Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Page 16
Þriðjudagur 28. Október 200816 Ættfræði
40 ára í dag
30 ára
n Radoslaw Rafal Jablonski Hegranesi 25,
Garðabær
n Juan Camilo Roman Estrada Rafstöðvarvegi 35,
Reykjavík
n Stella Bryndís Helgadóttir Kjarrlundi 3, Akureyri
n Reynir Atli Jónsson Austurvegi 14, Þórshöfn
n Óðinn Már Kristjánsson Torfufelli 50, Reykjavík
n Kristján Þórarinsson Kirkjuvöllum 5, Hafnarfjörður
n Auður Bryndís Hafsteinsdóttir Funalind 11,
Kópavogur
n Berglind Hafsteinsdóttir Sílatjörn 18, Selfoss
n Sigurlaugur Gísli Gíslason Geirlandi, Kirkjubæ-
jarkl.
40 ára
n Patrick Robert Pinson Tjarnargötu 47, Reykjavík
n Rimantas Uzdra Borgarbraut 3, Borgarnes
n Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir Ársölum 3,
Kópavogur
n Halldóra Birna Jónsdóttir Búðanesi 3, Styk-
kishólmur
n Ragnheiður Jakobsdóttir Háhlíð 10, Akureyri
n Erlingur Bjarnason Fagranesi v/Vatnsenda,
Kópavogur
n Hjörtur Ragnarsson Borgarholti 6, Ólafsvík
n Ingólfur Einarsson Bæjargili 80, Garðabær
n Lúðvík V Þórisson Fífuseli 30, Reykjavík
n Davíð Oddsson Drápuhlíð 21, Reykjavík
n Guðmundur Bjarki Grétarsson Hólsbraut 11,
Selfoss
n Geir Borg Sunnuflöt 23, Garðabær
n Hilmar Þór Hannesson Seljalandi 3, Reykjavík
n Sveinn Logi Guðmannsson Gauksási 21,
Hafnarfjörður
n Kristján Skúli Ásgeirsson Fremristekk 8, Reykjavík
n Lilja Rut Sæbjörnsdóttir Hólagötu 23, Vestman-
naeyjar
50 ára
n Kristín Ingibjörg Mar Bræðraborgarstíg 43,
Reykjavík
n Þórhildur Bjarnadóttir Hátúni, Hvolsvöllur
n Jóhannes Guðmundsson Laufrima 37, Reykjavík
n Guðjón Snorri Þóroddsson Engimýri 11, Akureyri
n Marinó Steinn Þorsteinsson Öldugötu 3, Dalvík
n Jóhanna Jónsdóttir Bjarnhólastíg 22, Kópavogur
n Jóhanna María Ingimarsdóttir Norðurbyggð 20b,
Þorlákshöfn
n Friðgeir Axfjörð Hverfisgötu 50, Hafnarfjörður
n Súsanna Kristinsdóttir Garði 1, Mývatn
n María Hilmarsdóttir Eiðismýri 14a, Seltjarnarnes
n Guðmundína Ragnarsdóttir Furuhlíð 15,
Hafnarfjörður
n Ingvar Geir Guðbjörnsson Norðurbyggð 8,
Þorlákshöfn
n Þorkell Ragnarsson Kóngsbakka 14, Reykjavík
60 ára
n Kazimieras Vytautas Srebalius Kleppsvegi 44,
Reykjavík
n Sævar O Albertsson Seljavegi 25, Reykjavík
n Guðleif Guðlaugsdóttir Lækjarbakka, Hvolsvöllur
n Þorleifur G Sigurðsson Brávallagötu 44, Reykjavík
n Margrét Guðmundsdóttir Þórðargötu 30,
Borgarnes
n Guðgeir Halldór Guðmundsson Ártröð 10,
Egilsstaðir
n Kristján Jóhannes Karlsson Háarifi 35 Rifi,
Hellissandur
n Greta Önundardóttir Bakkahjalla 2, Kópavogur
n Halla V Árnadóttir Bakkastöðum 7b, Reykjavík
70 ára
n Guðjón Jónsson Víðivöllum 26, Selfoss
n Árni Pétursson Vogsholti 9, Raufarhöfn
n Unnur Sigurjónsdóttir Stuðlaseli 12, Reykjavík
n Þórður Jónasson Hringbraut 121, Reykjavík
n Margrét Björgvinsdóttir Barðaströnd 12,
Seltjarnarnes
75 ára
n Sigrún Jóhannesdóttir Gnípuheiði 7, Kópavogur
80 ára
n Ingveldur H B Húbertsdóttir Kirkjulundi 8,
Garðabær
n Valgarður Baldvinsson Álfabyggð 1, Akureyri
85 ára
n Einar Ágústsson Hlíðargötu 62, Fáskrúðsfjörður
n Ásta Jónsdóttir Miðvangi 41, Hafnarfjörður
n Margrét Indriðadóttir Karfavogi 40, Reykjavík
Kristín Loftsdóttir
prófessOr í mannfræði við Hí
Kristín fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp. Hún var í Víðistaða-
skóla, stundaði nám við Flensborg
og lauk þaðan stúdentsprófi 1989,
stundaði nám í mannfræði við HÍ og
lauk þaðan BA-prófi í mannfræði,
stundaði nám við University of Ar-
izona, lauk þaðan MA-prófi 1994 og
Ph.D.-prófi 2000. Hún vann dokt-
orsrannsókn í Níger í Vestur-Afríku
1996-98.
Kristín vann í fiski hjá Norður-
stjörnunni í Hafnarfirði á unglings-
árunum og í Bókabúð Böðvars í
Hafnarfirði. Hún var sumarstarfs-
maður hjá Þróunarsamvinnustofn-
un Íslands árið 2000.
Kristín var ráðin lektor í mann-
fræði við HÍ árið 2002, varð dós-
ent við deildina 2004 og hefur verið
prófessor í mannfræði frá ársbyrjun
2008. Hún hefur unnið að rannsókn-
um á sviði hnattvæðingar, fólks-
flutningum, ímynda, fjölmenningar-
og þróunarmála. Hún hefur samið
fjölda greina í fagtímarit og bóka-
kafla. Nú er að koma út eftir hana
ritið The Bush is Sweet – Agency,
Development and Power among
WoDaaBe Partoralist in Niger.
Kristín sendi frá barnabókina
Fugl í búri sem hún fékk Íslensku
barnabókaverðlaunin fyrir árið
1988. Þá sendi hún frá sér skáldsög-
una Fótatak tímans, 1990 en hún
var tilnefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna.
Kristín var með sýningu í Hafn-
arborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, árið 2000: Hornin
íþyngja ekki kúnni: Vettvangsrann-
sókn Kristínar Loftsdóttur mann-
fræðings meðal WoDaaBe hirðingja
í Níger, en sýningin var einnig sett
upp í Þjóðarbókhlöðu – Landsbóka-
safni, árið 2001.
Kristín hefur m.a. setið í stjórn
Alþjóðamálastofnunar HÍ, í stjórn
Mannfræðistofnunar HÍ og í stjórn
Rannsóknarstofu um fólksflutninga
og fjölmenningu á vegum HÍ.
Fjölskylda
Eiginmaður Kristínar er Már
Wolfgang Mixa, f. 6.2. 1965, fjármála-
fræðingur hjá Sparisjóðabankanum.
Hann er sonur Ólafs Mixa, læknis í
Reykjavík, og Ásthildar Gísladóttur
Königseder.
Börn Kristínar og Más eru Mím-
ir Kristínarson Mixa, f. 26.1. 2003;
Alexía Kristínardóttir Mixa, f. 24.1.
2006; Sól Kristínardóttir Mixa, f.
24.1. 2006.
Systkini Kristínar eru Ásta Lofts-
dóttir, f. 27.5. 1966, framkvæmda-
stjóri hjá Mónuhúsinu í Hafnarfirði;
Jónína Dögg Loftstdóttirt, f. 23.8.
1976, kennari í Hafnarfirði; Magnús
Loftsson, f. 11.11. 1981, nemi við HÍ.
Foreldrar Kristínar eru Loft-
ur Magnússon, f. 10.10. 1945, fyrrv.
skólastjóri, búsettur í Hafnarfirði, og
Erla Guðlaug Sigurðardóttir, f. 17.3.
1947, kennari í Hafnarfirði.
Ætt
Loftur er sonur Magnúsar, bif-
reiðarstjóra í Kópavogi Loftssonar, b.
í Haukholtum í Hrunamannahreppi
Þorsteinssonar, b. þar Eiríkssonar,
b. þar Jónssonar, b. þar Jónssonar,
b. í Skipholti, bróður Fjalla-Eyvind-
ar. Móðir Eiríks var Valgerður Eiríks-
dóttir, ættföður Bolholtsættar Jóns-
sonar. Móðir Þorsteins var Guðrún
Helgadóttir, hreppstjóra í Sólheim-
um, bróður Valgerðar. Móðir Lofts
í Haukholtum var Guðrún Lofts-
dóttir, b. á Minni-Mástungu Eiríks-
sonar, ættföður Reykjaættar Vigfús-
sonar. Móðir Guðrúnar Loftsdóttur
var Guðrún Bjarnadóttir b. í Árbæ
Stefánssonar, b. þar, Bjarnasonar,
ættföður Víkingslækjarættar Hall-
dórssonar. Móðir Guðrúnar Bjarna-
dóttur var Margrét, systir Valgerðar
og Helga í Sólheimum.
Móðir Magnúsar bifreiðastjóra
var Kristín Magnúsdóttir, b. í Skolla-
gröf Þórðarsonar, b. í Steinsholti Ól-
afssonar, prófasts í Sólheimaþing-
um Árnasonar. Móðir Magnúsar í
Skolla-Gröf var Kristín, systir Guð-
rúnar í Minni-Mástungu. Móðir
Kristínar var María Amalía Thoms-
en, dóttir Thomasar Thomsen, fakt-
ors í Hafnarfirði, og Katrínar Þor-
steinsdóttur.
Móðir Lofts skólastjóra var Jón-
ína, dóttir Ásbjörns, smiðs í Sand-
gerði Pálssonar, og Sigríðar Snorra-
dóttur.
Erla Guðlaug er dóttir Sigurð-
ar, skrifstofumanns Magnússon-
ar, bryggjuvarðar í Hafnarfirði
Bjarnasonar, sjómanns í Hafnar-
firði, frá Efra-Brúarhrauni í Hafnar-
firði Markússonar. Móðir Bjarna var
Kristín Halldórsdóttir. Móðir Magn-
úsar bryggjuvarðar var Guðlaug
Þorsteinsdóttir. Móðir Sigurðar
skrifstofumanns var Kristín Jóhann-
esdóttir, ættuð úr Húnavatnssýslu.
Móðir Erlu Guðlaugar var Ásta
Jónsdóttir, útvegsb. á Bjarnastöðum
á Álftanesi Diðrikssonar, og Guð-
rúnar Guðnadóttur.
Til
hamingju
með
afmælið!
Fannar fæddist á Patreksfirði
en ólst upp á Bíldudal. Hann var í
Grunnskóla Bíldudals og stundaði
nám við Héraðsskólann í Reykholti
í Borgarfirði.
Fannar vann í frystihúsinu á
Bíldudal á unglingsárunum, vann
við smíðar á Hornafirði er hann
var sautján ára, fór til sjós átján ára
og var háseti á bátum frá Bíldudal,
Tálknafirði og Hafnarfirði til 2004.
Er Fannar kom í land hóf hann
störf við smíðar á Bíldudal í eitt ár,
hóf síðan störf hjá Íslenska kalkþör-
ungafélaginu 2005 og hefur starfað
þar síðan.
Fannar hefur starfað í slökkvi-
liðinu á Bíldudal frá 2002. Hann
hefur starfað með Björgunarsveit-
inni Kópi á Bíldudal frá fjórtán ára
aldri og hefur starfað með Leikfé-
lagi Bíldudals sl. þrjú ár og situr nú
í stjórn félagsins.
Fjölskylda
Eiginkona Fannars er Signý
Sverrisdóttir, f. 27.7. 1982, kennari
á Bíldudal.
Synir Fannars og Signýjar eru
Símon Freyr Fannarsson, f. 24.8.
1999; Friðbjörn Valur Fannarsson,
f. 26.11. 2002; Sverrir Elí Fannars-
son, f. 8.2. 2007.
Systkini Fannars eru Anna Lilja
Ottósdóttir, f. 17.8. 1969, búsett
á Höfn í Hornafirði; Elín Hróðný
Ottósdóttir, f. 28.2. 1972, búsett í
Grundarfirði; Valdimar Bernódus
Ottósson, f. 8.7. 1977, búsettur á
Bíldudal; Friðbjörn Steinar Ottós-
son, f. 25.2. 1987, búsettur á Bíldu-
dal.
Foreldrar Fannars eru Ottó
Valdimarsson, f. 15.4. 1950, starfs-
maður hjá KNH á Ísafirði, og Mar-
grét Hjartardóttir, f. 4.5. 1953,
starfsmaður við Heilsugæsluna á
Patreksfirði.
fannar freyr ottósson
verkamaður á bíldudal
„Það hlaðast á mann árin,“ segir
Lúðvík V. Þórisson um það að verða
fertugur en hann fagnar þeim áfanga
í dag.
Ekki stendur til að gera neitt
mikið í tilefni dagsins því búið er að
halda upp á afmælið. Lúðvík fékk
óvænta afmælisveislu á laugardag-
inn þar sem hans nánustu ættingj-
ar og vinir voru samankomnir til að
fagna. „Konan mín plataði mig og
sagði að við værum að fara í kaffi til
mömmu minnar. Þegar við komum
var allt orðið troðið af fólki. Boð-
ið var upp á snittur og bjór og við
áttum þar saman góða stund. Þetta
kom mér verulega á óvart en mjög
skemmtilega. Ég var eiginlega plat-
aður í eigið afmæli og gerði konan
það í samráði við mömmu,“ seg-
ir Lúðvík hógvær en ánægður með
herlegheitin. Lúðvík fékk fullt af
litlum fallegum gjöfum og mest bar
þó á viskíflöskum sem hann á nú á
lager.
Lúðvík sem starfar sjálfstætt á
ekki von á því að vinnufélagar hans
geri eitthvað óvænt í tilefni dagsins
þar sem þau eru bara tvö, hann og
konan hans, og hún er búin að koma
honum á óvart.
„Það eru kannski einna helst dæt-
urnar sem muna eftir þessu,“ segir
Lúðvík en að hans sögn eru þær mik-
ið fyrir afmæli. Sjálfur er hann ekki
mikið afmælisbarn og er í raun hætt-
ur að telja árin. „Maður vonar í raun
að enginn muni eftir þessu eftir að
maður eldist,“ segir Lúðvík að lokum
og hlær en hefur augljóslega lúmskt
gaman af þessu.
30 ára í dag
Fjölskyldan kom Lúðvík V. Þórissyni á óvart með afmælisveislu:
Plataður í afmælið
Viskíflöskur á lager
lúðvík hefur fengið margar
gjafir, einkum viskíflöskur.