Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Page 13
Þriðjudagur 28. Október 2008 13Fréttir
Almenningi í Indónesíu ofboðið vegna gerða múslímsks klerks:
Enn eru sjö dagar til forsetakosninga
í Bandaríkjunum og þar næstu kosn-
ingar ekki fyrr en eftir fjögur ár. Engu
að síður brennur á fólki spurningin um
hvort Sarah Palin, varaforsetaefni rep-
úblikana, bjóði sig fram til forseta árið
2012.
Frá stuðningsmönnum hennar
heyrast áeggjanir um að hún eigi að
kýla á það og þeir sjá í henni leiðtoga
sem fær er um að stýra skútu íhaldsins
úr slippnum. Þeir telja Söruh stjórn-
málamann sem geti vakið repúblikana
af Þyrnirósarsvefninum, líkt og Barack
Obama gerði gagnvart demókrötum.
Ef svo skyldi fara 4. nóvember að
Obama stæði með pálmann í hönd-
unum, og margir íhaldsmenn hall-
ast að því, er sennilegt að hvatningar-
söngur stuðningsmanna Söruh Palin
hækki. En ekki eru allir íhaldsmenn á
hennar bandi og því má búast við því
að hún verði einnig hvött til að fara til
síns heima.
Víst er að nú þegar veldur Sarah
Palin félaga sínum, John McCain,
vandræðum. Um síðustu helgi þurftu
ráðgjafar McCains ítrekað að taka á
fréttum þess efnis að Palin væri „farin
á flakk“ og legði meiri áherslu á per-
sónulegt markmið sitt vegna kosning-
anna 2012 en að einbeita sér að því
markmiði sem hún og John McCain
vinna að í sameiningu.
„Græn“ og hroðvirknisleg
Ónafngreindur ráðgjafi Johns
McCain sagði í viðtali við fréttastofu
CNN: „Hún er díva. Hún hugsar um
eigin framtíð og telur sig vera næsta
leiðtoga flokksins.“
Á vefsíðu Politico má líta sjónarmið
annars ónafngreinds ráðgjafa McCains
sem átelur Söruh Palin fyrir að vera
„græn“, hroðvirknisleg og óskiljanlega
viljug til að gagnrýna baráttuaðferðir
Johns McCain.
Undanfarið hefur Palin orðið upp-
vís að því að vera á skjön við baráttu
McCains. Hún fordæmdi opinberlega
þá ákvörðun McCains að leggja árar
í bát í Michigan og spurði hvað valdi
því að spjótunum sé ekki lengur beint
að predikaranum róttæka, Jeremiah
Wright, vegna tengsla hans við Obama
og ummæla sem hann hefur látið falla.
Með þessu hefur Sarah Palin upp-
skorið skiptar skoðanir í Bandaríkjun-
um. Hún hefur óneitanlega skapað sér
ímynd afar hrífandi stjórnmálamanns,
en einnig ímynd stjórnmálamanns
sem veldur sundrungu. Henni hefur
tekist að kljúfa kjósendur í tvo hópa;
þann sem sér í henni kjarna smábæja
Bandaríkjanna, og hinn sem telur hana
tákn þröngsýni Bandaríkjanna.
Nýtur aðdáunar margra
Þessi sundrung ristir djúpt í kjarna
íhaldsins í Bandaríkjunum, og end-
urspeglar grundvallarágreining hvað
varðar framtíðarstefnu Repúblikana-
flokksins. Það er nokkuð ljóst að fari
svo að John McCain tapi kosningunum
munu eftirmálarnir einkennast af þætti
Söruh Palin og persónu hennar.
Rich Lowry, ritstjóri íhaldsblaðs-
ins National Review, er einn aðdáenda
Palin og hann telur að hún muni bjóða
sig fram til forseta Bandaríkjanna 2012.
„Hún hefur ímynd rokkstjörnu. Hún
hefur fengið tækifæri til að birtast þjóð-
inni og nafn hennar öðlast virðingu
sem margir metnaðarfullir stjórnmála-
menn myndu drepa fyrir,“ sagði Lowry í
viðtali við breska dagblaðið Guardian.
Sarah Palin á víðar Hauka í horni,
meðal annars áhrifamikla menn í ranni
Weekly Standard, til dæmis William
Kristol, sem er í eigu Ruperts Murdoch.
Kristol skrifar einnig fyrir New York Ti-
mes, sem hefur opinberlega lýst yfir
stuðningi við Obama. Á bandi Palin er
einnig að finna nokkra kynna á sjón-
varpsstöðinni Fox News, sem einnig
er í eigu Murdochs. Einnig sækir hún
stuðning til leiðtoga kristnu evangelísku
samtakanna sem hún sjálf tilheyrir.
Skilningi varpað fyrir róða
Í hinu horninu eru annars konar
hófsamir, íhaldsmenn. Þeirra á með-
al er félagi Kristols á New York Times,
dálkahöfundurinn David Brooks.
Brooks er ómyrkur í máli varðandi
Söruh Palin.
Brooks lítur á Palin sem hluta afla
íhaldshreyfingarinnar sem vill mjaka
henni frá vitsmunahyggju. „Hér áður
fyrr mátu íhaldsmenn Churchill og
Lincoln mest manna, sem undir-
bjuggu sig fyrir stjórn með lestri,
skilningi á sögu og þróaðri hugsun.
Nú hefur þessum eiginlekum ver-
ið fórnað fyrir almennan skilning,“
skrifaði Brooks og skírskotaði til
Söruh Palin.
Þessi mynd af vitsmunalegri fá-
tækt Söruh Palin er afurð hörmulegra
viðtala sem hún hefur veitt í sjón-
varpi. Í þeim var henni fyrirmunað að
svara einföldum spurningum á borð
við hvaða dagblöð hún lesi. Og til að
bæta gráu ofan á svart var hún dregin
sundur og saman í háði í sjónvarps-
þættinum Saturday Night Live. Palin
hefur síðan sjálf styrkt þessa ímynd
með talanda sínum og gagnrýni sinni
á Obama fyrir að „tilheyra elítunni“:
Betur má ef duga skal
Michael Franc er sérfræðingur í
stjórnarsamskiptum hjá hugmynda-
banka hinnar íhaldssömu Heritage-
stofnunar. Hann álítur að Palin hafi
varpað ljósi á mikilvægar umræður
sem vakna að kosningum loknum;
hvort flokkurinn eigi að feta áfram
stigu lýðhyllistefnunnar, sem Ronald
Reagan lagði grunninn að, eða tileinka
sér meiri hörku.
Franc sagði að lýðhyllistefna Söruh
Palin höfðaði aðeins til um fjörutíu og
fimm prósenta kjósenda. „Eitthvað þarf
að breytast svo flokkurinn komist aftur
yfir fimmtíu prósentin,“ sagði Franc.
„Lýðfræðileg samsetning Banda-
ríkjanna hefur breyst í þá veru að vel
menntuðum kjósendum hefur fjölgað
og þeir eru búnir að fá sig fullsadda af
orðagjálfri lýðhyllisinna og eru mót-
tækilegir fyrir sókn demókrata,“ sagði
Michael Franc. Ef Sarah Palin á að eiga
raunhæfa möguleika 2012 er henni
nauðugur einn kostur að ná til þessa
hóps.
Frægð og þokki hrökkva skammt
Rich Lowry, ritstjóri National Revi-
ew, tekur undir með Michael Franc
um að Sarah Palin þurfi að bæta um
betur í pólitískri ímynd sinni.
„Ef hún reynir að fljóta á frægð
sinni og þokka eingöngu kastar hún á
skarn frábæru tækifæri sem hún hef-
ur fengið upp í hendurnar. En ef hún
skilgreinir hvað íhaldssemi að hætti
Söruh Palin merkir verður hún hæfur
keppandi,“ sagði Lowry.
Ef John McCain, og þar af leið-
andi Sarah Palin, bíður lægri hlut
í næsta mánuði bíður Söruh erfitt
verk. Hún þarf að tryggja að hún falli
ekki í gleymsku og dá fyrir kosning-
arnar 2012. Hún gæti átt við ramman
reip að draga ef hún þyrfti að treysta á
fjölmiðla í strjálbýli Alaska. Víst er að
hún mun njóta hjálpar fjölmiðla sem
viljugir eru til að hampa frægð henn-
ar. En einhver áhöld eru um hversu
skynsamlegt það væri fyrir Palin að
nýta sér fjölmiðla í ljósi fyrri afreka.
Robert Thompson, prófessor í popp-
menningu við Syracuse-háskólann,
telur það ekki vænlegan kost fyr-
ir Söruh Palin: „Hún þarf að byggja
upp pólitískt vægi sitt en hana hefur
skort það og að veita sjónvarpsviðtal
er ekki endilega besta leiðin.“
Obama fær stuðning frá Alaska
Víðlesnasta dagblað Alaska,
heimafylkis Söruh Palin, hefur lýst
yfir stuðningi við Barack Obama. Í
dagblaðinu, Anchorage Daily News,
segir að Palin ríkisstjóri sé „of tvísýn“
til að vera einu skrefi frá forsetaemb-
ættinu.
Í leiðara blaðsins segir að útnefn-
ing hennar hafi „fangað huga“ íbúa
Alaska, en það megi ekki „skyggja á
alla aðra dómgreind“. En leiðarahöf-
undur ítrekaði þó að óvarlegt væri að
vanmeta Söruh Palin.
Múslímskur klerkur hefur vakið
mikla reiði meðal almennings í Indó-
nesíu eftir að hann kvæntist tólf ára
stúlku. Klerkurinn, Pujianto Cahyo
Widianto, kvæntist stúlkunni í borg-
inni Semarang á eyjunni Jövu, við
óopinbera trúarathöfn. Samkvæmt
fregnum valdi hann stúlkuna úr hópi
tuttugu stúlkna, og flaug að athöfn
lokinni til Singapúr ásamt hinni nýju
brúði og fyrstu eiginkonu sinni.
Lögregluyfirvöld í Indónesíu hafa
hafið rannsókn á ráðahagnum, en Puj-
ianto Cahyo Widianto á yfir höfði sér
ákærur ef hann verður sekur fundinn.
Rannsóknaraðilar á vegum barna-
verndarstofnunar Indónesíu sögðu
að Widianto hefði kosið stúlkuna á
grundvelli gáfna hennar og líkamlegs
og andlegs þroska. Þeir sögðu einnig
að Pujianto Cahyo Widianto, sem rek-
ur íslamskan heimavistarskóla, hefði
haft áform um að setja stúlkubarnið
yfir annað fyrirtæki sem hann rekur,
skrautskriftarvinnustofu.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort hjóna-
bandið hafi verið fullkomnað, en ef sú
er raunin er hægt að kæra Widianto
á grundvelli laga um barnavernd og
hjónaband og vinnulöggjafar.
Pujianto Cahyo Widianto er sagð-
ur hafa réttlætt gerðir sínar með því
að segjast vera að líkja eftir spámanni
íslams, Múhameð, og að hann myndi
bíða þar til nýja eiginkonan næði
kynþroskaaldri með að hafa mök við
hana. Sú yfirlýsing nægði ekki til að
lægja reiðiölduna í Indónesíu vegna
hjónabandsins.
Háttsettur meðlimur íslamska
stjórnmálaflokksins PKS sagði að
hann teldi Widianto hafa breytt rang-
lega og hugmyndir hans um íslam
væru rangar.
Lögreglan í Indónesíu hefur ekki
farið fram á að stjórnvöld í Singapúr
framselji Pujianto Cahyo Widianto
klerk, en rannsókn málsins er fram-
haldið.
Kvæntist tólf ára stúlku
„Lýðfræðileg samsetn-
ing Bandaríkjanna hef-
ur breyst í þá veru að
vel menntuðum kjós-
endum hefur fjölgað,
og þeir eru búnir að fá
sig fullsadda af orða-
gjálfri lýðhyllisinna og
eru móttækilegir fyr-
ir sókn demókrata,“
sagði Michael Franc.
Palin
veldur
sundrungu Sarah Palin er ekki árennileg Víðlesnasta dagblað alaska styður barack Obama en segir að ekki skuli vanmeta Söruh Palin.
Í svörtum kufli Múslímsk stúlka gengur
framhjá heimavistarskóla í indónesíu.
Einstök bók um mann
sem mætt hefur meiri
mótbyr en gengur og
gerist, en býr þó yfir
fádæma lífsgleði og
baráttuþreki og horfir
ávallt fram á veginn.
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
MEÐAN HJARTAÐ SLÆR
-lífsreynslusaga Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar
-í senn hugljúf og skemmtileg bók