ FAZMO
Árni í leyfi Frúin
rúmföst í mánuð
og á fljótandi fæði Bls. 6
6 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Glöggir gestir barnaleikritsins Kalli á þakinu í gær komu auga á að aðal
stjarna
sýningarinnar, Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi, gekk ekki heill til skógar.
Nokkrum klukkutímum áður en hann gekk á svið var ráðist á hann fyri
r utan
Hverfisbarinn í miðbæ Reykjavíkur, þar sem hann hafði verið að skemm
ta sér – fyr-
ir að vera, að sögn árásarmannsins Davíðs Smára Helenarsonar, með stjörnus
tæla.
„Ég horfði nú ekki á allt Idolið
en ég var bara rosalega
ánægð með stelpuna sem
komst áfram.Mér fannst hún
sæt og hún söng líka mjög vel.
Hún hafði eiginlega bara allt
með sér fannst mér.“
„Þetta lá borðliggjandi fyrir,
hún var bara langbest. Hún
valdi líka ágætislag og var
bara með góðan karakter með
því. Mér fannst þessar rólegu
ballöður sem hini voru að
taka bara leiðinlegar. Hún
hafði eitthvað sem hinir höfðu
bara ekki.“
Hann segir / Hún segir
Sigrún Bender
fegurðardrottning.
Nana réttur
sigurvegari?
Búi Bentsen
útvarpsmaður.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra tekur sér frí frá störfum
Eiginkonan rúmföst í mánuð á fljótandi fæði
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra mun verða í leyfi frá störfum
næstu vikur. Ástæðan er sú að eigin-
kona hans, Edda Björg Hákonar-
dóttir, glímir við erfið veikindi og
mun því Árni þurfa að hugsa um
börnin þeirra tvö og heimilið auk
þess sem hann þarf að
annast eiginkonuna.
Edda Björg hóf
nám við Viðskipta-
háskólann á Bif-
röst í haust.
Samkvæmt
heimildum
DV lagði
hún mjög
hart að sér í
náminu, svo
hart að ristil-
veiki tók sig
upp hjá henni.
Til að reyna
að ná sér góðri hafa
læknar ráðlagt henni
að liggja fyrir í þrjár
til fjórar vikur. Á
þeim tíma má hún
ekkert leggja á sig og
má eingöngu neyta
fljótandi fæðis.
Veikindin hafa
ekki eingöngu
sett strik í
reikninginn
hvað varðar
nám Eddu
Bjargar heldur
einnig í fyrir-
hugaða búferla-
flutninga fjöl-
skyldunnar. Síð-
ustu misseri hafa
þau búið í Hvera-
gerði. Þar var Árni
einmitt bæjarfulltrúi
áður en hann tók sæti á þingi. Fjöl-
skyldan hafði áætlað að selja húsið
sitt í Hveragerði og flytja í Bryggju-
hverfið í Reykjavík. Því hefur hins
vegar verið slegið á frest um óákveð-
inn tíma, að minnsta kosti þar til
Edda Björg hefur náð sér góðri. Börn
þeirra tvö hafa á nýjan leik hafið
nám í sínum gamla skóla í Hvera-
gerði.
Í fjarveru Árna frá Alþingi mun
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra gegna embætti félagsmálaráð-
herra og mun Sæunn Stefánsdóttir
varaþingmaður taka sæti Árna á
þingi.
V ldu ekki
selja jörð
Meirihluti bæjarstjórnar
Fljótsdalshéraðs felldi á
fundi á miðvikudag tillögu
minnihlutan um að sveit-
arfélagið myndi selja jörð-
ina Gröf í Eiðaþinghá.
„Vandséð er hvaða hag
sveitarfélagið hefur af því
að eiga jörðina og ætti því
að vera ærin ástæða til
sölu, ekki síst nú þegar
sveitarfélagið stendur
frammi fyrir miklum fjár-
festingum,“ sagði í tillög-
unni sem meirihlutinn
felldi en samþykkti um leið
að fresta ákvörðun um ráð-
stöfun jarðarinnar.
Grünenfelder
í hótelrekstri
Einstaklingur að nafni
Renato Grünenfelder hyggst
taka að sér rekstur á gisti-
stað úr Fosshótelkeðjunni á
Húsavík. Bæjarráðið á
Húsavík hefur fyrir sitt leyti
veitt jákvæða umsögn þegar
sýslumaðurinn óskaði eftir
áliti þess á veitingu leyfis til
handa Grünenfelder til að
reka hótelið sem stendur
við Ketilsbraut. Eins og
kunnugt er hefur verið um-
talsverð aukning í fjölda
ferðamanna á Húsavík í
tengslum við hvalaskoðun-
arferðir og fleira.
Sverrir Þór Sverrisson hafði fyrr
um kvöldið verið að skemmta sér á
Hverfisbarnum ásamt nokkrum
vinum sínum, meðal annars Auð-
unni Blöndal, félaga Sveppa úr
sjónvarpsþáttunum Strákarnir.
Sveppi blóðugur
Sverrir yfirgaf Hverfisbarinn
skömmu eftir klukkan sex um
morguninn þegar staðnum var
lokað og stóð þar fyrir utan ásamt
nokkrum öðrum, þar á meðal Dav-
íð Smára Helenarsyni. Davíð Smári
er stjarna áskorandahorns heim-
síðunnar Tveir.is sem þeir félagar
Hallgrímur Andri Ingvarsson og
Ingvar Þór Gylfson sjá um. Davíð
Smári og Sverrir byrjuðu að rífast
fyrir utan Hverfisbarinn og ekki
leið á löngu þar til Sverrir lá blóð-
ugur í valnum eftir hnefahögg frá
Davíð Smára, sem á árum áður var
annálaður slagsmálahundur og
hefur margoft verið kærður fyrir
líkamsárásir.
Þrátt fyrir atburði helgarinnar
segist Davíð hins vegar búinn að
snúa baki við ofbeldinu, líkt og fé-
lagar hans Hallgrímur og Ingvar
Þór. Þeir þrír voru allir orðaðir við
Hverfisbarsárásirnar sem gerðu
Fazmo-klíkuna alræmda síðasta
sumar. Davíð segist sjá eftir
árásinni en hann hafi einfaldlega
misst þolinmæðina þegar Sverrir
fór, að hans sögn, að úthúða fjöl-
skyldu hans og kærustu.
Fékk stærðarinnar glóðar-
auga
„Við hleyptum Sverri hingað inn
og leyfðum honum að þrífa sig,“
segir Henning Þór Hauksson, yfir-
dyravörður á Hverfisbarnum, um
málið, en starfsmenn hans aðstoð-
uðu Sverri eftir árásina. Hann mun
hafa borið sig vel eftir atvikið en
nokkuð blæddi úr andliti hans, auk
þess sem stærðarinnar glóðarauga
var farið að gera vart við sig. Dyra-
verðirinir voru búnir að loka staðn-
um þegar árásin var gerð en komu
auga á að Sveppi væri í vanda
staddur og komu honum til bjarg-
ar.
Sýningunni breytt vegna
áverkanna
Glóðaraugað hafði síður en svo
minnkað þegar Sverrir vaknaði í gær-
dag. Klukkan tvö lék hann í barnaleik-
ritinu Kalli á þakinu og þurfti starfs-
fólk förðunardeildar Borgarleikhús-
ins að hafa sig allt við til að hylja um-
merki árásarinnar fyrir barnungum
leikhúsgestunum. Glöggir gestir
komu þó auga á að ekki var allt með
felldu. Þar að auki var einu atriði sýn-
ingarinnar, þar sem Sverrir fer hvað
næst áhorfendum, breytt vegna at-
burða næturinnar.
Sveppi segir ekkert
DV hitti Sverri Þór Sverrisson
baksviðs í Borgarleikhúsinu í gær
eftir að hann hafði hlotið
dúndrandi lófatak að laun-
um frá aðdáendum
sínum. Hann bar
sig vel þrátt fyrir
að hafa leikið
aðalhlutverkið í
fjörmikilli
barnasýningu
minna en tíu
klukkutímum
eftir að hafa
orðið fyrir lík-
amsárás í
miðbæ
Reykjavík-
ur, en sagð-
ist engu að
síður ekki
vilja ræða um
málið. „Ég vil
ekki tala um
þetta,“ sagði
Sveppi, þurrkaði
svitann úr andliti sínu
og gekk inn í búnings-
herbergi sitt.
andri@dv.is
„Mér þykir þetta mjög leitt en hann var með þvílíka stjörnustæla
við mig. Þegar hann fór að móðga fjölskyldu mína og kærustu
var mér nóg boðið,“ segir Davíð Smári Helenarson sem kýldi
skemmtikraftinn Sverri Þór Sverrisson, eða Sveppa, í miðbæ
Reykjavíkur snemma á sunnudagsmorgun. Eftir árásina, sem
átti sér stað á Vatnsstíg, leitaði Sverrir ásjár dyravarða á Hverfis-
barnum sem hleyptu honum inn og hjálpuðu honum að þurrka
blóð úr andliti sínu.
„Ég vil ekki tala um
þetta.“
Hverfisbarinn Dyraverðir
staðarins voru búnir að loka
þegar árásin var gerð en
komu auga á að Sveppi væri í
vanda staddur og komu hon-
um til bjargar.
Davíð Smári Helenar-
son Sér eftir að hafa
lamið Sveppa en segir
hann hafa verið með
stjörnustæla.
Sverrir Þór Sverrisson Sveppi fór á kostum
sem Kalli á þakinu í gær þrátt fyrir að bera
áverka eftir árásina sem átti sér stað nokkrum
klukkutímum áður.
Sveppi laminn fyrir
stjörnustæla á bar
Ingvar Þór og Hallli Maðurinn sem réðst
á Sveppa er stjarna áskorandahorns sem
strákarnir halda úti á heimasíðu sinni
Tveir.is
Heimavinnandi Árni Magn-
ússon hefur tekið sér leyfi frá
störfum til að sjá um heimilið
í veikindum eiginkonu sinnar.
Áfram í Hveragerði Vegna
veikinda Eddu Bjargar hefur
fjölskyldan slegið því á frest að
flytja frá Hveragerði.
DV Fréttir
fimmtudagur 30. ágúst 2007 7
hafa verið kúgaðar til að þegja um
meðferðina. „Ég veit að tvær stúlkur
þurftu að leita læknisaðstoðar vegna
ofbeldis forstöðumannsins. Eng-
in kæra var lögð fram því stelpurn-
ar voru skíthræddar og foreldrarnir
í mörgum tilvikum illa fyrirkallaðir.
Hann kúgar stelpurnar algjörlega og
passar virkilega upp á að engin kjafti
frá eða kærur skili sér,“ sagði faðirinn
og bætti við:
„Börnin voru niðurlægð í tali, les-
ið upp úr einkadagbókum þeirra fyrir
aðra og þau beitt líkamlegu ofbeldi af
hálfu Ingjalds. Við tókum dóttur okk-
ar þaðan í burtu þrátt fyrir viðvaranir
Ingjalds og Barnaverndarstofu. Þeg-
ar við bárum upp á forstöðumann-
inn andlegt og líkamlegt ofbeldi var
brugðist hart við og litið á kvartanir
okkar sem vesen. Viðbrögðin voru
þau að ef við hættum ekki þessu ves-
eni fengjum við enga aðstoð fyrir
dóttur okkar.“
Vona að þetta sé ekki rétt
Ingibjörgu Guðmundsdóttur,
móður eins af núverandi skjólstæð-
ingum Meðferðarheimilisins að
L ugalandi, varð hverft við að lesa
ásakanir á hendur forstöðumanni
meðferðarheimilisins. Hún segir
hann hafa hlotið meðmæli barna-
verndaryfirvalda og vonar að ásak-
anirnar reynist ekki á rökum reistar.
„Mér brá við að lesa þessar ásakanir
því dóttir mín býr á heimilinu. Hún
hefur verið ánægð í þá daga sem hún
hefur verið þarna en hún hefur ver-
ið mjög stutt. Það er áfall að heyra
ásakanirnar en ég hef ekki orðið vör
við neitt ofbeldi. Ég myndi vilja að
þetta yrði skoðað nánar því þetta er
mjög óþægilegt fyrir foreldrana og
stelpurnar sem eiga heima þarna.
Ég vona að ekkert af þessu sé satt,“
segir Ingibjörg.
Aðspurður undraðist faðirinn
hvítþvott Barnaverndarstofu sem
hann segir að eigi fyrst og fremst að
gæta hagsmuna barna. Hann bend-
ir á fjölda vitnisburða fyrrverandi
skjólstæðinga sem staðfesti ofbeldi
forstöðumannsins. „Margar af stelp-
unum höfðu engan stuðning frá ætt-
ingjum og voru ofurseldar meðferð-
araðilunum. Málið var rannsakað
vel þar sem margar aðrar stúlkur,
sem voru samtímis okkar dóttur á
Laugalandi, komu í viðtöl og studdu
framburð hennar og sögðu frá sinni
reynslu af andlegu og líkamlegu of-
beldi Ingjalds. Í stuttu máli sagt hvít-
þvoði Barnavarndarstofa Ingjald í
hvínandi hvelli og lýsti starfseminni
þar sem einhvers konar míníútgáfu
af Paradís.“
„Í stuttu máli sagt
hvítþvoði Barna-
varndarstofa Ingj-
ald í hvínandi hvelli
og lýsti starfseminni
þar sem einhvers
konar míníútgáfu af
Paradís.“
„Ég vissi að það væri vafasamt að
dæma þarna en mig óraði ekki fyrir því
að þetta væri eitthvað í þessa veru. Það
er náttúrlega hrikalegt að lenda í þessu
og alveg klárt mál að þarna dæmi ég
ekki aftur,“ segir Valur Steingrímsson
knattspyrnudómari.
Davíð Smári Helenarson, mark-
vörður Dynamo Gym 80, réðst á Val
eftir leik við Vatnaliljurnar í Utan-
deildinni í fyrrakvöld. Valur hafði þeg-
ar skammt var til leiksloka vísað leik-
manninum af velli með rautt spjald
fyrir ósæmilega framkomu innan vall-
ar. Er Valur flautaði leikinn af skömmu
síðar réðst Davíð Smári að honum og
sparkaði honum harkalega í jörðina.
Farið var með Val á slysavarðstofu þar
sem hugað var að meiðslum hans.
Þrjú rifbein hans brotnuðu í árásinni
og hann liggur nú fyrir samkvæmt
læknisráði.
Ekkert fordæmi
Stjórn Utandeildarinnar kom sam-
an í gær og fór yfir atvikið. Ekkert for-
dæmi er fyrir slíkri líkamsárás í langri
sögu deildarinnar og þær upplýsing-
ar fengust hjá stjórninni að setja þurfi
skýrt fordæmi fyrir því að svona hegð-
un líðist ekki. Á fundinum var rætt
hversu langt keppnisbann leikmað-
urinn ætti að hljóta í Utandeildinni.
Niðurstaðan varð sú að hann verður í
banni út næsta keppnistímabil.
Davíð Smári hefur nú þegar sett sig
í samband við stjórn deildarinnar og
beðist afsökunar á hegðun sinni. Þar
lýsti hann því yfir að hann iðrist gjörða
sinna og að hann hygðist setja sig í
samband við fórnarlambið.
Dauðsér eftir dómgæslunni
Aðspurður stefnir Valur á að kæra
árásina til lögreglu á næstunni og hefur
í höndum lögregluskýrslu og áverka-
vottorð. Hann segist ekki hafa dæmt
marga leiki í Utandeildinni og segir
þennan leik þann síðasta sem hann
dæmi þar. „Ég hef það alls ekki nógu
gott eftir þessa hræðilegu uppákomu.
Fyrir utan líkamsárásina viðhafði leik-
maðurinn hræðilegar hótanir í minn
garð, þá réðst hann aftan að mér og
sparkaði mig niður. Ég held að það sé
ekki annað hægt en að kæra svona lag-
að,“ segir Valur. „Þetta á ekki að gerast í
fótbolta. Það eru ekki margir dómarar
sem vilja dæma í þessari deild vegna
vandræða oft á tíðum. Á löngum dóm-
araferli hef ég aldrei lent í neinum
vandræðum og ég dauðsé eftir að hafa
tekið að mér að dæma þennan leik.“
trausti@dv.is
MARKVÖRÐURINN GEKK
Í SKROKK Á DÓMARANUM
Allur lurkum laminn
Valur liggur sárkvalinn heima fyrir
með þrjú brotin rifbein. Hann óraði
ekki fyrir því að geta lent í líkamsárás
fyrir dómgæslu í fótbolta.
„Á löngum dómara-
ferli hef ég aldrei lent í
neinum vandræðum og
ég dauðsé eftir að hafa
tekið að mér að dæma
þennan leik.“
TrAusTi hAfsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Bræðurnir, sem lögreglan í Borg-
arnesi handtók á sunnudagsmorg-
un ásamt tveimur stúlkum, eru þekkt-
ir glæpamenn og hafa komið við sögu
lögreglu áður. Þeir eru þekktir í undir-
heimunum og hafa stundað fíkniefna-
sölu í Reykjavík. Lögreglan í Reykjavík
staðfesti það að þeir ættu sakaferil að
baki, meðal annars fyrir fíkniefnamis-
ferli og ofbeldisbrot.
Samkvæmt upplýsingum DV hafa
þeir ekið um á hvítri Grand Cherokee-
bifreið með krómfelgum. Lögreglan í
Borgarnesi staðfesti það að þeir hefðu
ekið um á hvítum bíl en vildu ekki gefa
nánar upp um tegundina. Mennirn-
ir verða að líkindum ákærðir fyrir lík-
amsárás, umferðarlagabrot og fíkni-
efnamisferli en þeir óku aftan á bifreið
tveggja manna um sjöleytið á sunnu-
dagsmorgun og gengu í skrokk á far-
þega bifreiðarinnar.
Málavextir eru þeir að bræðurnir
héldu frá Reykjavík í átt að sumarbú-
stað í Hvalfirði þar sem fórnarlamb-
ið var statt ásamt félaga sínum aðfara-
nótt sunnudagsins. Bræðurnir töldu sig
eiga óuppgerð mál við fórnarlambið en
með þeim í för voru tvær stúlkur um
tvítugt. Að sögn Theódórs Þórðarsonar,
yfirlögregluþjóns í Borgarnesi, fundu
bræðurnir ekki sumarbústaðinn og
brugðu því á það ráð að hringja í fórn-
arlambið og lokkuðu það til sín. Mað-
urinn fór út úr bústaðnum með félaga
sínum og fór sem leið liggur niður á
veginn til að hitta bræðurna. Þegar þeir
sáu hvað verða vildi forðuðu þeir sér á
bílnum og hringdu og óskuðu eftir að-
stoð frá lögreglu. Bræðurnir héldu þá á
eftir þeim og brugðu á það ráð að keyra
aftan á bíl þeirra til að ná honum út af
veginum. Bræðrunum tókst ætlunar-
verk sitt og endaði bíllinn utan vegar
mikið skemmdur eftir aftanákeyrsluna.
Ökumaðurinn forðaði sér út úr bílnum
en farþeginn læsti að sér en hann var sá
sem mennirnir voru á eftir. Bræðurn-
ir hoppuðu þá á þaki bílsins og brutu
rúður til að draga manninn út þar sem
höggin voru látin dynja á honum.
Bræðurnir eru fæddir árið 1973 og
1981 en talið er að þeir hafi verið und-
ir áhrifum kókaíns. Lögreglan í Borg-
arnesi og á Akranesi var kvödd á vett-
vang og handtók ódæðismennina en
neysluskammtar af kókaíni fundust í
bifreið þeirra.
Lokkuðu fórnarlambið til sín
Lögreglan Ódæðismennirnir
eru þekktir bræður úr undir-
heimastarfsemi reykjavíkur.
mánudagur 7. janúar 20086
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Grímseyj rferja
í Slippinn
Slippurinn á Akureyri sér um
lokaendurbætur á Grímseyjar-
ferjunni Sæfara ef fer sem horfir.
Fyrir helgi var opnað fyrir tilboð
í endurbæturnar og bauð Slipp-
urinn lægst, tæpar 13 milljónir.
Fjórar stöðvar hér á landi sem
geta tekið ferjuna í slipp áttu kost
á að bjóða í verkið. Tilboð bárust
frá þeim öllum en þau þrjú sem
hafnað var voru á bili u 22 til 27
milljónir. Næstlægsta tilboðið var
því um helmingi hærra en það
lægsta.
Vegagerðin fer ú yfir tilboðin
en Slippurin getur hafi vinnu
við skipið 15. janúar og er áætl-
aðu verktími þrjár vikur.
Vinsæl önd boðar mannkærleika
Kostnaður við framleiðslu þátta
fyrir Stundina okkar um Engilráð,
andarunga sem býr á Sjónarhóli,
skiptist á milli Sjónvarpsins og leik-
skólasviðs Reykjavíkurborgar. Borgin
greiðir fyrir leiklestur þáttanna, vel á
hálfa milljón króna, á meðan Sjón-
varpið greiðir ýmsan annan kostnað,
svo sem upptökur, grafíska vinnslu,
hljóðsetningu og klippingu. Þess
ber að geta að framlag Sjónvarpsins
er stærsti hluti kostnaðar við fram-
leiðslu þáttanna og fjöldi vinnu-
stunda starfsmanna stofnunarinnar
er þar að baki.
DV greindi frá samstarfi leik-
skólasviðs borgarinnar og RÚV við
Sjónarhól, samtök fjölskyldna barna
með sérþarfir, þar sem framleidd-
ir verða 8 þættir með Engilráð sem
sýndir verða í Stundinni okkar. Ofs-
agt var að allur kostnaður þáttanna
sé greiddur af leikskólasviðinu. Hið
rétta er að kostnaðurinn deilist nið-
ur á milli þess og Sjónvarpsins. Full-
yrðing á forsíðu DV að Sjónvarpið fái
efnið endurgjaldslaust var því röng.
Innslög í Stundina okkar þar sem
Engilráð er í aðalhlutverki hafa áður
verið sýnd hjá RÚV. Sjónvarpsvetur-
inn 2004-2005 voru 8 þættir sýndir í
Stundinni okkar. Þórhallur Gunnars-
son, dagskrárstjóri RÚV, segir þá hafa
notið mikilla vinsælda meðal áhorf-
enda. „Þættirnir byggjast á mann-
kærleika og umhyggjusemi eins og
Sjónarhóll stendur fyrir. Vegna vin-
sælda þáttanna og góðs samstarfs
við Sjónarhól var ákveðið að hefj-
ast handa á nýjan leik og fer öndin
ljúfa nú í leikskóla og vinnur verkefni
með börnum á sama aldri og marka
áhorfendahóp Stundarinnar okkar,“
segir Þórhallur. trausti@dv.is
Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri rúV segir öndina ljúfu vinsæla meðal
áhorfenda barnaþáttarins.
Sýknaður af
líkamsárás
Héraðsdómur Reykjavík-
ur sýknaði á föstudag karlmann
af ákæru um að hafa kýlt annan
mann í andlitið með krepptum
hnefa. Hinum ákærða var gefið að
sök að hafa klukkan 6 að morgni
sunnudagsins 18. júní síðastliðinn
slegið mann með krepptum hnefa
í andlitið með þeim afleiðingum
að framtönn hans brotnaði.
Í niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að ekki sé úti-
lokað að einhver annar en ákærði
hefði slegið fórnarlambið í andlitið
þar sem mannmergð hafi myndast
í kringum atganginn. Því sé vafinn
slíkur að sýkna beri hinn ákærða af
ákæru um líkamsárás.
Neitað um l yfi
til ættleiðingar
Ekki var fallist á kröfu m nns
um ógildingu tveggj ú skurða
dómsmálaráðuneytisins um
synjun leyfis til að ttleiða tvær
stjúpdætur hans. Úrskurðir ráðu-
neytisins voru by gð r á því að
lágmar ssambúðartíma foreldra
barnsins haf ekki verið fullnægt.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst
ekki á kröfu mannsins af sömu
ástæðu og rá uneytið. Maðurinn
og kon n hafi hins vegar aðeins
verið í sambúð í rúm þrjú ár. Stefn-
anda var einnig gert að greiða 150
þúsund krónur í málskostnað.
Hyggja á útrás
til Slóveníu
Skipti hf gerði á föstudag
tilboð í slóvenska fjarskiptafé-
lagið Telekom Slovenije. Skipti
er eitt þriggja fyrirtækja sem
gerðu tilboð í félagið en um
er að ræða 75 prósenta hlut í
fyrirtækinu. Tilboðið er bundið
trúnaði samkvæmt samkomu-
lagi við slóvensk stjórnvöld
sem koma til með að eiga 25
prósent í félaginu. Hjá félaginu
starfa um 4.400 starfsmenn
en tekjur félagsins á fyrstu níu
mánuðum ársins námu um 54
milljörðum króna og hagn-
aðurinn var 9,4 milljarðar.
Einkavæðingarnefnd slóvensku
ríkisstjórnarinnar fundaði um
tilboðin á föstudag og varð
niðurstaðan að þeir aðilar sem
buðu í félagið þurfa að skila
inn nýjum tilboðum fyrir 15.
janúar.
Ofbeldismaðurinn Davíð Smári
Helenarson, sem sló atvinnufót-
boltakappann Hannes Þ. Sigurðsson
á Hverfisbarnum fyrir jól, er á þriggja
ára skilorði fyrir brot gegn valdstjórn.
Verði hann fundinn sekur fyrir árás-
ina á Hannes gæti hann átt yfir höfði
sér fangelsisdóm.
Móðir Davíðs segir hann góðan
pilt. Hann sé hins vegar þjakaður
af svefnleysi auk þess sem hann sé
skapstór. Árásin á Hannes er sú sjötta
á tveimur árum sem hann er bendl-
aður við. Hann á yfir höfði sér kær-
ur vegna þriggja líkamsárása. Auk
Davíðs var Hallgrímur Andri Ingv-
arsson með honum og er grunaður
sem einn af þremur árásarmönnum
sem veittust að Hannesi. Sjálfur segir
Hallgrímur að hann hafi reynt að stía
Davíð frá Hannesi.
Svefnlaus í mörg ár
„Hann á sitt skap, ég viðurkenni
það,“ segir móðir Davíðs, Helen Jó-
anna Halldórsdóttir, um son sinn en
Davíð hefur verið þjakaður í mörg ár
af svefnleysi að sögn Helenar. Síðan
drekkur hann ofan í það auk þess að
vera skapmikill. Sú blanda virðist oft
enda með líkamsárásum.
Helen segist ekki verja það sem
hann hefur gert. Hún segir að Davíð
ætli að leita sér aðstoðar vegna skap-
ofsans sem virðist heltaka hann. Hún
segir son sinn þó hafa verið bláedrú
þegar árásin hafi átt sér stað. Þá full-
yrðir hún að Davíð hafi alls ekki átt
upptökin.
„Ég er stolt af honum en ekki af
því sem hann hefur gert,“ segir móð-
ir Davíðs sem hefur þurft að þola
svívirðilegar árásir á einkalíf sitt en
henni hafa borist hótanir í gegnum
smáskilaboð.
Steig á milli
Hallgrímur Andri Ingvarsson varð
vitni að því þegar Davíð Smári réðst á
Hannes og hann var einnig viðstadd-
ur árásina sem átti sér stað á Apótek-
inu þar sem piltur fótbrotnaði. Í yf-
irlýsingu sem Hallgrímur sendi DV
í gærkvöldi segir orðrétt: „Umrætt
kvöld á Hverfisbarnum var ég í góðra
vina hópi að skemmta mér. Þegar leið
á kvöldið og við vorum að huga að
því að heimsækja annan skemmti-
stað verðum við allir varir við mikinn
hamagang á efri hæð staðarins. Þar
sem við vorum staðnir upp og á leið-
inni út sáum við vel að þarna voru
slagsmál í gangi. Ég þekkti til annars
aðilans og taldi mig geta komið í veg
fyrir að hlutirnir færu meira úr bönd-
unum en þá var orðið. Ég stakk mér
þarna á milli beggja aðila og á allan
heiður af því að þessi slagsmál gengu
ekki lengra heldur en raunin varð.
Þessa frásögn mína styður og getur
staðfest fjöldinn allur af vitnum þar
sem ég var ekki einn á ferð sem og að
margir voru á efri hæð staðarins.
Missti linsu
Svipað var uppi á teningnum á
Apótekinu en þar labbaði ég inn á
salerni staðarins með einum vini
mínum sem er vinur fórnarlambs-
ins þar. Það sem við verðum vitni að
er að sami aðili og áður var í miklum
ham. Æsingurinn var mikill og gekk
ég aftur þar á milli þar sem ég taldi
mig geta stöðvað átökin sem og haft
stjórn á báðum aðilum. Það varð úr
að ég náði að stöðva þetta en það var
ekki áfallalaust þar sem úr mér var
slegin önnur linsan en á endanum
náði ég að stöðva atið.
Það var fyrir einskæra tilvilj-
un að ég varð vitni að báðum þess-
um slagsmálum en ástæða þess að
ég taldi mig geta stöðvað það sem í
gangi var er sú að ég þekki til aðila
sem átti í hlut.
Ég vil ekki meina að það hafi verið
mistök af minni hálfu að stöðva bæði
þessi átök því mun verr hefði getað
farið.“
Yfirlýsingin er birt í heild sinni á
www.dv.is.
Lögreglan hefur hvorki tekið
skýrslur af Hallgrími né Davíð Smára
en hún hefur myndbandsupptökur
af árásinni undir höndum.
valur GrettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Davíð Smári Helenarsona Dabbi Grensás
Helenar Jóönnu Halldórsdóttur.
Hallgrímur andri ingvarsson
SvefNlauS á
Skilorði
Hallgrímur andri ingvarsson Var
viðstaddur báðar árásirnar en segist ekki
hafa tekið þátt í þeim.
Hannes Þ. Sigurðsson Þríbrotnaði á
andliti eftir fólskulega líkamsárás.
eiður Smári Guðjohnsen ráðist var á
hann í miðbæ reykjavíkur en davíð
Smári var bendlaður við málið.
„Það var einhliða ákvörðun Guð-
jóns Pedersen leikhússtjóra að taka
Jón Viðar Jónsson, leiklistargagn-
rýnanda DV, af gestalista Borgarleik-
hússins,“ segir Styrmir Gunnarsson,
stjórnarmaður í Leikfélagi Reykjavík-
ur og ritstjóri Morgunblaðsins.
Guðjón tók ákvörðun um þetta
vegna dóma Jóns Viðars um verk
leikhússins að undanförnu. Skrif Jóns
Viðars um „nályktina sem leggur frá
Borgarleikhúsinu“ taldi hann móðg-
un við leikhúsið og leikhúsgesti.
Styrmir vill að öðru leyti ekki tjá
sig um þessa ákvörðun án þess að
hafa rætt hana við Guðjón sjálfan en
bætir við að í 110 ára sögu Leikfélags
Reykjavíkur sé þetta ekki einsdæmi.
„Fyrir um hundrað árum var manni
bannað að mæta á sýningar Leikfé-
lagsins en það hefur sem betur fer
ekki gerst lengi.“ Styrmir er á þeirri
skoðun að gestalistar séu úrelt fyrir-
bæri. „Almenn skoðun mín er sú að
mér finnst koma til greina að fjölmiðl-
ar greiði alltaf fyrir fulltrúa sína á við-
burði, hvort sem um ræðir tónleika,
leiksýningar eða aðra menningarvið-
burði. Það er orðið úrelt og gamal-
dags að fjölmiðlar þiggi ókeypis miða.
Mér finnst að fjölmiðlar eigi sjálfir að
ákveða hvaða viðburði þeir vilji fjalla
um og greiða þá aðgöngumiðana
sjálfir.“
Aðspurður hvernig hann hefði
brugðist við ef leiklistargagnrýnandi
Morgunblaðsins hefði hlotið sömu
meðferð og Jón Viðar segir Styrmir:
„Það hefur margoft gerst að fulltrú-
ar Morgunblaðisins hafi ekki verið
velkomnir á menningarviðburði. Við
látum það hins vegar ekki á okkur fá
og ákveðum sjálf hvað við skrifum
um.“
Dómur Jóns Viðars um upp-
færslu Jesus Christ Superstar í
Borgarleikhúsinu birtist á blaðsíðu
24 í DV í dag. trausti@dv.is
„Ég og dóttir mín höfum verið að
fá hræðileg smáskilaboð þar sem
okkur er hótað,“ segir Helen Jó-
anna Halldórsdóttir, móðir Davíðs
Smára Helenarsonar, oft kallað-
ur Dabbi Grensás, sem hefur ver-
ið kærður ásamt tveimur öðrum
árásarmönnum fyrir að lemja fót-
boltamanninn Hannes Þ. Sigurðs-
son á Hverfisbarnum rétt fyrir jól.
Þá þríbrotnaði Hannes í andliti og
talið er að hann verði að minnsta
kosti mánuð frá æfingum með
norska úrvalsdeildarliðinu Viking
í Stafangri. Davíð hefur margsinn-
is verið dæmdur fyrir líkamsárás-
ir en ávallt hlotið skilorðsbundna
dóma.
Ver ekki soninn
„Maður er hvekktur vegna þess-
arar umfjöllunar og ég er ekki sátt við
að hann sé tekinn af lífi án dóms og
laga,“ segir Helen um þá miskunn-
arlausu umræðu sem hefur gengið
um Davíð eftir árásina. Hún breið-
ir þó ekki yfir hegðan sonar síns.
Hann réðst til að mynda á dómara í
utandeildarkeppni í fótbolta á síð-
asta ári. Sú árás var kærð en Davíð
sópaði löppunum undan dómaran-
um með þeim afleiðingum að hann
braut þrjú rifbein. Þá fór Davíð í við-
tal bæði í Íslandi í dag og Kastljósi.
Þar sagðist hann ætla að gera eitt-
hvað í sínum málum og taldi sig hafa
náð botninum þá.
Davíð ekki einn
Aðspurð segist Helen ekki viss
um hvort hún muni kæra hótanirn-
ar sem hún hefur fengið vegna sonar
síns. Henni þykir verst að systir hans
fái einnig hótanir, en hún er aðeins
fimmtán ára.
Hún segir alla umræðuna um mál-
ið gríðarlega erfiða fyrir sig. Sjálf eigi
hún engan annan son. Hún segist
elska Davíð þrátt fyrir hans galla. Þá
bendir hún á að það sé ósanngjarnt að
nafngreina hann einan en auk Davíðs
voru tveir aðrir árásarmenn.
Særir gríðarlega
„Þetta særir mig gífurlega,“ seg-
ir Helen sem er bæði þreytt og reið
vegna málsins. Hún segir Davíð vera
að taka sig saman í andlitinu eftir árás-
ina. Hann muni útvega sér lögfræð-
ing í vikunni. Þá hyggst hann leita sér
meðferðar vegna skapofsans og reið-
innar.
Því skal þó haldið til haga að í fyrr-
greindum sjónvarpsviðtölum lofaði
hann því sama. Davíð hefur auk árás-
arinnar á Hannes verið kærður fyrir að
fótbrjóta mann á klósettinu á Apótek-
inu í miðborg Reykjavíkur eftir jól. Þá
voru árásarmennirni einnig þrír.
Ítarlega umfjöllun um ofbeldisferil
Davíðs Smára er að finna á blaðsíðu 6
í DV í dag.
mánudagur 7. janúar 2008 Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttaSkot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Borgar leikhúsið
ekki?
Fjölskyldu hrotta
hótað hræðilega
Dabba Grensás
Jólin búin Grafarvogsbúar fögnuðu þrettándanum með brennu og flugeldasýningu í gær. Ljóst var að fólk skemmti sér vel í rökkrinu enda sungið, dansað og skotið upp flugeldum fram eftir kvöldi. DV mynd Stefán
Einhliða ákvörðun Guðjóns
Hverfisbarinn Dabbi Grensás og tveir
huldumenn þríbrutu fótboltamanninn á
Hverfisbarnum.
Valur GrettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Guðjón Pedersen Tók
sjálfur ákvörðunina um að
taka leiklistargagnrýnanda
DV af gestalista.
undirbýr
málshöfðun
Jóhannes Gunnarsson, fráfarandi
fyrsti trúnaðarmaður vagn-
stjóra Strætó bs., undirbýr mála-
rekstur gegn Reyni Jónssyni, fram-
kvæmdastjóra Stætó bs. Það gerir
hann eftir að hafa hlotið áminningu
fyrir ölvun í starfi eftir formlega
móttöku við trúnaðarmannaskipti
fyrirtækisins fyrir skömmu. Fallið var
frá áminningum á hendur öðrum
trúnaðar önn m fyrirtækisins og
deilan hefur nú ratað nn á borð
lögmanns BSRB. „Þetta er ennþá stál
í stál og vagnstjórarnir eru bálillir
yfir hegðun framkvæmd stjórans.
Ég inn fékk áminningu og nú er
ég að undirbú dómsmál því ég get
ekki annað en farið í hart með þetta,“
segir Jóhannes.
ógnaði með hnífi
Lögreglan í Reykjanesbæ hand-
tók karlmann á laugardagskvöld fyr-
ir að ógna öðrum manni með hnífi.
Tilkynnt var um að hann væri einnig
að sprengja skoteldaköku svo ná-
lægt fjölbýlishúsi að ógn stafaði af.
Lögreglan fór á staðinn og handtók
viðkomandi. Að sögn varðstjóra er
þetta ekki í fyrsta skipti sem hann
hefur í hótunum við fólk með hníf-
um og greinilegt sé að viðkomandi
sé í töluverðu andlegu ójafnvægi.
ók ölvaður
inn í garð
Ökumaður missti stjórn á bíln-
um sínum þegar hann ók niður
Furugrund í Kópavogi í fyrrinótt.
Bíllinn endaði inni í garði. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
er maðurinn talinn hafa verið ölv-
aður. Hálka var á veginum og telur
lögreglan það einnig hafa átt þátt
í óhappinu. Engin slys urðu á fólki
í þessari skrautlegu bílferð en ekki
liggur fyrir hve mikið bíllinn er
skemmdur. Hálka var víða á götum
bo garinnar um helgina, enda hiti
um frostmark.
axlarbrotnaði í
hálkunni
Ökumaður missti stjórn á
bílnum sínum við Einarsnes í
Skerjafirði í Reykjavík á laugar-
daginn. Tvennt var í bílnum og
var farþegi fluttur á slysadeild.
Ekki fengust upplýsingar um al-
varleika meiðslanna en þau eru
ekki talin alvarleg. Í Mosfells-
bæ missti ökumaður mótorhjóls
stjórn á því. Hann var á suður-
leið á Vesturlandsvegi og rann
til í hálkunni þegar hann ók inn
á hringtorg við Lágafellskirkju.
Hann lá í götunni þjáður og kom
sjúkrabíll sem flutti hann á slysa-
deild. Þar kom í ljós að hann var
axlarbrotinn. Hjólið er nokkuð
skemmt.
jh-897 stolið
Bíl ungrar konu var stolið fyr-
ir utan Mjóddina á laugardag. Ef
marka má Vísi.is lagði hún bíl sínum
og fór í bankann. Þegar hún kom út
aftur var bíllinn horfinn. Í bílnum
voru ýmsir persónulegir munir á
borð við fatnað, barnabílstól, geisla-
diska og húslykla. Konan hefur því
þurft að skipta um lás. Þeir sem hafa
upplýsingar um bílinn eru beðnir að
hafa samband við lögreglu. Bíllinn er
silfurlitaður Volkswagen Golf, árgerð
2005, og ber númerið JH-897.
Styrmir Gunnarsson
13 ára piltur
tekinn á fjórhjóli
Síðastliðinn föstudag fékk
lögreglan á Selfossi tilkynningu
um að ungur drengur á Stokks-
eyri væri á ferð um götur bæjar-
ins á fjórhjóli og hefði legið
við slysi vegna aksturslags
hans. Við nánari athugun
kom í ljós að þarna var á
ferð 13 ára drengur. Foreldrum
drengsins var gerð grein fyrir
þeim reglum sem gilda um
réttindi og akstur fjórhjóla.
Drengurinn er ósakhæfur og
verður því ekki gerð refsing fyrir
brotið en mál hans verður sent
barnaverndaryfirvöldum til
meðhöndlunar.
Féll þrjá metra
Maður, sem var að vinnu í
Dalshverfi í Innri-Njarðvík á
Suðurnesjum, féll aftur fyrir
sig á mánudaginn. Talið er
að fallið hafi verið rúmir þrír
metrar. Hann slasaðist nokkuð
við fallið og handleggsbrotnaði
meðal annars. Sjúkrabifreið
kom á vettvang og ferjaði
manninn á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Lögreglan hafði í nógu að
snúast á mánudag en meðal
annars voru fimm rúður
brotnar í Gerðaskóla. Talið er
að grjót hafi verið notað við
skemmdarverkin.
Bea fann dóp
Fíkniefnahundurinn Bea fann
tuttugu grömm af marijúana
auk kannabisfræja og neyslutóla
í Hveragerði um síðustu helgi.
Lögreglan hafði haft grun um
að í íbúðinni leyndust fíkniefni
og fór fram á úrskurð dómara til
þess að framkvæma húsleit. Með
í för var tíkin Bea. Þegar leitað
var í húsinu komu fíkniefnin í
ljós enda fátt sem fer framhjá
sérþjálfuðu lyktarskyni Beu. Einn
maður var handtekinn vegna
efnanna sem lögreglan lagði
hald á. Manninum var sleppt að
yfirheyrslum loknum.
miðvikudagur 20. febrúar 20086
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Hannes Þ. Sigurðarson
Davíð Smári Helenarson
Lögfræðingur stýrir skútunni
Lárentsínus Kristjánsson hæsta-
réttarlögmaður hefur tekið við stjórn-
artaumum fjárfestingafélagsins
Gnúps af Kristni Björnssyni, einum af
aðaleigendum félagsins. Hans hlut-
verk er að vinna úr afar erfiðri fjár-
hagsstöðu félagsins. „Ég er bundinn
trúnaði en erfið staða hefur svo sem
blasað við. Ætli ég hafi ekki ver-
ið fenginn inn til að rétta skút-
una við og koma málum í eðli-
legra horf. Það gengur svona
eftir atvikum. Auðvitað helst
þetta í hendur við stöð-
una á markaðnum,
ef eitthvað fer að
birta yfir honum
vænkast hag-
ur okkar. Við
bíðum eftir
því að birti
til,“ segir
Lárentsín-
us. Fjárhagsstaða Gnúps hefur verið
afleit síðustu mánuði. Upp úr áramót-
um sendir félagið frá sér tilkynningu
þess efnis að samið hafi verið við
helstu lánadrottna um fjárhagslega
endurskipulagningu. Stór hluti eigna
félagsins hefur nú þegar verið seld-
ur og rekstur orðinn
sama og eng-
inn. Ì kjölfar
hremminga
neyddist
Gnúpur
til að segja
upp hús-
næði sem
fyrir-
hugað var undir höfuðstöðvar félags-
ins. Það var þúsund fermetra glæsi-
rými í sérhönnaðri skrifstofubyggingu
í Borgartúni 26.
Lárentsínus staðfestir að lítil starf-
semi sé í gangi hjá Gnúpi. Hann segir
ljóst að ekki verði flutt inn í nýjar höf-
uðstöðvar í bráð. „Það er afráðið að
félagið flytur ekki inn í nýja hús-
næðið og væntanlega verða
þar fundnir nýir leigjend-
ur. Til að byrja með flyst
félagið inn á skrifstof-
una til mín og verður þar
með sitt heimilisfang.
Það verður eitthvað lítið
um formlega starfsemi,“
segir Lárentsínus.
trausti@dv.is
Kristinn Björnsson Hefur
stigið niður sem stjórnandi
gnúps og lögfræðingur hefur
tekið við stjórnartaumunum.
Magnús Kristinsson Hefur ásamt öðrum eigendum
fjárfestingafélagsins gnúps tapað miklu undanfarið.
HANNES krEfSt
BótA frÁ
DABBA
Fótboltakappinn Hannes Þ. Sig-
urðarson, sem spilar í Stafangri í
Noregi, hyggst krefja ribbalda um
skaðabætur sem réðust á hann um
jólin á Hverfisbarnum. Hann þrí-
brotnaði í andlitinu og var frá und-
irbúningstímabili fótboltaliðsins
Vikings í Stafangri í heilan mánuð.
Samkvæmt frétt sem birtist á roga-
landavis.is segir Hannes lögregluna
búna að bera kennsl á árásarmenn-
ina. Ekki sé þó búið að bera kennsl
á alla hlutaðeigendur í málinu.
Fréttir bárust af því að Davíð Smári
Helenarson væri viðriðinn árásina
en hann hefur margsinnis kom-
ist í kast við lögin vegna líkamsár-
ása. Heimildir herma að vinnutap
Hannesar sé metið á milljónir.
Fótboltakappi andlitsbrotnar
Það var 21. dese ber sem
Hannes var að skemmta sér á
Hverfisbarnum ásamt félögum.
Hann er atvinnumaður í fótbolta og
spilar jafnan með Viking í Stafangri
í Noregi. Þetta sama kvöld eiga
þrír menn að hafa veist að honum.
Á meðal vitna á staðnum var
Hallgrímur Andri Ingvarsson sem er
fyrrverandi meðlimur svokallaðrar
Fazmo-klíku. Hallgrímur sagði í
viðtali við DV í janúar að Davíð
Smári hefði ráðist á annes. Sjálfur
sagðist hann hafa reynt að stía þeim
í sundur. Þá var Hallgrímur einnig
vitn að annarri árás þar sem Davíð
Smári á að hafa fótbrotið pilt á
klósetti skemmtistaðar í R ykjavík.
Í yfirlýsingu sem Hallgrímur
sendi frá sér vegna málsins stóð:
„Umrætt kvöld á Hverfisbarnum
var ég í góðra vina hópi að skemmta
mér. Þegar leið á kvöldið og við vor-
um að huga að því að heimsækja
annan skemmtistað urðum við all-
ir varir við mikinn hamagang á efri
hæð staðarins. Þar sem við vorum
staðnir upp og á leiðinni út sáum
við vel að þarna voru slagsmál í
gangi. Ég þekkti til annars aðilans
og taldi mig geta komið í veg fyrir
að hlutirnir færu meira úr böndun-
um en þá var orðið. Ég stakk mér
þarna á milli beggja aðila og á all-
an heiður af því að þessi slagsmál
gengu ekki lengra heldur en raun-
in varð.“
Mikið skap
Móðir Davíðs Smára, Helen Jó-
anna Halldórsdóttir, sagði hann
skapmikinn í viðtali við blaðið í jan-
úar: „Hann á sitt skap, ég viður-
kenni það.“
Þá segir hún son sinn hafa
verið þjakaðan af svefnleysi í
mörg ár. Helen sagðist ekki verja
það sem hann hefur gert. Hún
sagði að Davíð ætli að leita sér að-
stoðar vegna skapofsans sem virð-
ist heltaka hann. Hún fullyrti þó
að Davíð hefði verið bláedrú þegar
árásin hafi átt sér stað. Að auki vildi
hún meina að Davíð hefði alls ekki
átt upptökin. „Ég er stolt af honum
en ekki af því sem hann hefur gert,“
sagði móðir Davíðs en sjálf hefur
hún þurft að þola svívirðilegar árás-
ir á einkalíf sitt en henni hafa borist
hótanir í gegnum smáskilaboð.
Málið í rannsókn
Rannsókn lögreglunnar er á
lokastigi. Hannes býst við því
að málið fari fyrir dómstóla
innan skamms. Í viðtali við
norskan miðil segist hann
ætla að krefjast skaðabóta.
Ekki er gefið upp hversu
miklar skaðabætur hann muni
fara fram á en talið er að þær geti
hlaupið á milljónum. Að auki,
verði Davíð Smári ákærður og
dæmdur, hefur hann rof-
ið þriggja ára skilorð sem
hann er á vegna ann-
arrar líkamsárásar.
valur grettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„ég er stolt af honum
en ekki af því sem
hann hefur gert.“
Hannes Þ. Sigurðarson
Hefur verið frá æfingum í
mánuð með viking í
Stafangri vegna beinbrota
sem hann hlaut eftir
líkamsárás á Hverfisbarnum.
Davíð Smári Helenarson
er grunaður um að hafa
tekið þátt í líkamsárás á
Hannes Þ, Sigurðarson.
Hverfisbarinn Hannes var að skemmta sér
með góðum vinum þegar ribbaldar réðust á
hann á staðnum og brutu á honum andlitið.
þriðjudagur 2. september 20086
Fréttir
Í gær voru þingfestar fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur ákærur á hend-
ur Davíð Smára Helenarsyni fyr-
ir þrjár líkamsárásir sem framdar
voru árið 2007. Davíð Smári neit-
aði að mestu sök, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Davíð Smári, sem hefur oft
komist í kastljós fjölmiðlanna fyr-
ir endurteknar líkamsárásir, er
ákærður fyrir að hafa ráðist gegn
knattspyrnudómaranum Vali Stein-
grímssyni í lok ágúst í fyrra. Davíð er
ákærður fyrir að rífa í hann í miðj-
um knattspyrnuleik í utandeildinni
og sparka í fætur hans þannig að
hann féll til jarðar. Við það brotn-
uðu þrjú rifbein í fórnarlambinu og
það hlaut jafnframt mar á
hægri upphandlegg.
Valur sagði í samtali
við DV eftir árás-
ina í fyrra að
hann hefði
vitað að
það væri
vafasamt
að dæma
þarna, en
hann hefði ekki órað fyrir því að
afleiðingarnar gætu orðið eitt-
hvað í þessa veru. „Það er náttúr-
lega hrikalegt að lenda í þessu og
alveg klárt mál að þarna dæmi ég
ekki aftur,“ sagði hann. Davíð Smári
kom fram í fjölmiðlum eftir atvikið
og sagðist myndu leita sér hjálpar.
Réðst á landsliðsmann
Hinar tvær ákærurnar lúta að
málum sem komu upp eftir árás-
ina á knattspyrnudómarann.
Davíð Smári er ákærður fyrir að
hafa aðfaranótt laugardagsins 22.
desember í fyrra ráðist að knatt-
spyrnumanninum Hannesi Þór
Sigurðssyni á Hverf-
isbarnum. Árásin
var fólskuleg því
Davíð er ákærð-
ur fyrir að hafa
kýlt Hannes í
andlitið með
þeim afleið-
ingum að
hann féll í
sófa inni á
skemmtistaðn-
um. Þar lét
Davíð Smári
höggin
dynja á honum. Hannes
hlaut heilahristing, glóð-
araugu beggja vegna og
einnig brotnaði hann á kinn-
beinsboga og hlaut áverka
á tönn. Hannes var lengi frá
vinnu sinni sem knattspyrnu-
maður eftir árásina. Hann
krefst skaðabóta vegna vinnu-
taps, en talið er að þær kunni
að nema milljónum króna.
Hoppaði á liggjandi mann
Enn fremur er Davíð Smári
ákærður fyrir líkamsárás á gaml-
árskvöld inni á skemmtistaðnum
Apótekinu í miðbæ Reykjavíkur. Í
ákærunni segir að hann hafi kýlt
Davíð Arnórsson þannig að hann
féll í gólfið á skemmtistaðnum.
Þegar Davíð var kominn í gólfið
hoppaði Davíð Smári ofan á vinstri
fót hans þar sem hann lá í gólfinu.
Fórnarlambið ökklabrotnaði við
þetta og einnig rofnuðu liðbönd. Í
viðtali við Ísland í dag, skömmu eft-
ir árásina, sagði Davíð að það væri
árásarmaðurinn Davíð Smári sem
væri fórnarlambið í þessu máli og
hann vonaði að árásarmaðurinn
myndi leita sér hjálpar.
Davíð Smári hefur þegar
hlotið skilorðsbundinn dóm
og verði hann fundinn sek-
ur í öllum ákærulið-
um getur hann átt
yfir höfði sér allt
að þriggja ára
fangelsi. Að-
almeðferð
í
mál-
inu fer
fram 23.
september.
valgeiR öRn RagnaRsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Þar lét Davíð Smári höggin dynja á honum.
Hannes hlaut heilahristing, glóðaraugu
beggja vegna og einnig brotnaði hann á
kinnbeinsboga og hlaut áverka á tönn.
Davíð smári Helenarson
Hannes Þ. sigurðsson
DAVÍÐ SMÁRI
NEITAR SÖK
Hannes Þ. sigurðsson
Knattspyrnumaðurinn
Hannes þ. sigurðsson var illa
leikinn eftir árás á Hverfis-
barnum rétt fyrir síðustu jól.
Davíð smári Helenarson
getur átt yfir höfði sér allt
að þriggja ára fangelsi.
valur steingrímsson
Knattspyrnudómarinn
rifbeinsbrotnaði.
Páll Egill Winkel, forstjóri Fangels-
ismálastofnunar, segir að hann muni
á næstu dögum eða vikum funda
með forsvarsmönnum Afstöðu, fé-
lags fanga, vegna óánægju þeirra með
breytingar á meðferð reynslulausn-
arbeiðna, þar sem góð hegðun fanga
fær aukið vægi.
Fangar segja að Páll forstjóri hafi
neitað að ræða við Afstöðu vegna við-
bragða þeirra við tilkynningunni um
breytingarnar, en Páll segir að fund-
ur sé fyrirhugaður. „Ég hef rætt málin
við stjórnarmann Afstöðu og við ætl-
um að halda fund á næstu dögum eða
vikum,“ segir Páll.
Í nýju reglunum um reynslulausn
var vægi góðrar hegðunar í afplánun
aukið, en Afstaða vill meina að með
því sé föngum mismunað. Misskiln-
ingur hafi þar að auki orðið þar sem
menn hafi skilið tilkynninguna þannig
að góð hegðun leiddi af sér reynslu-
lausn fyrir alla fanga þegar þeir hefðu
lokið við helming dómsins. Afstaða
vill meina að þannig hafi allir sem
lesið hefðu tilkynninguna skilið hana.
Í reglunum var skilgreining á ungum
föngum hækkuð úr 18 í 21 ár, og eiga
þeir fangar möguleika á reynslulausn
að afplánuðum helmingi refsitímans,
hafi hegðun verið með ágætum. Sér-
stakt tillit er þá tekið til hegðunar sí-
brotamanna og þeirra sem ekki hafa
átt möguleika á reynslulausn. Og loks
var tilgreint að hegðun fanga skipti
máli í öðrum tilfellum, meðal annars,
þegar litið er til þess hve langur tími
líður milli afplánana. Þriðji og síðasti
liðurinn olli miklum misskilningi hjá
föngum, fangavörðum og stjórnend-
um fangelsanna að sögn aðstand-
enda Afstöðu. Liðurinn var leiðréttur
síðar.
Páll segir að um ákveðinn mis-
skilning hafi verið að ræða en það sé
skýrt að Fangelsismálastofn-
un sé bundin af lögum
og fordæmum sem
kveði á um að þeir
fangar sem dæmdir
eru fyrir alvarlegt brot
eigi ekki möguleika
á reynslulausn að af-
plánun helmings.
mikael@dv.is
Óánægðir fangar fá fund
Páll egill Winkel Forstjóri
Fangelsismálastofnunar segist hafa
rætt við stjórnarmann afstöðu og
fyrirhugað sé að funda vegna
óánægju langtímafanga.
MynD Heiða HelgaDóttiR
Benjamín
fékk frest
Þingfestingu í máli Benjamíns
Þórs Þorgrímssonar gegn 365 hf.
hefur verið frestað fram á föstu-
dag. Taka átti málið fyrir í dag en
Benjamín fékk frest til að skila
inn greinargerð. Þá verður önnur
fyrirtaka.
Benjamín fór í mál gegn 365
vegna Kompás-þáttar sem sýna
átti í september en óvíst er hvort
töf verði á sýningu þáttarins
vegna málsins. Hann krefst lög-
banns á sýningu myndskeiðs
sem á að sýna það þegar hann
gengur í skrokk á fyrrverandi
veitingastaðaeigandanum Ragn-
ari Magnússyni.
InnlenDarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Ingibjörg stærri
en Geir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og
Samfylki gin yrðu stærsti flokkur
landsins ef kosið yrði nú, sam-
kvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup
sem Ríkisútvarpið sagði frá í gær.
Samkvæmt könnuninni fengi
flokkurinn 33 prósent atkvæða
en Geir H. Haarde og Sjálfstæðis-
flokkurinn 32 prósent.
Vinstri-græn fengju 19 pró-
sent samkvæmt könnuninni og
Framsóknarflokkurinn tíu pró-
sent. Frjálslyndi flokkurinn félli af
þingi með fjögur prósent atkvæða
og Íslandshreyfingin fengi ekki
þingsæti nú frekar en í síðustu
kosningum, hún mælist nú með
tveggja prósenta fylgi.
Óánægðir
Reykvíkingar
Reykvíkingar eru ósáttir
við nýja borgarstjórnarmeiri-
hlutann sem tók við völdum í
borginni seint í síðasta mán-
uði. Samkvæmt Þjóðarpúlsi
Gallup eru 56 prósent Reyk-
víkinga óánægð með nýja
meirihlutann. Það er þó öllu
betri niðurstaða en meiri-
hluti Sjálfstæðisflokks og Ól-
afs F. Magnússonar fékk, 70
prósent Reykvíkinga sögðust
ósátt við hann í Þjóðarpúlsi
í maí síðastliðnum að því er
fram kom í kvöldfréttum Rík-
isútvarpsins í gær.
9. ja úar 2006 30. ágúst 2007 7. j núar 2008 20. febrúa 2008 2. september 2008
Hefur tekið sig á aðalmeðferð hófst í gær á málum
gegn davíð Smára Helenarsyni. Í málunum þremur er
hann krafinn um ríflega 9,1 milljón króna í miskabæt-
ur. Verjandi davíðs segir hann hafa tekið sig á og að
málin séu ekki jafneinhliða slæm og af er látið.
MynD: Heiða HelgaDóttiR